Þjóðhættir/ Svör

12.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1939)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-692
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Te og ristað brauð að morgni. Í hádeginu brauðsneið með t.d. unnu kjötáleggi, lifrarkæfu, soðnum eggjum og reyktum silungi eða afgöngum frá fyrri máltíð úr fiski eða kjöti. Borða fisk tvisvar í viku svona cirka. Kartöflur með. Soðið grænmeti einsog gulrætur og fleira eða það sem er í grænmetisskúffunni með aðalréttinum. Súkkulaði í millimál, dökkt. Kanski köku ef einhver kemur í kaffi. Elda oftast á kvöldin. Et of mikið af sælgæti það sem eftir lifir dags yfir sjónvarpinu!

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Alltaf viðhaft reglusemi í matartímunum, vandist því sem barn. Var mikið í sveit, þar vandist maður á að hafa reglu á hlutunum, líka matartimum. Líklega gott fyrir meltinguna. Hef aldrei farið í neinar sveiflur með matinn en oft prófað eitt og annað, kínverska, indverska, meikóska rétti. Aldrei hent öllu út og skipt með látum yfir í eitthvað alveg nýtt. Hef stundum þurft að breyta til vegna barna eða barnabarna en þá er þa hnetuofnæmi eða laktósaviðbrögð see stýra því. Fjölbreytt sambland af grænmeti og kjöti eða fiski er heppilegt fyrir mig. Bý ein í dag og ræð hvað er í matinn!

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Svona sambland af öllu gerir lífið einfaldara og innkaupin með. Þá þarf ekki að vera á verði og hafna eða sækjast eftir ienhverju sem svo er kannski ekki til.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Engin skyndileg breyting í mínu mataræði.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Er ekki hæf til að svara þessu.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Líður vel með að borða lambakjöt reglulega, soðið eða steikt. Einhver enzím í því sem eiga vel við mig.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ýmist í Krónunni eða Bónus eða næsta fisksala í Hófgerðinu. Ekki um marga kosti að velja og sóoru keðjurnar ráða meira og meira um leið og útsölustöðum fækkar. Ekki gott fyrir yfirlýstan billausan lífsstíl. Geri stundum magnkaup og frysti mat í hæfilegum pökkum.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Stutt í fisksalann. Annað er lengra eða maður verður að versla í okurbúð (Krambúðin).

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur er undirstaða vellíðunar. Það er gaman að elda og svo er fátt eins róandi og að sjóða t.d. saltað, reykt folaldakjöt eða annað í nokkra tíma og vita af matnum gera sig og maður þarf eki að hafa neitt fyrir honum. Það hlýtur að flokkast undir velsæld að geta búið við slíkt.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Að hann er óskemmdur þegar á að fara að nota hann. Að rétturinn líti vel út og lykti vel og örfi meltingarkirtlana. Svo er ekki verra að manni verði gott af matnum.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Er ekki með neina sérstaka dynti, bara ferskt og gott.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Get ekki svarað þessu, et n ánast allt.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Hverjum degi. Ekkert sérstakt þarf.til.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nokkrum sinnum þegar það dettur í mig, stundum ein, stundum með börnum mínum eða vinum. Ligg aldrei lengi yfi rmatseðlinum, samveran er dýrmætari en svo að það eigi að eyða tíma í að spá í bakgrunn rétta eða þvíumlíkt. Samveran getur eyðilagst ef sífellt er verið að senda þjóninn að gá hvaðan silungurinn sé, hvaða krydd sé með þessu og hinu eða annað sem maður treystir að sé í lagi á vetiingastaðnum, nema hann sé því auðvirðilegri en hvað er maður að fara á svoleiðis staði?

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Engar fyrir mig, et þá bara eitthvað annað ef ég fæ ekki það sem ég hafði framleitt munnvatn fyrir.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Bý ein, hef stundum matargesti einn eða fleiri.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Á ekki við mig.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, hefðir gera það, hangikjöt á jólum, ákveðnar kökur á ákveðmnum afmælisdögum o.s.frv.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Á ekki við mig.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Á ekki við mig.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Er áskrifandi að danskri vefsíðu og baka stundum eftir henni, þar er bara almennur matur og slíkt.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að nota afganga, að kaupa skynsamleg inn. Rækta sínar eigin kartöflur ef hægt er.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Ekki steika og brasa of mikið, ekki úða í sig skyndifæði eða tilbúnum réttum of oft. Hollur matur er upprunalegur og fer í einstaklinginn.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Á ekki við mig.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Held áfrma að borða það sem mig langar í og get náð í.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Held ekki. Vona bara að aðgengi fólks að matvælum hvort sem er grænmeti eða annað verði áfram góður.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei, alls ekki.

Við hvað starfar þú?
Er komin á eftirlaun, vann við prent- og útgáfuiðnaðinn auk kennslu í þeim greinum.

Hver er menntun þín?
Iðnskóli, kennaramenntun, framhaldsnám í kennslugreinum verkmennta.
Aðfangategund