Strauvél
1920 - 1960

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Á rúllunni sjálfri er drapplitað tau. Í vélinni er 230 cm löng rafmagnssnúra með hvítum tengli. Einnig er tengt við vélina fótstigi með grárri snúru sem er 115,5 cm löng. Framan á vélinni stendur "PHILIPS" og þar eru 3 takkar. Á annari hliðinni er áföst málmplata sem á stendur meðal annars " LIAB LINDESBERGS INDUSTRI AB (,) SERIE NR. 15826". Á vélinni er gráleit plasthlíf með teygju að neðan, en plastið er orðið nokkuð illa farið og rifið á nokkrum stöðum. Rafmagnsstrauvélina átti Ragnar Karlsson geðlæknir en hann keypti vélina út í Bandaríkjunum. Síðan gaf hann móður sinni, Ástu Sigurjónsdóttur á Akureyri, vélina og notaði hún hana. Þegar Ásta flutti til Reykjavíkur þá sendi hún Þórunni Loftsdóttur mákonu sinni, f. 17.11.1912, á Dalvík vélina en þetta var u.þ.b. 1970-72. Síðan fékk Ingibjörg Ásgeirsdóttir, gefandi, vélina frá móður sinni um 1995.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1920 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2010-19
Stærð
61 x 40.5 x 30 cm
Lengd: 61 Breidd: 40.5 Hæð: 30 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Strauvél
