Hálsfesti

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "Hálsfesti úr kvenhári. Þessa hálsfesti átti frú Sigríður Ólafsdóttir húsfr. í Eyvindarholti undir Eyjafjöllum fyrsta fjórðung þessarar aldar. Hún var síðari kona Ólafs bónda Ólafssonar í Eyvindarholti (Sjá Blik 1971, bls. 147-158 (Í.Ó.) ). Hárið, sem festin er gjörð úr, var af höfði frú Guðnýjar Jónsdóttur, fyrri konu Ólafs bónda Ólafssonar. Þau bjuggu að Bakka í Landeyjum. – Frú Ingibjörg Ólafsdóttir, fyrrum húsfr. í Bólstaðarhlíð (nr. 39) við Heimagötu hér í kaupstaðnum (d. 1976 ), gaf Byggðarsafninu hárfestina, en hún var dóttir Eyvindarholtshjónanna, Ólafs bónda og frú Sigríðar Ólafsdóttur". 

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 1321
Staður
Núverandi sveitarfélag: Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hálsfesti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.