Þjóðhættir/ Svör

01.01.2012 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1984)
Ártal
Tímabil: 01.01.2012 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-697
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég reyni að borða hollt. Byrja alla daga á hafragraut með haframjólk. I hádeginu borða ég skyr/ab mjólk og hrökkbrauð eða afganga frá kvöldinu áður nema það sé grænmetisréttur sem mér líst á í vinnunni. Á kvöldin elda ég ýmist grænmetisrétti/fiskrétti. Á föstudögum er pítsa og einu sinni í viku er súpa/grjónagrautur. Ég skilgreini mig sem vistkera eða sæ-ætu. Borða fisk en ekkert sem lifir á landi. Reyni að velja umhverfisvænt og hollt

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Áratug sirka

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég er umhverfisfræðingur og meðvituð um umhverfisáhrif matvælaframleiðslu til manneldis. Ég hætti smátt og smátt að borða kjöt, núna finnst mér það frekar ógeðslegt að borða önnur spendýr og fugla en stoppa ekki aðra heimilismeðlimi í því. Ég er gift og á þrjú börn. Breytingin átti sér stað í kjölfar þekkingaröflunar en líka aukins úrvals á grænmetis- og veganvörum hérlendis

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Heyrði bara af þessu hér og þar, í gegnum vini og á samfélagsmiðlum

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ekki beint, nema ég finn að þetta matarræði hentar mér án þess að ég sé að biðja aðra fjölskyldumeðlimi um að aðhyllast sama lífsstíl

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Nei ekki nema að mér líður betur í maganum og meltingarfærum eftir að ég hætti að borða kjöt. Var samt smá stund að læra almennilega inn á næringuna. Og jú, það eru sumir staðir sem ég fer ekki á til að borða af því maturinn höfðar ekki til mín

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Bónus og Krónunni aðallega. Uppruni og innihald skiptir mestu máli

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott, bý miðsvæðis í Reykjavík

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mjög mikinn áhuga og bæði ég og maðurinn minn erum dugleg að prufa okkur áfram við matargerðina

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Bragð og áferð aðallega og hvort maturinn sé rétt eldaður (ekki of lítið eða mikið)

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferskleiki skiptir máli og að hún sé ekki uppfull af aukaefnum og mikið unnin

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Stundum langar mig í pylsur og hamborgara. Það sem kemur í staðinn er bara ekki sambærilegt

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Á hverjum degi. Ég þarf ekki mikið, tvo potta, pönnu, skurðarbretti, góða hnífa, flysjara, hvítlaukspressu, rifjárni og eldfast mót

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ágætlega oft. Er hrifin af stöðum sem bjóða upp á smárétti, t.d public house, Matbar, Sumac og Fjallkonan. Finnst fínt að borða á þessum stöðum

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Kannski bara ef mér er boðið í mat og fólk gleymir að ég borða ekki kjöt en ég pirra mig nú lítið á því

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
5 manns, 3 börn, aðrir aðhyllast ekki sama mataræði og ég en það er komið til móts við mig. Það hefur lítil áhrif á mig þó aðrir borði stundum kjöt hérna heima

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Aðallega bara stuðning. Eldra fólk og tengdafjölskyldan mín sem eru bændur tuða stundum yfir mataræðinu en það hefur engin áhrif á mig

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já ég fæ sér mat á meðan aðrir borða hamborgarhrygg. Það skiptir mig máli að fá góðan hátíðarmat líka

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég hef komið með minn eigin mat í matarboð en líka bara ekki gert mál úr þessi og bara borðað meðlæti. Finnst ég ekki geta gert þá kröfu að allir muni þetta eða sýni þessu tillit. Auðveldar líka töluvert að ég er ekki vegan held ég

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Já að ég ætti ekki að sleppa að borða kjöt af því ég er kona og fer á blæðingar og gæti fengið járnskort

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Netið aðallega, t.d. instagram og svo gúggla ég bara

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að ganga ekki um of á auðlindir jarðarinnar, taka akkúrat nóg þannig að það bitni ekki á öðrum manneskjum og lifverum

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fjölbreyttur og næringarríkur, litríkur, oft lífrænn og laus við aukaefni. Ekki unnar matvörur.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei ekkert í óspurðum fréttum en ef einhver spyr þá finnst mér gaman að ræða það

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já allavega í nálægri og fjarlægri framtíð

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Við hvað starfar þú?
Ég er kennari

Hver er menntun þín?
Framhaldsnám í háskóla
Aðfangategund