Þjóðhættir/ Svör

01.01.2012 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1956)
Ártal
Tímabil: 01.01.2012 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-676
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Stunda hlutaföstu, þ.e. ég fasta tvo daga í viku en borða allan mat þess á milli, og borða fyrstu máltíð dagsins þá daga sem ég fasta ekki í hádeginu, og þá síðustu fyrir klukkan 19.00 á kvöldin.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
10 ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég sá þátt í sjónvarpi, þar sem þessu mataræði var lýst, og hvaða áhrif það hefði á líkamsþyngd og heilsu almennt. Mín reynsla af þessu mataræði er sú að þetta hefur góð áhrif á mína heilsu almennt, og virkar vel við þyngdarstjórnun, og þar sem mér hættir til að þyngjast, þá hef ég haldið mig við þetta mataræði.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég sá þátt í sjónvarpi, þar sem þessu mataræði var lýst, og ég ákvað að taka þetta mataræði upp með stuttum fyrirvara.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég legg meiri áherslu á grænmeti og fisk, og forðast kolvetnaríka fæðu, eins og t.d. brauð og sykraðar matvörur.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Mér líður betur almennt talað andlega og líkamlega, og mér gengur betur að halda mig nálægt kjörþyngd, sem endurspeglast í auknu sjálfstrausti.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla í Bónus, og kaupi það sem mig vantar, án þess að verð, uppruni, auglýsingar eða uppröðun í búðinni skipti mig nokkru máli.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott, þar sem stutt er verslanamiðstöð í mínu hverfi.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef ekki mikinn áhuga á mat eða matargerð. Konan mín sér að mestu um matseld á mínu heimili, og matur er ekki mikilvægur í mínu lífi.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Það sem einkennir góðan mat er gott hráefni,matreitt af fagmennsku og girnilega borið fram.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Grænmeti og fiskur þarf að vera fersk, og hvað varðar kjötvörur, þá falla óunnin matvæli best að mínu mataræði.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég sakna stundum mjólkurafurða eins og t.d. skyrs og súrmjólkur, sem ég nota minna nú en áður, þar sem ég borða aldrei morgunmat.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda mjög sjaldan mat heima hjá mér, og geri engar kröfur um aðstöðu áhöld eða tæki, nema þá að mér finnst nauðsynlegt að hafa aðgang að örbylgjuofni í eldhúsinu.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer út að borða einu sinni eða tvisvar í mánuði að jafnaði, og geri engar sérstakar kröfur um veitingastað eða hvaða réttir eru á matseðli, þannig að það er auðvelt fyrir mig að panta rétti sem henta mínu mataræði.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Helstu hindranir eru þessi félagslegi þáttur, að geta ekki borðað með vinnufélögum og fjölskyldu þá daga sem ég fasta. Meira framboð af tilbúnum fiskréttum myndi gera mér auðveldara fyrir að fylgja eftir mínu mataræði.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Það búa þrír á mínu heimili, þar af einn unglingur. Það vinna allir úti, þannig að virka daga er kvöldmatur eina sameiginlega máltíð fjölskyldunnar. Ég er sá eini í fjölskyldunni sem stundar hlutaföstu, og aðrir fjöskyldumeðlimir sýna því fullan skilning.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Flestir í mínu nærumhverfi sýna mínu mataræði fullan skilning, og eru áhugasamir um það hvað felst í þessum lífsstíl og almennt mjög hvetjandi og umburðarlyndir.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Gamlar matarhefðir eins og t.d.þorramatur og kæst skata skipta mig mjög miklu máli, og þegar kemur að matarhefðum fjölskyldunnar um jól og áramót, þá hef ég þurft að aðlaga mig að breyttum áherslum og tíðaranda.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Engar sérstakar ráðstafanir með veislur og matarboð.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Ég hef ekki tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði mínu út frá kyni mínu.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Sæki upplýsingar og fróðleik og innblástur í vefsíður, umfjöllun og greinar á netinu.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Í mínum huga felst í sjálfbærni í daglegu lífi, sá skilningur að vera sjálfum sér nægur með flesta hluti, þar með talið ræktun, landbúnaðarframleiðslu og aðföng til daglegrar notkunar.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Heilsusamlegu mataræði er í mínum huga hollur og næringaríkur matu á borð við grænmeti, ávexti fisk og óunna kjötvöru.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Mér finnst ekki mikilvægt að fræða aðra um mitt mataræði, og finnst það vera alfarið mitt einkamál. Það er samt nauðsynlegt að upplýsa þá sem standa manni næst þ.e. fjölskylduna um mataræðið og þann lífsstíl sem því fylgir til þess að forðast misskilning.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Ég tek einn dag í einu, og sé fyrir mér að þetta mataræði endist mér ekki fram á efri ár.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Ekki að öðru leyti en því að mér finnst þetta full langur listi spurninga svona í einni skrá.

Við hvað starfar þú?
Rafvirkjameistari og rafhönnuður, og starfa sem rafhönnuður.

Hver er menntun þín?
Raffræðingur A+B (Iðnmenntun, meistaraskóli og tækniskólinn í Reykjavík).
Aðfangategund