Þjóðhættir/ Svör

01.01.2020 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1993)
Ártal
Tímabil: 01.01.2020 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-696
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan og borða því ekki neinar dýraafurðir. Ég elda mestan part sjálf og er mikið af því grænmeti, tófu og pasta.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í tvö ár og 8 mánuði

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég er vegan vegna dýranna og umhverfisins. Ég byrjaði að spá í hvaða áhrif matarræðið mitt hefði á umhverfið fyrir um 4 árum og fór þá að minnka kjöt. Eftir að ég fór að kynna mér meira kjöt- og mjólkuriðnaðinn, hvaða áhrif það Jeffrey á jörðina okkar og dýrin þá ákvað ég að hætta allri þeirri neyslu og varð vegan. Ég hef lært mikið á vegferð minni, og þó ég sé ekki fullkomin þá reyni ég mitt besta í að finna allar þær bestu lausnir í matarræði sem fylgja veganisma og hafa góð áhrif á jörðina okkar.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Þetta hefur verið í umræðunni í mörg ár þetta byrjaði smám saman þegar ég tók út kjötið en svo hætti ég restinni (fisk og mjólkurvörum) á einum degi þar sem ég taldi mig ekki geta haldið áfram að borða það með góðri samvisku.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er að upplifa nýjan heim eftir að ég varð vegan. Ég t.d. byrjaði að elda miklu meira sjálf og pæla meira í þeirri næringu sem ég er að fá. Einnig er ég upplýstari um hvaðan maturinn minn kemur og hvaða áhrif hann hefur. Ég er miklu meira að fræða mig um næringu heldur en áður að ég varð vegan og matarræðið mitt er mun fjölbreyttara en fyrr

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég hef verið með magavandamál alla mína ævi sem hurfu eftir að ég varð vegan. Ég er mun léttari á mér andlega og líður betur eftir mat. Ég verð mun sjaldnar (eiginlega aldrei bara) svona ótrúlega södd eins og þegar ég borðaði kjöt og mjólkurvörur og auk þess fæ ég ekki lengur kláðaköst sem ég upplifði áður en ég breytti um mataræði. Ég hef tengst vinum í gegnum veganisma og er hluti af samfélagi á Íslandi sem deilir þekkingu, ráðum og almennt bara spjallar saman. Eldamennsku er orðið meira áhugamál hjá mér og elska ég núna að prófa nýja hluti og þróa rétti áfram, eitthvað sem mér þótti mjög óspennandi áður fyrr.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla mest í krónunni og vegan búðinni. Ég horfi mikið á verð og uppruna vörunnar. Ég reyni að kaupa minna plast, t.d ef sama varan er í boði í plasti og án plasts þá vel ég án plasts.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er fínt, mun betra eftir að vegan búðin kom til sögunnar og svo er vöruúrval að aukast með hverjum deginum!

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur er stór partur í mínu lífi, ég nýt þess að elda, bjóða fólki í mat og fara út að borða. Ég elska að prófa nýjar uppskriftir og þróa þær þannig þær verði að mínum uppskriftum.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Að það sé skemmtilegt að borða hann, til dæmis tacos, hrísgrjónavefjur eða sushi, maturinn sé bragðgóður og vel kryddaður. Það fer rosalega eftir mat hvernig hann á að vera kryddaður þannig það er erfitt að segja frá því í skrifuðu máli. Mér finnst gaman að blanda mjúkum mat með smá stökku hráefni, til dæmis hrísgrjónavefjur með fersku grænmeti. Mér finnst líka skipta máli að maturinn líti vel út, þar sem þú borðar líka með augunum. Þannig skemmtileg framsetning getur skipt miklu máli.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég reyni að velja eins ferska vöru og hægt er. Ég nota grænmeti mjög mikið og reyni þá frekar að búa til eitthvað öðruvísi úr því. Því færri hráefni sem eru í vöru því betri gæði er hún að mínu mati.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei alls ekki, sem hefur komið mér smá á óvart en það er svo sem búið að veganæsa flest allt sem mig dettur í hug. Auk þess er ekkert sem ég má ekki borða, ég vel það sjálf að borða það ekki.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda flesta daga heima, fer mögulega út að borða eða kaupum take away 1-2 í viku max. Ég þarf eldavél og það er gott að hafa ofn (en ekki nauðsyn eins og ég hef upplifað). Ég bý í litlu húsnæði og með lítið eldhús þannig ég hef lært að þarf alls ekki mikið pláss né nein sérstök tæki. Það eina sem ég elska og langar ekki að lifa án er flóari sem er meira svona nice to have en ekki need to have.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég hefði viljað sjá meiri fjölbreytni á veitingahúsum í Reykjavík. Mér finnst magnað hvað það er lítið í boði miðað við að það sé 2022. Ég get alltaf fundið eitthvað en mjög oft er það hamborgari sem er orðið smá þreytt í dag sem betur fer eru nokkrir veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreyttan mat eins og Loving Hut, Zumac, SÓMÓ matseljur og tokyo sushi.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Helst er það annað fólk og athugasemdir þeirra. Fáfræði virðist ennþá frekar mikil hjá öðru fólki og fer mikill tími hjá mér í að útskýra og meira að segja stundum verja það hjá öðru fólki. Ég sé aukna fræðslu sem betur fer skjóta upp kollinum út um allt en svo sem auðvelt að forðast hana ef þú vilt ekki heyra neytt um það.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý ein sem hefur auðveldað mér lífið til muna. Áður bjó ég heima og þá vorum við 4 fullorðnir og ég ein vegan. Það var oft smá vesen með að elda sér og oftast þinn matur settur á hakann (annað hvort þurfti ég að vera búin að elda og þá orðið kalt eða þurfti að vera að vesenast í kringum hina í litlu eldhúsi að reyna að elda fyrir mig líka ef við vorum ekki að elda saman). Sem betur fer hefur fjölskyldan mín verið mjög opin fyrir þessu og lært fullt og er til dæmis bara keypt haframjólk núna í staðinn fyrir kúamjólk. Auk þess hefur flest allt meðlæti verið gert vegan þegar við borðum saman sem auðveldar eldamennskuna til muna. En að búa ein og geta verið viss um að allt í eldhúsinu mínu sé vegan er mjög næs.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ja ég upplifi mikinn stuðning frá fjölskyldum og vinum sem mér finnst skipta máli. Það auðveldar öll mín samskipti við þau um mat og leyfir okkur að ræða málin og skipast a upplýsingum og fræðslu án þess að það sé vandamál. Einnig skiptir það máli í samfélagslegum aðstæðum, eins og þegar vinahópurinn fer út að borða. Það munar öllu að þurfa ekki alltaf að minna á að ég sé vegan og passa að það sé pottþétt til eitthvað sem ég get borðað. Það hjálpar mikið að eiga vini sem hugsa um það og passa að ég sé með í öllu.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Það hefur komið mér mikið á óvart hversu auðvelt er að veganæsa flesta hluti þannig ég hef lítið þurft að breyta því sem mig langaði að halda.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Það fer mjög mikið hvort það sé hjá nánum vinum og fjölskyldu eða einhverjum öðrum. Oftast er tekið tillit en það er meira í pálínuboðum sem ég hef þurft að koma með fleiri hluti til að vera viss um að ég fái pottþétt að borða. Ég hef oftast spurt þegar mér er boðið í mat hvort ég þurfi að koma með eitthvað til að vera viss. I fjölskylduboðum, eins og á jólunum, þá hef ég oftast komið með mat sjálf, þá er meðlætið gert vegan og ég kem með aðalrétt sjálf ef ég er sú eina sem er vegan.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Mér finnst ég vera meira samþykkt út af því að ég er kona, karlmenn eru oftar sá hópur sem tekur það fram að þeir myndu aldrei gera þetta. En núna nýlega finnst mér sú umræða vera að breytast og að það sé að opnast meira að karlmenn séu meðtækilegir fyrir því að þeir gætu líka verið vegan

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég fylgist með allskonar fólki á instagram og síðum þar. Helstu íslensku eru Hildur, GÓ Heilsa og Veganistur, auk þess sem Veganbúðin býður upp á alls kyns fræðslu. Einnig nýti ég oft verkefni tengd náminu mínu í að fræðast meira um veganisma og sjálfbærrni og þá les ég allskonar rannsóknir, fræðilegar greinar og bækur. Auk þess er ég mikil ahugamanneskja um heimsmarkmiðin og fylgi ýmsum síðum tengt þeim á samfélags miðlum og þar kemur fram margt tengt veganisma.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Sjálfbærni í mínu daglega lífi felst í því að skilja ekki eftir mitt vont fótspor, ég reyni að passa það að neysla mín hafi sem bestu áhrif á jörðina og umhverfið mitt. Það felst í því að vera ekki að kaupa óþarfa hluti, reyna að kaupa notað eða skipta við aðra ef það virkar. Ég forðast fast-fashion og almennt bara að kaupa án þess að hugsa og skoða hvort ég nái að finna aðra lausn en að kaupa nýtt.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Borða fjölbreytt, góðan mat án þess að setja sér neinar hömlur (það býr til neikvæða tenginu við mat) og velja það sem gefur mér góða orku og mér líður vel þegar ég er búin að borða.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Ja auðvitað, þetta er málefni sem varðar allt og alla. Ég sækist eftir því að bæta heiminn og að heimurinn verði áfram til þannig að allir geti lifað u satt og samlyndi og án þess að neysla okkar hafi slæm áhrif (eins og er að gerast í dag..) og því finnst mér mikilvægt að upplýsa aðra um það sem er að gerast og hvernig við getum bætt okkar hegðun. Ég nýti instagram til að deila upplýsingum og fróðleik og á oft í samræðum við vini og fjölskyldur þar sem við ræðum saman og deilum reynslu og upplýsingum sem við vitum.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já það mun ég svo sannarlega gera. Ég mun aldrei hætta að verða vegan

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei mjög flott

Við hvað starfar þú?
Ég er háskólanemi

Hver er menntun þín?
Ég er með bs í ferðamálafræði og er í master í markaðsfræði og viðburðarstjórnun
Aðfangategund