Feðmingur

Lilý Erla Adamsdóttir vinnu á mörkum myndlistar, hönnunar og listhandverks. Yfirborð er henni hugleikið, hvort sem um ræðir yfirborð náttúrunnar eða mennskunnar. Í verkum sínum skoðar hún handgerða endurtekningu, möguleika hennar og takmarkanir. Hvernig hið einstaka kallast á við fjöldann um leið og fjöldinn skapar einstakan samhljóm. Vinnuferli Lilýja einkennist af stöðugu samtali við efnið, þa sem eitt leiðir af öðru. Undanfarið hefur hún nýtt sér eiginleika tufttækninnarr til skoðunar á þræðinum og sjónrænna áhrifa hans, þegar kemu að samspili lita og efniseiginleika. Lilý talar ýmist um verkin sín sem loðin málverk eða dansandi útsaum.  Lilý Erla Adamsdóttir (f. 1985) lauk BA gráðu í myndlist frá LHÍ 2011 og MA gráðu í listrænum textíl frá Textilhögskolan í Boras í Svíþjóð 2017.

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Feðmingur
Ártal
= 2022
Safnnúmer
Safnnúmer A: Listak-624
Stærð
130 x 102 x 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá