Þjóðhættir/ Svör

11.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1992)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-684
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég reyni að hafa það eins "hreint" eða náttúrulegt og hægt er fyrst og fremst ég er ennþá að finna út hvað virkar best fyrir mig því ég hef allskonar væga sjúkdóma sem versna við slæmt matar æði eins og neyslu skyndibita og gos og nammi. Drekk helst bara vatn eða kaffi/te en einstaka sinnum náttúrulega safa úr ávöxtum en reyni að sleppa þeim. Mataræðið mitt er með einbeitingu á magann matur sem veldur ekki gasi eða verkjum "ketó" er það sem ég er næst því vera kannski í en er að undir búa mig að skipta yfir í "carnivore" eða mataræði sem er bara át dýra afurða og dýrakjöts.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Er kannski ekki aðhylltur en er að prufa hvort þetta muni hjálpa mér með: Mígrenni Kvíða/þynglyndi Eczem Bakflæði og magaverki
Aðfangategund