Lyfseðilsumslag
1921 - 1944

Varðveitt hjá
Lyfjafræðisafn
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf.
Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar.
Myndin á umslaginu er af húsinu að Strandgötu 34 í Hafnarfirði. Sören R. Kampmann apótekari lét byggja húsið fyrir apótekið og sem glæsilega íbúð fyrir fjölskyldu sína. Sören R. Kampmann (Sören Ringsted Jensen Kampmann (13.12.1884-17.4.1959) var stofnandi og fyrsti apótekari í Hafnarfjarðar Apóteki 1918-1947.
Aftan á umslaginu er mynd innan af afgreiðslusal apóteksins. Í dag er þetta hluti af því húsi sem nú er Hafnarborg - Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Sverrir Magnússon tók við apótekinu 1947. Hann og eiginkona hans Ingibjörg Sigurjónsdóttir gáfu húseignina árið 1983 sem stofn að listamiðstöð.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sverrir Magnússon
Ártal
1921 - 1944
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2024-21
Stærð
11.5 x 7.5 cm
Lengd: 11.5 Breidd: 7.5 cm
Staður
Staður: Hafnarfjarðarapótek, Hafnarfjarðarkaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lyfseðilsumslag
Heimildir
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.
Kristín Einarsdóttir lyfjafræðingur 01.03.1941-



