Kútur, skráð e. hlutv.
1932 - 1969

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Blár kútur, emelaraður. Efri hluti kútsins mjókkar upp á við og endar í stút. Á efri hlutanum er lítið handfang til að halda á kútnum og hella úr honum. Framan á kútnum er rétthyrndur límmiði, efst á límmiðanum stendur Sauðárkróks Apótek og neðst stendur Ole Bang fyrir miðju. Meðfram köntum límmiðans er skraut og ofarlega fyrir miðju fyrir neðan heiti apóteksins er mynd af mortéli. Límmiðinn er orðinn nokkuð máður og slitinn en sjá má að á hann miðjan hefur verið handskrifaður texti sem ekki er hægt að lesa lengur. Á botni kútsins hefur á nokkrum stöðum brotnað úr húðinni. Þjóðminjasafn Íslands tók við nokkrum gripum úr eigu Briem ættarinnar til varðveislu í safneign sína árið 2024. Munirnir eru allir skráðir undir númerinu 2024-1. Gripirnir voru allir um tíma í eigu föður gefanda, Gunnlaugs E. Briem (f. 1922, d. 2014). Með sumum gripunum fylgdi saga þeirra sem Gunnlaugur hafði skráð. Með kútnum fylgdu ekki frekari upplýsingar.
Ole Bang (f. 1905, d. 1969) fæddist í Árósum. Hann nam lyfjafræði og lauk kandidatsprófi árið 1932. Árið áður hafði hann eignast Sauðárkróks Apótek, en fengið annan mann til að annast rekstur þess þar til hann gat sjálfur tekið við, sem gerðist sama ár og hann útskrifaðist. Þegar hann flutti til Sauðárkróks og tók við apótekinu þá var Ole Bang ekki ókunnugur Íslandi en hann hafði dvaldst á Íslandi um eins árs skeið árið 1929. Hann rak apótekið í tæp 40 ár allt þar til hann lést í nóvember 1969. Hann var jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju. Kona hans hét Minna Elísa Lauersen (f. 1914, d. 2005), þau voru æskuvinir og giftust árið 1935.
Í safneign Þjóðminjasafns Íslands er varðveitt ljósmynd frá árinu 1957 sem sýnir innan úr Sauðárkróks Apóteki, númer: Mbl1-2000
Aðrar upplýsingar
Ártal
1932 - 1969
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2024-1-14
Stærð
18.5 x 8.2 x 4.5 cm
Lengd: 18.5 Breidd: 8.2 Hæð: 4.5 cm
Staður
Staður: Aðalgata 17, 550-Sauðárkróki, Skagafjörður, Borgarsveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Kári Jónsson. (1969, 6. desember). Óli Bang, lyfsali - Minning. Morgunblaðið, bls. 22.
Upprunastaður
65°45'4.3"N 19°39'4.3"W



