Munir

1936
Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Króka-Refskefli, smíðað af Sigurþóri Ólafssyni á Gaddstöðum á Rangárvöllum og gefið móður þeirra, Kristínu Skúladóttur frá Keldum í brúðargjöf 6. maí, 1936. Það er smíðað úr furu, full lengd 31 cm. Hagleg smíði. Tígulskurður til skreytingar og laufskornir endar. Krókarefskefli eru mjög skrautleg gerð af þráðakefli, notað til að geyma þræði fyrir útsaum. Ekki voru öll kefli svona skrautleg – flest voru gerð úr sauðaleggjum. En krókarefskefli eru merkileg útskurðarlist út af fyrir sig, því þau eru skorin út úr einum heilum viðarbút. Þau eru hvergi samsett, ekki einu sinni kringlan, heldur þurfti sá sem skar út að skera út kringluna og kúluna innan úr henni . Hið sama á við um hlekkina á hvorum endanum. Sambærilegur útskurður finnst erlendis, t.d. í Norður-Ameríku og eru hlutirnir gjarnan kallaðir „whimsies“ á ensku. Nafnið er talið vísa í Króka-Ref, sem er aðalpersónan í Króka-Refssögu. Hann var þekktur fyrir klæki sína og sagt var að hann hefði verið fyrstur til þess að tálga svona kefli.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1936
Safnnúmer
Safnnúmer A: R-7834
Stærð
31 x 0 cm Lengd: 31 cm
Staður
Staður: Hemla 1, 861-Hvolsvelli, Rangárþing eystra
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Krókarefskefli
Heimildir
Safnskrá Rangárvallasýslu. Byrjuð 2002.

Upprunastaður

63°43'5.5"N 20°14'2.5"W