Þjóðhættir/ Svör

01.01.1938 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1938)
Ártal
Tímabil: 01.01.1938 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-675
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Verandi 83 ára og búandi ein reyni ég að gera matinn eins einfaldan og kostur er kýs að sjá um hann sjálf þótt mér standi til boða að borða í mötuneyti í Borgum í Spönginni. Ástæðan er sú að ég vandist "hollu" eða segja má skynsamlegu mataræði frá barnæsku og hef haldið mig við það. Foreldrar mínir einkum móðir má segja að hafi verið framvarðarsveit hvað varðaði heilusamlegt matarræði og grænmetisnotkun og efalítið átti námsdvöld hennar í Danmörku á leikfimisskóla þátt í því. Móðir hennar hafði kostgangara í Reykjavík og þær bjuggu í námunda við Miðbæjarskólann meðan Spánska veikin geysaði og amk. tvær eldri systur hennar hjúkruðu þar og það hafði líka áhrif á hana ekki síst að gæta hreinlætis í hvívetna. Morgunmatur en nú venjulega lífrænn jógúrt með berjum og einhverju útákasti td. ísl höfrum. Miðdegismatur - reyni að borða síður brauð og þá þarf að elda kannski egg og hafa með salati. Kaffi tek ég oft í Borgum en ekki endilega neitt með því. Kvöldmat reyni ég að hafa einfaldan kjöt (ekki unnið) fisk eða stundum aðeins grænmeti og núna nota ég meira grænmeti heldur en kornvörur og þá meðtalið hrísgrjón og önnur korn. Á sumrin reyni ég enn að rækta svolítið grænmeti og eiga þá fram á haust eða rækta grænspírur inni. Ég fylgi engum sérstökum reglum en aðhyllist kenningar Slow Food hreyfingarinnar að best sé að aðföng séu úr heimahéraði og matarmenning skuli höfð í heiðri. Ég hef skrifað bókina Ætigarðurinn og þar koma þessar skoðanir mínar í ljós.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ástæðan er sú að ég vandist "hollu" eða segja má skynsamlegu mataræði frá barnæsku og hef haldið mig við það mest part. Foreldrar mínir einkum móðir mín má segja að hafi verið framvarðarsveit hvað varðaði heilusamlegt matarræði og grænmetisnotkun og efalítið átti námsdvöld hennar í Danmörku á leikfimisskóla þátt í því. Móðir hennar Auður Gísladóttir hafði kostgangara í Reykjavík og þær bjuggu í námunda við Miðbæjarskólann meðan Spánska veikin geysaði og amk. tvær eldri systur hennar hjúkruðu þar og það hafði líka áhrif á hana ekki síst að gæta hreinlætis í hvívetna. Foreldrar mínir fylgdjust með stofnun Náttúrulækningafélagsins og umræðunni um auka grænmetisneyslu. Þau áttu bækur t.d. um jafnvægi og sundurgreiningu einstakra matartegunda - sú kenning skýtur upp höfðinu við og við og móðir mín var góður kokkur svo þetta var allt fremur áhugavert og skaut rótum hjá mér. Ég hef því fylgst með þróun hinna ýmsu kenninga varðandi mataræði alla mína æfi.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef nú þegar skýrt frá því. Af nútímakenningum heyrði ég fyrst talað um Micro - macro - bjó þa í Ameríku og það hefur verið um 1960 að vakning var að verða þar í sambandi við mat. Ég man fyrstu auglýsingarnar sem birtust - þær voru í þessa átt: Þú ert vandur að vali á smurolíu fyrir bílinn þinn en hugsar ekkert um hvaða olíu (fitu) þú lætur ofan í þig sjálfan. Þessi kenning var til held ég í Japan eftir kjarnorkuvána og snerist um að nærsast á fæðu sem var sem nálgast að vera í Yin - Yang jafnvægi og forðast hinar sem voru yst á skalanum Yin eða Yang svo sem rautt kjöt, kaffi og sykur. Smám saman fjölgaði kenningum og ein var man ég að skemmtileg. Ef þú áttir á vandræðum með meltinguna þó var ráð að spyrja sig - hvaðan kom hún amma. Það er að rússneskur innflytjandi hefi erft allt öðrivísi líkama og meltingarstarfsemi heldur en t.d. Brasili eða svartur Afríkubúi. Maður velur það skemmtilegast og vitlegasta fyrir sjálfan sig úr þeim kenningum sem koma fram.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Eins og ég segi - fyrst og fremst er að borða ekki og mikið og ekki of flókið og halda í heiðri eigin matarmenningu - rækta sjálfur er kostur er. Líkt heyrir helst undir Slow Food og efalítið hef ég fyrst heyrt um það í útvarpinu.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
nei allt frá bernsku hefur þetta verið mitt leiðarljós en það hefur verið ákaflega erfitt stundum að innprennta það hjá kynslóðunum sem komu, börnum og barnabörnum en þó tekist að einhverju leyti.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Manni líður hreinlega illa af sykuráti, fitnar af of miklu brauðáti. Ég virðist þola mjólk ennþá en nota aðeins lífræna. Matartilfinning mín er þó háð árstíðum - get ekki borðað sjávarfisk á sumrin og finnst erfitt að borða mikið grænt salat yfir háveturinn. Eftir áramót eða svona í febrúar fer hins vegar að kvikna löngun í spírur og micro - grænt. Rótarávextirnir finnst mér betri á veturna. Ég tíni enn villijurtir úti t.d. fíflablöð þar sem hundar ná ekki til og bílvegir eru ekki nálægir og einhverja jurtir tíni ég líka í te.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Reyni að forðast plastumbúðir og nálgast lífræna fæðu ef þess er kostur - þarf ekki nú að hugsa um verðlag en þurfti þess lengst af ævinnar. Uppruni skiptir mig máli og einnig að borða nokkuð árstíðabundið. Ég lít því gjarnan eftir upprunalandi. Markaðssetning skiptir mig máli en hefur ekki endilega úrslit á hvað ég kaupi. Ef ég veit um misnotkun fólks við framleiðslu, sem er allt of sjaldan rannsakað eða á það minnst, þá forðast ég þá fæðu og eins er orðspor um eiturefnanotkun er vituð eða talin. Telji ég mig vita um vandaða framleiðslu vel ég hikaust þá vöru. Upplýsingar á pakkningu skipta máli núorðið. Ég reyni að vera sjálfstæð í vali og láta t.d. uppröðun ekki hafa of mikil áhrif.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Alveg þokkalegur - mjög fín fjölskyldurekin fiskbúið _ Bónus og Hagkaup hlið við hlið. En eins og ég segi rækta ég enn svolítið til að fá alveg nýtt, lífrænt grænt en það er hægt að fá miklu meira úrval í búðunum heldur en mér finnst skynsamlegt að vera að selja. Mjög framandi matartegunir og ávextir finnst mér tilheyra sínum eigin menningarheimi og með ferðalögum gætum við notið þeirra þar. En þótt mér finnist einfaldleikinn skynsamlegur þá ætlast ég ekki til að öllum öðrum finnist það líka.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hafði mikinn áhuga á matargerð en aðal áhugamál mitt er forn matargerð í okkar eigin heimshluta allt frá steinöld og ég safna bókum um það efni og þá helst frá Þjóðminjasafninu danska en þeir gefa út rit og sinna þessu. Ég hef, eins og fram hefur komið, minni áhuga á að vera að elda austurlenskan mat eða eitthvað framandi - heldur njóta þess í eigin heimkynnum. Ég hef lifandi áhuga á t.d. því sem Eggert Ólafsson skrifaði um matargerð og eins rannsóknum Hallgerðar Gísladóttur um íslenska matargerð á öldum áður. Smáréttir hafa hjálpað okkur til að gera meira sinnt og endurvakið ýmsilegt gamalt og smálegt hvað þetta varðar. Varðandi erlenda matargerð hallast ég þó mest að Frökkum sem fyrirmynd.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Allt þetta en einkum og sérílagi að hráefnið sé gott. Ef það er verður maturinn aldrei leiðigjarn þótt tilbreyting sé lítil hverja árstíð fyrir sig. Það skiptir máli að fjölskyldan sameinist við máltíðina og hún sé ótrufluð og því einmitt að ræða aldrei leiðinlega, viðkvæma eða erfiða hluti við matarborðið - það er samverustund og hún á að sameina og næra. Fallega framborinn matur eykur á ánægjuna. Hins vegar er tilgangslaust að pína nokkura manneskju til að borða það sem hún ekki hefur lyst á. Maturinn á að vera til ánægju úr því við búum í landi þar sem er ekki skortur. Og fyrir það má vel þakka.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferkleiki fyrst og fremst eða þá nærgætnisleg geymsla svo sem frysting eða þurrkun. Mjög fersk og góð hráefni eru venjulega þannig að þau þarf ekki að krydda - þau hafa sitt eigið bragð. Þessi mikla kryddmenning stafar að hluta af því að fæðan er ekki fersk.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég held upp gamlan og íslenskan mat - innan marka þó. Nú vitum við að saltreiðin mýveska og laufabrauðið eru ekki endilega góð fyrir meltinguna en þá er spurning að fá sér aðeins bragð sem forrétt og því er ég hrifin af franskri kokkamennsku því hún leyfir slíkt. Sama gildir t.d.um hangikét - reyni ekki að fá mér "væna flís" en það þýðir ekki að smásneið sem hreyfir við bragðlaukum og minningum sé í banni.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég reyni að elda allt heima og held svolítið upp á Marokkanska leirdiska með loki til að elda í - þótt ég vilji vera þjóðleg. Eins hef ég gefið í nefndri bók uppskrift að mat fyrir einn. Taka stóran disk og raða á hann ýmsu smálegu úr ísskápnum - mest ólíku grænmeti, ólífum, tómötum osti eða kotasælu en hita allaf eitthvað með - hrísgrjón, kartöflur, kjötbita eða fisk ... Þarf bara einn pott. Enfalt en skemmtilegt.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer stundum út að borða einkum með barnabörnum. Oft er það bara kaffihús. En við reynum að finna góða þá helst grænmetisstaði með salötum sem ég nenni ekki að gera sjálf. Slíkir eru ekki á hverju strái en við eltum þá uppi.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Mér finnst ekkert erfitt í því sambandi nema ég sakna eins og margt fullorðið fólk að fá ekki upprunaskyr og að kjötborðið finnst ekki lengur nema í Hafnarfirði og Melabúðinni svo kjötskammtar eru of stórir fyrir einstaklinga og sambandið hefur rofnað við sláturmeistarann og orðið vélrænt. Því borða ég t.d. minna kjöt.
Aðfangategund