Þjóðhættir/ Svör

01.01.2015 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1973)
Ártal
Tímabil: 01.01.2015 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-708
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða fjölbreyttan, alþjóðlegan mat. Sem mest frá grunni. Reyni að borða sem minnst af unnum mat. Morgunmatur gæti verið hafragrautur, brauð með áleggi eða egg og grænmeti. Hádegismatur er stundum afgangar frá kvöldmat deginum áður. Súpa eða skyr eða eitthvað létt. Matarræði mitt er mest grænmeti, fiskur ,kjúklingur, ávextir og mjólkurvörur. Við borðum þyngra kjöt mun sjaldnar en þó við og við. Kvöldmatur á sunnudaginn var til dæmis ofnbakaður heill sítrónukjúklingur með rótargrænmeti og romaine salat með bláberjadöðluvinagraitte. Afgangar af því í gærkveldi. Við hjónin erum bæði góðir kokkar og erum að kenna syni okkar líka. Bæði matargerð og bakstur. Ég tel fjölbreytni í matargerð til fyrirmyndar og við skipuleggjum yfirleitt mánaðarmatseðil í senn. Þar sem við ákveðum hvað er í kvöldmat og skiptum niður verkum í matseldinni innan fjölskyldunnar. Ef við skipuleggjum ekki matseðilinn þá minnkar fjölbreytnin. Við höfum stundum tekið mánuð og mánuð í lágkolvetnamatarræði þar sem við takmörkum einföld kolvetni. Minnkum sykur og hveitineyslu.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hef verið að finna mína leið í hvað mér hentar að borða í tugi ára. Hef prófað ýmsa kúra og megranir þar sem ég var í ofþyngd. Sem fólst yfirleitt í einhvers skonar takmörkunum á hvað má borða, hvernig, vigta og mæla. Núna í dag hef ég verið í þessu matarræði myndi ég segja í sirka 7 ár. Ekkert er bannað, fjölbreytni er fyrir öllu. Þar sem ég er ástríðukokkur þá hef ég mikla reynslu í að elda góðan mat úr hverju sem er.
Aðfangategund