Lyfseðill, mannal.

1919 - 1930
Varðveitt hjá
Lyfjafræðisafn
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf. Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar. Á umslaginu er mynd af Reykjavíkur Apóteki í Thorvaldsenstræti 6, en þar stóð fyrsta Reykjavíkur Apótek frá árinu 1833. Niels Schmidt Krüger (26.6.1850-1.7.1916) apótekari lét reisa viðbyggingu við húsið (hægra megin á myndinni) um 1881. Umslagið er merkt Scheving Thorsteinsson. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson (11.2.1890-23.4.1971) var apótekari  í Reykjavíkur Apóteki 1919-1962. Þegar Þorsteinn varð apótekari höfðu ekki verið íslenskir apótekarar í Reykjavíkur Apóteki síðan 1836 eða í 83 ár. Í umslaginu er lyfseðill frá 30.4.1921. 

Aðrar upplýsingar

Ártal
1919 - 1930
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2024-4
Stærð
11.1 x 7.3 cm Lengd: 11.1 Breidd: 7.3 cm
Staður
Staður: Reykjavíkurapótek, Austurstræti 16, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.

Upprunastaður

64°8'50.8"N 21°56'17.9"W