Neyðartalstöð

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Hólkur úr plasti með sendi í. Dregið loftnet upp úr öðrum endanum og í hinum endanum er loftnet sem á að fara í sjó til að gefa jarðsamband. Á miðjum hólknum er talstöðin sjálf og leiðbeiningar um hvernig á að nota talstöðina. Hólkurinn er sterk-appelsínugulur. Lengd: 78cm, Aldur f/1970.
Talstöð af gerð sem var notuð um borð í gúmmíbátum í flotanum frá því eftir 1960. Gúmmíbátarnir voru teknir í notkun í Vestmannaeyjum eftir 1950 og þessar talstöðvar komu í kjölfarið. Þessi talstöð var um borð í bátnum Farsæli Ve 12.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Óli Þór Alfreðsson
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2001-6-1
Stærð
78 x 0 cm
Lengd: 78 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti