Þjóðhættir/ Svör

01.01.2021 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1954)
Ártal
Tímabil: 01.01.2021 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-663
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Almenn mataræði - sleppi í dag morgunverði á virkum dögum - borða hádegisverð og kvöldverð og lítið þar á milli

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Síðan í haust - en ekki fylgt neinum sérstökum stefnum í gegnum tíðina

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Er að reyna að létt mig - er of þungur

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Kom frá lækni - nú á síðustu haustmánuðum

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Óbreytt

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Enga sérstakar breytingar - líkamsþyngd minnkar lítið

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Kaupi að öllu jöfnu í minni hverfisverslun. Það sem ratar í körfuna er það sem á að nota í matseld hvert og eitt sinn og þær almennu neysluvörur sem eru notaðar. Verð er ekki almennur ákvarðanakvarði. Uppruni hefur í einhverjum tilvikum áhrif, en markaðssetning og auglýsingar ekki. Kem í verslunina að öllu jöfnu með að gera ákveðin innkaup og læt það ganga eftir.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott aðgengi

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef mikinn áhuga á matargerð og er mitt helsta áhugamál og matur því mikilvægur - að jafnaði fer ein klst. í þetta á dag.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Gott bragð, jafnvægi í upplifun, litur, þ.e. hafa mismunandi liti á því sem fer á diskinn - ferskleiki og hollusta.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Vinna matinn að mestu frá grunni. Ferskleiki mjög mikilvægur og nota mjög sjaldan unnin matvæli - nema það sé einhver sérstök vinnsluaðferð sem gerir vöruna sérstaka.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Lítil breyting - ekki innihald, meira spurning um að draga úr magni

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda að öllu jöfnu á hverjum degi. Allt er til staðar, hráefni og hjálparefni og almenn eldhústæki

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer tiltölulega sjaldan á veitingahús - auðvelt að fá mat sem passar á veitingahúsum

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Engar

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Erum tvö í heimili - börn uppkomin. Samhugur um mataræði

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ekkert sérstaklega í umræðunni

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Fjölbreytileiki er það sem skiptir máli

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Engin áhrif

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Las áður matreiðslubækur, en er í dag kominn með þá færni sem dugar fyrir það sem ég vil gera

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Leiði ekki hugann sérstaklega að þessu

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Ferskur, hollur og fjölbreytilegur matur

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Að óbreyttu

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei

Við hvað starfar þú?
Stjórnandi í opinberri stofnun

Hver er menntun þín?
Meistarapróf úr háskóla
Aðfangategund