Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1977)
Ártal
Tímabil: 01.01.2011 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-678
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Er grænmetisæta. Borða hvorki kjöt né fisk. Borða dýraafurðir eins og mjólk, ost og egg. Reyni að sneiða hjá unnum matvörum og sykri. Ef hægt er versla ég íslenska framleiðslu eða lífrænt ræktað (erlent en helst íslenskt). Reyni að velja græna skráargatið! ef hægt er. Reyni að nýta allar matvörur og hafa matarsóun í lágmarki.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
í 11 ár.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Var búin að taka hreinsunarföstu til 3ja vikna í nokkur ár, alltaf að vori. Í þeirri föstu var sneitt framhjá hvítu hveiti, sykri, koffíni, öllum dýraafurðum. Vika 1 og 3 voru á ofangreindu fæði. Vika 2 var aðeins fljótandi fæði. Þessar 3 vikur einkenndust líka af hugleiðslu daglega. Alltaf leið mér svo vel eftir á. Í kjölfar fæðingar barns nr. 2 ákvað ég að halda þessu mataræði áfram. Sjá kafla 1 fyrir hvers lags mataræði ég aðhyllist í dag. Í kjölfarið komu siðferðislegar og umhverfisvænar áherslur inn hjá mér sem snerta mataræði mitt. Þetta mataræði hentar mér mjög vel og ég er afar sátt við það. Þá finnst mér mikilvægt að geta þess að sem barn var ég léleg kjötæta og valdi alltaf lítið magn af best steikta kjötinu. Ekkert blóð mátti sjást.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Fyrst byrjaði ég að skoða þetta í kringum árið 2006 þegar ég fór að stunda árlegar vorföstur. Sjá hér að ofan nánari lýsingu.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er sannfærð um að umhverfislegir þættir vega meira hjá mér núna í takt við tíðarandann. Viðhorf mitt er ávallt jákvætt þegar ég hugsa til þess að ég er ekki að borða dauð dýr.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Andlega líðanin er umfram allt léttari. Mér líður vel með það að vera grænmetisæta. Líkamleg líðan er léttari magi. Áhugamálin snerta nú í auknum mæli velferð dýra og umhverfismál. Þá ber að geta þess að aukinn kostur og úrval fyrir grænmetisætur gerir okkur kleift að vera ekki hornreka t.d. í mötuneytum eða veislum. Auk færri spurninga fólks um það að vera grænmetisæta gerir það að verkum að áreitið er minna.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Dags daglega versla ég í helstu matvöruverslunum. Einstaka sinnum (ca 1x í mánuði) fer ég í sérverslanir (eins og Veganbúðina og asískar matvöruverslanir). Vikuáætlunin
matarplan vikunnar ræður því hvaða vörur ég kaupi. Já, verðlag skiptir máli og uppruni. Mér finnst mikilvægt að vita hvaðan varan kemur sem ég kaupi auk þess sem ég reyni að versla matvörur sem búnar eru til sem næst mér. Já, markaðssetning og auglýsingar hafa áhrif og ég kaupi oft nýjar vörur sem hafa verið auglýstar sem mér lýst vel á til þess að prófa. Upplýsingar á pakkanum les ég iðulega ef ég er að kaupa vöru í fyrsta sinn. Og ég er viss um að uppröðun í búðinni hafi nokkur áhrif þrátt fyrir að ég líti alltaf vel í kringum mig og vel oft vörur sem eru í neðstu hillu
ekki í sjónhæð.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott aðgengi þar sem ég bý í Reykjavík.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur skiptir mig miklu máli. Mér finnst mikilvægt að orkan sem ég innbyrði sé góð og að maturinn sem ég borða sé lagaður af alúð og kærleika. Ég hugsa nokkuð um mat, þá sérstaklega að elda hann þar sem mér finnst mjög gaman að lesa uppskriftir, aðlaga þær að mínu mataræði og finna nýtt bragð í eldhúsinu mínu. Ég er mun meira fyrir það að elda minn mat heldur en að kaupa hann tilbúinn. Mér finnst maturinn minn yfirleitt mjög góður.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Bragðið verður að vera rétt samsett og ilma vel. Áferðin skiptir mig ekki öllu máli. Mér finnst gaman að leggja fallega á borð (þó það sé mánudagur) og bera matinn fram á huggulegan hátt. Logandi kerti í eldhúsinu við matargerð finnst mér notalegt sem fer síðan á eldhúsborðið þegar snætt er. Ferskleiki skiptir mig líka máli, t.d. í salati.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Gæða matvæli eru þau matvæli sem ég elda frá grunni. Já, ég vel ferskt grænmeti, sneiði hjá unninni matvöru og reyni að halda viðbættum efnum í lágmarki.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Alls ekki.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda daglega. Er með allt til alls í eldhúsinu.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Það er orðið mun auðveldara að fá grænmetisfæði þegar ég kaupi tilbúinn mat á veitingastöðum í seinni tíð. Núorðið bjóða allir veitingastaðir sem ég hef farið á einhvers konar gænmetisútfærslu af réttum sínum ef ekki eru grænmetisréttir þá þegar á matseðli. Þarna hef ég merkt miklar breytingar til batnaðar á sl. 3 árum. Ég veit ekki hvað er oft, en mér finnst ég ekki fara oft út að borða. Kannski 4x á ári á veitingastaði til þess að setjast inn og eiga notalega stund. En ég kaupi tilbúinn mat til þess að taka með heim nokkuð oftar.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Hef ekki rekist á neinar hindranir. Veit ekki hvað myndi gera mér það enn auðveldara að fara eftir grænmetismataræði.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý ein með hundi. Aðra hvora viku bætast 2 börn (10 og 13 ára) við hópinn. Hundurinn er kjötæta. Þegar börnin eru hjá mér borða þau sama fæði og ég (grænmetisfæði). Þegar börnin eru á hinu heimili sínu (aðra hvora viku) og í skóla borða þau almennt skólafæði og kjöt og fisk. Almennt truflar þetta ekki heimilislífið, en þó heyri ég eitt barnið segja heima hjá mér að það ætli að vera grænmetisæta. Það á eftir að koma í ljós.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Núorðið vita þetta flest sem eru mér næst. Oftast þegar ég er boðin til fjölskyldu minni ég á að ég er grænmetisæta og bið þau að láta mig vita ef ég ætti að koma með eitthvað. Já, fæ óbeinan stuðning þegar tekið er tillit til mataræðis míns.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei, matarhefðir skipta mig ekki miklu máli. En t.d. klassíska jólameðlætið á enn sess í minni eldamennsku, þ.e. grænmetisréttirnir.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Hef bara upplifað jákvæðni frá gestgjöfum. Sér í lagi þegar ég læt vita að ég er grænmetisæta, þá segist ég oft geta komið með mitt eigið. Það endar sjaldnast þannig og gestgjafar útbúa vanalega einhvern grænmetisrétt. Í standandi veislum finnst mér þó oft vanta að merkja rétti ef það er blandað veisluborð (þ.e. blandað af grænmetisréttum og kjötréttum).
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Á ekki við þar sem tenglarnir eru svo margir. En google vísar mér oft leiðina í fyrstu.
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Sjálfbærni í daglegu lífi mínu er mín tilraun til þess að gera sem mest úr því sem ég hef og velja að nýta kosningarétt minn (peninga) til góðra verka og styðja umhverfisvæna framleiðendur.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er sá matur sem fólk hefur aðgang að og veitir næga næringu hverju sinni. Í draumasamfélagi, þar sem enginn ójöfnuður ríkti væri hollur matur lífrænn, óunninn, með litlu
engu magni af sykri og hvítu hveiti og umhverfisvænn.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Nei, mataræði mitt er mitt mál. Geri ráð fyrir að fullorðið fólk í mínum hring taki sjálfstæðar og upplýstar ákvarðanir. Ef fólk spyr mig, þá svara ég og tek umræðuna ef áhugi er fyrir hendi og get þá bara lýst minni upplifun af grænmetisfæði. Fræði jú börnin mín um mataræði mitt til þess að þau geti tekið betur upplýstari ákvarðanir varðandi sitt mataræði síðar.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já. Nema ég gerist vegan. Aldrei að vita hvort eða hvenær það gerist
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei.
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Helst til löng spurningaskrá :) Mætti hafa fyrirframgefið val í sumum spurningum = minna pikk á tölvuna, fljótari úrvinnsla.
Við hvað starfar þú?
Vinn í heilbrigðisgeiranum.
Hver er menntun þín?
Hæsta menntunarstig mitt er M.A. frá H.Í.

Spurningaskrá
Aðfangategund