Þjóðhættir/ Svör

01.01.1991 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1946)
Ártal
Tímabil: 01.01.1991 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-693
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Morgunmatur: Hafragrautur með múslí annan daginn. Steikt egg, avacado og sveppir ásamt bláberjum hinn daginn. + kaffi lítill bolli Hádegisverður: Fiskur 3x í viku +meðlæti, (kartöflur, spergilkál, blómkál) kjúklingur/kalkúnn 2x í viku + meðlæti grænmetisfæði 2x í viku + kaffi lítill bolli Síðdegiskaffi: 1 brauðsneið með (spelt og súrdeig) +álegg grænmetispaté, tómatur og gúrka 1 hrökkbrau, te með stevíu Kvöldmatur: 1 brauðsneið eða bláber Það sem ég borða ekki er rautt kjöt og unnar matvörur, mjólkurvörur, hvítur sykur og hvítt hveiti.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Árið 1991 hætti ég að borða rautt kjöt og mjólkurvörur Árið 2021 hætti ég að borða hvítan sykur og hvítt hveiti

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Árið 1991 hafði ég verið með stöðuga magaverki árum saman. Ég hafði verið hjá ýmsum læknum í gegnum tíðina en fékk ekki bót minna meina, þar til ég hitti einn ágætan lækni sem sagði við mig: borðaðu það sem þér verður gott af og láttu hitt eiga sig. Þá fór ég að lesa mig til og komst að þeirri staðreind að kúamjólk er fyrir kálfa ekki mannfólkið, ég tók mjólkuvörurnar út og allt rautt kjöt þ.m.t. svínakjöt. Þá gerðist eftirfarandi: magaverkurinn hvarf eins og hendi væri veifað, því líkur munur.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Bækur frá USA, t.d. Fit for life eftir Harvey Dimond Breytingin skilað árangri strax.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég fór að kynna mér t.d. úr hvaða fæðutegund ég fengi næringarefni eins og kalk, þar sem aðég hætti neyslu mjólkuvara.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ekki spurning, magaverkurinn hvarf og líkamlegir hvillar eins og bólgur og verkir hér og þar, hafa minnkað til muna.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Bónus 2x í viku og Costco 1x í viku. Verðlag og uppruni vörunnar Já, ég skoða tilboð frá þessum verslunum. Já, upplýsingar á pakkningum. Nei, uppröðun í búðinni skiptir ekki máli

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Aðgengi er ágætt , verð að hafa bíl, næsta Bónusverslun er í 5 km fjarlægð

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég er áhugamaður um mat og mataræði, ég sé um eldamennskuna á heimilinu og þaarf því að skipuleggja hvað verður í matinn t.d á morgun og svo framvegis

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleiki, útlit og gott krydd.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Já.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei, ég er laus við magaverkinn.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Alltaf, ég s+e um eldamennskuna á heimilinu eins og áður sagði.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei, 2x í mánuði. Það er ekki vandamál að fá mat á veitingastöðum sem hentar mínu mataræði.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það er helst í einkasamkvæmum, það hefur lagast á undanförnu árum, þar sem fjölgar í Vegan hópnum.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum tvö í heimili, frúin er mjög sátt við þetta mataræði.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Nei, það hafa allir skilning á mínum aðstæðum.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég geri heimsins bestu Hnetusteik, svo það er ekki vandamál.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Í dag er þetta ekki vandamál, það er annarhver maður/kona sem eru ýmist Vegan, borða ekki rautt kjöt, borða ekki fisk og ekkert sem hefur augu, þar með talið kartöflur.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Ég á einstaka kunningja og vinnufélaga sem geta engan veginn skilið það að ég geti ekki borðað lambakjöt, sumir líta á það sem ,,landráð".

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Það er nú aðallega Google.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Sjálfbærni er víðfeðmt hugtak, getur átt við svo margt. Umhverfismál t.d. sem síðan tengist matvælaframleiðslu.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Lítið unnin matvæli, trefjarík fæða, ferskur fiskur. Hnetur ýmiskonar, ávextir og ferkst grænmeti.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei, ég geri það ekki að fyrra bragði, sumir eru með spurningar hvað varðar mataræði mitt, þá svara ég þeim með ánægju.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei

Við hvað starfar þú?
Er á eftirlaunum, starfa yfir sumarmánuðina við eftirlit á golfvöllum GKG.

Hver er menntun þín?
Gagnfræðaskóli og tónlistarmenntun.
Aðfangategund