Lyfseðilsumslag

1939 - 1948
Varðveitt hjá
Lyfjafræðisafn
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf. Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar. Á framhlið umslagsins er mynd frá Norðfirði en á bakhlið auglýsing um alls kyns vörur sem apótekið hafði á boðstólum. Á miðju umslaginu stendur Nes-Apótek Norðfirði. Trúlega er umslagið frá tíma Jóhanns  Ellerup (8.1.1904-23.1.1980) sem rak lyfjabúðina í Neskaupstað sem útibú frá Seyðisfjarðarapóteki 1939-1949.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1939 - 1948
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2024-28
Stærð
11 x 7.5 cm Lengd: 11 Breidd: 7.5 cm
Staður
Staður: Nesapótek, 740-Neskaupstað, Fjarðabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lyfseðilsumslag
Heimildir
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.