Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1959)
Ártal
Tímabil: 01.01.2018 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-690
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég (oftast eldar maðurinn minn) elda frá grunni, nota nánast aldrei tilbúin mat. Kaupi kannski tvisvar á ári tilbúið baunabuff. Ég nota þó stundum tilbúnar sósur út á þorskinn en það er samt ekki í hverri viku. Í mataræði mínu er mikið af grænmeti en minna af ávöxtum, eitthvað samt. Blárber út í súrmjólkina á morgnana, epli stundum í þrjúkaffinu og svo þurrkað mangó og trönuber milli mála. Ég borða bæði rautt kjöt, kjúkling og fisk. Ég sneiði hjá brauði, kexi og kökum úr mjöli (borða bara marengstertur) og öllu sem inniheldur laktósa. Ég nota fyrst og fremst laktósafríar vörur og skíri smjör. Af sætindum borða ég nær eingöngu suðusúkkulaði, fæ mér alltaf þrjá mola með kaffinu eftir hádegismat (þ.e. eina lengju). Helsta óhollusta mín er rauðvín sem ég drekk 2-3 í viku. Rauðvínið hefur hins vegar alltaf haft frekar góð áhrif á meltinguna, sem er slæm hjá mér en hefur skánað eftir að ég tók út allan mjölmat.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég varð laktósafrí árið 2018. Sumarið 2021 henti ég svo líka út mjölmat. Á tímabili tók ég út hveiti og sykur (man ekki hvenær það var).
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég komst að því smátt og smátt að ég þoldi ekki laktósa. Ég hélt alltaf að það væri eitthvað annað að hrjá mig. Fitu þoli ég heldur ekki vel og því reyni ég að borða rjóma aðallega um helgar. Var stundum að skvetta rjóma í mat hvundags. Nú nota ég hrísmjólk. Laktósafríi rjóminn fer sem sagt ekki alltaf vel í mig. Þegar ég fékk heiftarlega blöðrubólgu sumarið 2021 eftir langvinna og erfiða hægðatregðu ákvað ég að taka út mjölmat. Ég var nefnilega að stelast í súkkulaði með laktósa í "sumarfríinu" og var farin að borða frekar mikið brauð. Ég fann strax mun á mér enda hafði ég fundið mun þegar ég tók út hveitið um árið. Yfirleitt reyni ég að halda mig við þetta mataræði en núna um jólin (2021) var ég farin að borða töluvert af súkkulaði, sætindum og ostum og þá var eins og við manninn mælt ég fór að sofa verr. Næstu jól ætla ég sjálf að hefja framleiðslu á sætindum.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Mataræði mitt byggir á mínum eigin reynsluvísindum. Allar breytingar á því hafa átt sér stað þegar mér var farið að líða svo illa að við svo búið mátti ekki standa. Breytingar hafa því orðið frekar hratt.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég borða meira kjöt en áður. Ég hef alltaf borðað fisk a.m.k. tvisvar í viku en nú kemur það stundum fyrir að ég borða fisk þrisvar í viku. Ég hef fundið að kjöt, sérstaklega lambalærissneiðar, eru vænar við magann. Mér líður hreinlega vel eftir slíka máltíð, einkum ef ég borða bara steikt grænmeti með. Sonur minn og tengdadóttir borða ekki kjöt en þau borða fisk. Ég fann að ég hafði svolítið samviskubit yfir kjötátinu, enda alltaf verið að tala um áhrif þess á umhverfið. Núna borða ég kjöt samviskulaust og án þess að blikka auga. Ég kaupi allt kjöt af bændum í Skagafirði og blessa þá í hvert sinn sem ég fæ kjötið frá þeim.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Mér líður bæði betur líkamlega og andlega eftir að ég breytti mataræði mínu. Hægðatregðan gerði það að verkum að ég bólgnaði öll á höndum og fótum (sérstaklega um liðamót) þegar ég borðaði mikið brauð. Þó að fyrir komi að kerfið verði eitthvað tregt gerist ekkert slíkt eftir að ég hætti mjölátinu
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla ekki daglega. Ég fer einu sinni í viku í Krónuna (tek stundum tímabil þar sem ég versla við Bónus). Svo fer ég í Melabúðina eða fiskbúðina við Vegamót ef mig vantar fisk eða vanhagar um eitthvað sérstakt. Verð og gæði ráða því hvaða vörur enda í innkaupakörfunni. Maðurinn minn er sá hagsýni í hjónabandinu og hann lætur verð oftast ráða. Ég er veikari fyrir fíneríinu og hugsa meira um uppruna og upplýsingar á pakkningum. Ég þarf líka að passa upp á innihald vöru, að ekki sé mjöl í henni, en svo er mér líka meinilla við að miklum sykri sé akkað í hana.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég held ég verði að segja að það sé býsna gott.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur skiptir mig miklu. Ég er frekar mikil stofuplanta, þarf helst að borða á þriggja tíma fresti. Ef ég borða t.d. ekkert í þrjúkaffinu er ég komin með flensueinkenni kl. 17. Mér finnst gaman að elda og að prófa eitthvað nýtt, en enn meira gaman að láta góðan kokk elda ofan í mig (eins og manninn minn). Matmálstímar eru mér heilagir og ég vil borða í friði og spekt. Mér þykir hreint og beint gaman að borða. Ég geri mér hins vegar enga grein fyrir því hversu miklum tíma ég eyði í umhugsun um mat. Hún hlýtur þó að vera nokkur.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Góður matur er bæði bragðgóður, litskrúðugur og lyktar vel.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Mér finnst miklu skipta að matur sé ferskur, að maður ráði sjálfur hvernig bragðið af honum verður. Ég er ekki hrifin af mikið unninni matvöru með miklum viðbótarefnum. Mér finnst slíkur matur hreinlega ekki bragðgóður. Yfirleitt er eitt bragð ráðandi og frekt í slíkum matvælum og það þoli ég illa.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég sakna vitaskuld brauðs. Ég hreinlega elska brauð enda er það svo áberandi í matarumhverfi okkar.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Við eldum á hverjum degi og í eldhúsinu okkar er allt það sem við þurfum, pláss og áhöld.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer mjög sjaldan út að borða enda er erfitt fyrir mig að finna mataræði við hæfi á veitingastöðum. Kannski einu sinni í mánuði borða ég á Zorbían og svo förum við út að borða þegar einhver í fjölskyldunni á afmæli.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Alla jafna blasa fáar hindranir við mér í mínu daglega lífi hvað varðar mataræði mitt. Hins vegar gæti ég alveg hugsað mér að veitingastaðir og kaffihús mundu bjóða upp á laktósafríar veitingar og hafa meira af ávöxtum á boðstólum þannig að ég gæti sneitt hjá öllum mjölmat.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Á heimilinu búa þrjár manneskjur. Engin börn eru á heimilinu. Ég er sú eina sem borða ekki mjölmat en aðrir hafa líka orðið að taka upp laktósafrían lífsstíl (vandræðalaust). Mataræði mitt hefur þannig lítil áhrif á aðra fjölskyldumeðlimi enda er sá sem borðar ekki kjöt oft að heiman.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Fjölskyldumeðlimir hafa allir sýnt mér stuðning sem og vinir. Já, það gerir málin auðveldari.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, matarhefðir skipta mig miklu, einkum þær hefðir sem skapast hafa um jól. Það hvarflar t.d. ekki að mér að borða hangikjöt án laufabrauðs. Hangikjötið er svo dásamlega þungt og um kvöldið drekk ég rauðvín þannig að meltingin hefur ekki farið á hliðina við það.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég læt gestgjafa mína yfirleitt vita og þeir hafa brugðist mjög vel við. Ég hef vissulega gleymt því og þá tek ég bara "laktósatöflu" og drekk rauðvín samviskulaust.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei. Þeir feðgar hafa hins vegar bent á að það búi tvær þjóðir á heimilinu þegar ég sit, yfirstéttarkonan, með lærissneið í hádeginu en þeir með brauð.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég hef því miður ekki fundið neinar uppskriftir eða fróðleik sem taka sérstaklega mið af fólki eins og mér.
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Ég verð því miður að viðurkenna að ég hef ekki hugsað út í það. Þetta er eitt af þeim hugtökum sem ég tengi frekar við landbúnað eins og hann var stundaður á 19. öld og öldunum á undan.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Í mínum huga er heilsusamlegt mataræði það sem er ferskt og maður þolir án þess að fá ofnæmi. Ég er t.d. með svæsið nikkelofnæmi og get því ekki sett hvað sem er ofan í mig. Mér þykir t.d. grábölvað að geta helst ekki borðað hnetur, baunir og fræ.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Nei, en það er auðvitað mikilvægt að vinir og fjölskylda viti að ég borða hvorki mjöl- né mjólkurmat (nema laktósafrían).
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, annað er útlokað fyrir mig.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei.
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei.
Við hvað starfar þú?
Ég er sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Hver er menntun þín?
Ég lauk doktorsprófi árið 2011 frá íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands.

Spurningaskrá
Aðfangategund