Heima. Úr seríunni Líttu heim.

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Skoski ljósmyndarinn Niall McDiarmid (f. 1967) býr í London og starfar aðallega sem portrett- og götulífsljósmyndari. Áratugum saman hefur hann myndað sína eigin fjölskyldu, bæði í London og í Perthshire í Skotlandi, og þá sérstaklega beint sjónum sínum að þeim athöfnum sem eiga sér stað við morgunverðarborðið en þar hefur hann Rolleiflex-filmuvél ávallt til taks, til þess að geta fangað hverfult látbragð eða uppstillingu hversdagslegra hluta á eldhúsborðinu í síbreytilegri morgunbirtunni. Þessi mynd sýnir foreldra listamannsins við morgunverðarborðið á heimili þeirra í Perthshire í Skotlandi og tilheyrir seríunni Look Homeward.
Aðrar upplýsingar
Titill
Enskt verkheiti: Home. From the series Look Homeward.
Verkheiti: Heima. Úr seríunni Líttu heim.
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ -12387
Stærð
108 x 134 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Gefandi
Gjöf listamannsins.
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Niall McDiarmid
