Altaristafla
1885

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Altaristafla eftir danska listamanninn Anker Lund, úr Flateyjarkirkju, Breiðafirði, frá 1885. Málverk á striga. Í gylltum ramma. Taflan er allstór. Neðst í hægra horni er höfundarmerkingin: Anker Lund.
Taflan sýnir Krist með tveimur postulum á leið til Emmaus. Taflan hefur ekki verið í kirkjunni um tíma og þarfnast hún viðgerðar. Ramminn er einnig talsvert illa farinn.
Eysteinn Gíslason, Skáleyjum, afhenti [Þjóðminjasafninu) töfluna fyrir hönd sóknarnefndar Flateyjarkirkju.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1885
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2003-1
Staður
Staður: Flateyjarkirkja, 345-Flatey á Breiðafirði, Reykhólahreppur
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Altaristafla
Upprunastaður
65°22'26.5"N 22°54'56.0"W
