Fiskibátur
1909

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Sexæringurinn Víkingur, smíðaður af Erlendi Björnssyni í Vík árið 1909 fyrir Halldór Jónsson kaupmann í Suður-Vík. Sigurður Gunnarsson í Litla-Hvammi keypti skipið af Jóni Halldórssyni í Suður-Vík 1950 og hélt því úti frá Dyrhólaey fram um 1960. Skipið er byggt með hinu forna brimsandalagi og má hér benda til samanburðar á skipið Pétursey í Skógasafni. Þetta er síðasta tækifærið til að fá skip af þessari gerð inn á safn og gjöf Sigþórs og fjölskyldu hans er dýrgripur safnlega séð.
Skipið er 7,46 m. á lengd, mesta breidd 2,14 m., súðbyrt. Það er hvítmáðað nema hvað næst efsta umfar er málað grænt. Þóftur (5) eru ómálaðar nema til enda. Stýri er málað hvítt og með grænni rönd. Stýrissveif ómáluð. Tvær vaðbeygjur, markaðar krossi. Járnkeipar. Rúmin í skipinu framan frá heita: barki, andóf, fyrirrúm, miðrúm, austurrúm, skutrúm. Formannssæti aftast. Plitti í botni. Biti með bitahúsi. Á hann er negld vel skorin fjöl (skipsfjöl, bitafjöl) með nafni skipsins, VÍKINGUR. Þrír hlunnar. Níu seilar og fimm seilarnálar eru úr hvalbeini, gamalmerktar.
Sex árar, ein þeirra brotin og hefur fengið viðgerð. Austurtrog, nýlegt fylgir. Afhent af Sigþóri Sigurðssyni í Litla-Hvammi og flutt að Skógum af honum, Aðalheiði dóttur hans og Andrési Viðarssyni tengdasyni hans.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1909
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: S-2704
Stærð
746 x 214 cm
Lengd: 746 Breidd: 214 cm
Staður
Staður: Litli-Hvammur 1, 870-Vík, Mýrdalshreppur, Mýrdalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Bátaskrá
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Safnskrá Skógasafns. Þ.T.
