Lyfseðilsumslag

1928 - 1950
Varðveitt hjá
Lyfjafræðisafn
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf. Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar. Á framhlið umslagsins er lituð mynd af Akureyri tekin handan fjarðarins. Einnig nafn apóteksins, apótekarans O. C. Thorarensen og heimilisfangið Hafnarstræti 104. Neðst er auð lína ætluð til þess að rita nafn sjúklings og símanúmerið 32. Á bakhlið eru taldar upp ýmsar vöur sem fást í apótekinu. Oddur Carl Thorarensen (24.11.1894-10.05.1964) var apótekari í Akureyrar Apóteki 1919-1963.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1928 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2024-10
Stærð
12 x 7.5 cm Lengd: 12 Breidd: 7.5 cm
Staður
Staður: Akureyrarapótek, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lyfseðilsumslag
Heimildir
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.

Upprunastaður

65°41'24.9"N 18°5'23.7"W