Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1995)
Ártal
Tímabil: 01.01.2019 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-713
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan, borða ekki kjöt, fisk, né dýraafurðir.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
2-3 ár
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Aðalástæðan var vegna siðferðis, mér finnst rangt að drepa dýr þegar það eru aðrir valmöguleikar í boði. Umhverfisáhrifin og heilsuáhrifin eru síðan stór bónus í kjölfarið. Ég held mig við ákvörðunina því ég hef enn sömu siðferðisskoðanir.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég minnkaði kjötát fyrst þegar ég var 15 ára og hætti svo alveg að borða kjöt um 5 árum seinna. Þá var ég fyrst pescatarian, sem er grænmetisæta sem borðar fisk, í um 2-3 ár. Svo ákvað ég að taka þátt í veganúar eitt árið til að sjá hvort það væri eins erfitt og ég var búin að ímynda mér og það gekk svo vel að ég gat ekki lengur rökstutt það að fara ekki alla leið.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Mér finnst tilhugsunin um kjötát erfiðari og erfiðari eftir því sem tíminn líður. Á td. erfitt með að horfa á kjöt vera eldað og labba hratt framhjá kjötkælinum í búðum.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég hef alltaf verið með járnskort en hann lagaðist þegar ég varð grænmetisæta, einnig hefur þetta mjög góð áhrif á hægðir þar sem maður borðar almennt meiri trefjar á grænmetisfæði. En samskipti við fólk sem er ekki vegan geta verið erfið, sérstaklega þegar maður fílar ekki athygli. Í matarboðum, fjölskylduhittingum eða á kaffistofunni í vinnunni fær maður reglulega leiðinlegar athugasemdir eða fólk sem gerir grín að manni. Það verður mjög þreytt til lengdar.

Spurningaskrá
Aðfangategund