Þjóðhættir/ Svör

01.01.2018 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1992)
Ártal
Tímabil: 01.01.2018 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-669
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er grænmetisæta. Ég hef að auki tekið skref til þess að minnka neyslu á mjólkurafurðurm og eggjum. Það þýðir að ég nota haframjólk í staðinn fyrir venjulega mjólk, nota chiafræ eða eplamauk í stað eggja í uppskriftir þegar það er hægt, nota jurtaolíu í staðinn fyrir smjör o.s.frv. Undantekningin á því hefur helst verið bráðinn ostur í eldamennsku.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í um 4 ár. Í fyrstu hætti ég að borða kjöt og varð pescatarian. Eftir svona 3 mánuði af því hætti ég að borða fisk og egg að mestu. Hægt og rólega hætti ég svo að borða flestar mjólkurafurðir og tók loks fisk alveg úr mataræðinu.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ástæðan var aðallega til þess að vera umhverfisvænni. Ég legg mikla áherslu á umhverfisvernd og umhverfisvænan lífstíl, minni neyslu og endurnýtingu/endurvinnslu og þessi ákvörðun var partur af lífstílsbreytingu í þá átt. Mataræðið er því hluti af stærri mynd þar sem ég reyni að lifa eftir ákveðnum gildum.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst um grænmetisfæði en veganismi hefur auðvitað verið miklu meira í umræðunni á síðustu árum. Ég vann með fólki sem var vegan og kynntist því hvernig það borðaði, sá að það var ekki bara að borða salat og hnetur og lærði um gildin og hugmyndirnar á bak við mataræðið. Svo fór ég að kynna mér hamfarahlýnun, kjötiðnaðinn og læra meira um umhverfisvernd. Að lokum var mér augljóst að ég gæti ekki stutt við kjötiðnaðinn og að ég þyrfti að gera mitt til þess að sporna gegn hlýnun jarðar.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nei í raun ekki. Ef til vill bara að því leyti að ég hef reynt að minnka stöðugt magnið af mjólkurafurðum í mataræðinu.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Nei. Ég hef alltaf verið vinstrisinnuð og er mikill umhverfisverndarsinni. Breytt mataræði er bara partur af því að læra meira um kjötiðnað, vatnsnotkun í landbúnaði, neikvæð áhrif stórfyrirtækja á umhverfið, plastmengun, hlýnun jarðar o.s.frv.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Haframjólk, brauð, baunir, ávexti og grænmeti, kaffi, bökunarvörur, dósamat og sósur, frosnar vegan vörur eins og vegan hakk, falafel bollur og oumph. Ég reyni að kaupa matvöru sem er innlend og ekki pökkuð í plast, og vel þá frekar vörur pakkaðar í pappír, pappa, ál eða gler. Ég kaupi ekki erlent grænmeti nema það sé í lausu eða í pappaöskjum eða slíku. Ég kaupi íslenskt grænmeti þó það sé í plasti af því að það er mjög sjaldan sem íslenskt grænmeti er selt í lausu. Ég kaupi frekar lífrænt ef það er hægt. Ég reyni þegar ég get að versla í búðum sem hafa umhverfisvæna stefnu og reyna að selja lífrænt og plastlaust eða án umbúða, eins og Frú Lauga, Veganbúðin eða Matarbúðin. Ég er tilbúin til þess að eyða meiri pening í það að kaupa plastlaus, umhverfisvænt og lífrænt af því að það er mér mjög mikilvægt.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er eins gott og það verður held ég. Ég bý miðsvæðis í Reykjavík þannig að það er stutt fyrir mig að fara í sérverslanir og auðvelt fyrir mig að velja vegan vörur og umhverfisvænni kost í stórmörkuðum.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mjög mikinn áhuga á matargerð. Ég elda og baka mikið frá grunni. Ég hugsa mikið um mat, hef gaman af því að prófa nýjar uppskriftir og bjóða fólki í mat.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Sterkt bragð, ríkt bragð. Sæt sætindi og bragmiklir seðjandi eldaðir réttir.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Lífrænar vörur eru að mínu mati gæðavörur, fair trade vörur og íslensk umhverfisvæn framleiðsla. Svo þarf bara að huga að því að borða næringaríkan mat, hvort sem hann er ferskur, frosinn eða hvað.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Já, ég sakna sjávarrétta Mér hefur alltaf fundist þeir mjög góðir en það er ekki til neinar vegan útgáfur af sjávarréttum. Það er til vegan beikon og hakk og allt það en ekkert sem kemur í staðinn fyrir rækjur eða túnfisk.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda heima um 5-6 sinnum í viku. Ég þarf bara að eiga allt þetta venjulega, potta og pönnur og nóg pláss í frystinum.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei ekki oft, kannski 1-2 í mánuði. Ég fer eiginlega bara hvert sem er, langflestir staðir eru með allavega 2-3 grænmetisrétti. Mér finnst sjaldan erfitt að panta mat, hef helst lent í því í litlum plássum úti á landi að það eina sem er í boði fyrir mig sé bara franskar eða eitthvað. Það er ekki alveg jafn auðvelt ef maður er að leita að vegan mat samt.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Mér dettur engar sérstakar hindranir í hug. Kannski helst að það er frekar lítið úrval af tilbúnum samlokum og öðru nesti í búðum, það eru yfirleitt ekki nema tveir valmöguleikar af vefjum og samlokum fyrir mig í búðum á meðan aðrir hafa meira úrval.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum tvö á heimilinu, ég og maki. Hann fer ekki eftir sama mataræði en þegar við eldum saman er það alltaf grænmetisfæði.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég upplifi stuðning frá fjölskyldu og vinum, fólk borðar almennt minna kjöt þessa dagana og það er yfirleitt ekkert mál að ég borði ekki kjöt. Ég bjó úti á landi í 3 ár og upplifði þar mjög lítinn skilning, en það skipti mig svosem engu máli.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já. Ég hef reynt að aðlaga hefðir að mataræði og það hefur verið mjög auðvelt. T.d. skipta út hamborgarahrygg fyrir vegan wellington en borða allt sama meðlæti og aðrir og fá mér hangioumph í staðinn fyrir hangikjöt.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Yfirleitt býður fólk upp á grænmetisfæði ef það veit að það er von á grænmetisætum í mat. Ég hef samt lent í því að þurfa að borða bara meðlætið. Ég lenti einu sinni í því á Soroptimistafundi á Blönduósi að það var bara boðið upp á kjötsúpu, þá endaði ég á því að borða bara nokkrar sneiðar af snittubrauði. Ég fór líka á þorrablót á Skagaströnd þar sem það var ekki gert ráð fyrir því að fólk borðaði ekki dýraafurðir, en ég vissi alveg út í hvað ég var að fara og var búin að borða heima áður en ég fór af stað. Nokkrir samstarfsfélagar, menn á sjötugsaldri, voru á því þorrablóti og gerðu grín að því að ég hafi ekki fundið neitt að borða. Þeir meintu það ekki endilega illa, en þeir áttu ansi erfitt með að skilja mataræðið.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei, svo sem ekki. Ég hef meira upplifað að viðhorf hafi tengst aldri mínum og stöðu, komment eins og "menntaelítan", "lattelepjandi", "sérfræðingur að sunnan" og þar fram eftir götum.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Síður sem bjóða upp á mikið úrval af vegan og grænmetisréttum, t.d. Gulur, rauður, grænn og salt (http://www.grgs.is), veganistur.is (http://www.veganistur.is/), http://www.pinterest.com. Uppskriftabækur eins og heilsuréttir fjölskyldunnar.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að borða umhverfisvænar afurðir, helst íslenskar og helst frá smábændum eða bara úr garðinum ef það er hægt. Að molta og endurnýta og henda ekki mat.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Næringarríkur og lífrænn matur. Hollur matur er seðjandi, nærandi og án aukaefna. Dæmi um hollan mat eru baunir, hafrar, grænmeti, ávextir og hnetur. Heilsusamlegt mataræði er að blanda þessum hráefnum saman í bragðgóða rétti og hafa gott jafnvægi á því hvaða næringarefni líkaminn fær.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Ekkert frekar en fólk vill fræðast. Skemmtilegast er bara að bjóða fólki í mat og sýna því að það þarf ekki að vera kjöt í matnum til þess að hann sé góður. Aðallega lendi ég bara í því að fólk er hugmyndasnautt um hvað ég borði í kvöldmat af því að við erum alin upp við það að kjöt er miðpunktur heitra rétta. Ég er helst að gefa fólki sem spyr um þetta dæmi um hentuga eða fljótlega grænmetisrétti.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Mér finnst mjög ólíklegt að ég byrji aftur að borða kjöt en ég er opin fyrir því að borða fisk sem er veiddur og unnin á ábyrgan og umhverfisvænan hátt. Enn sem komið er er þó mjög lítil áhersla lögð á að neytandi viti hvaðan sjávarafurðir koma.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Þetta er ansi langt og ítarlegt, tók lengri tíma en ég bjóst við.

Við hvað starfar þú?
Skjalavörslu

Hver er menntun þín?
Sagnfræði
Aðfangategund