Þjóðhættir/ Svör

01.01.2018 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1979)
Ártal
Tímabil: 01.01.2018 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-660
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða ekki kjöt - en hins vegar fisk og mjólkurafurðir.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Fjögur ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Dýravelferð og umhverfisverndarsjónarmið.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Hef vitað af þessu lengi. Íhugaði um nokkurt skeið að hætta að borða kjöt en þegar ákvörðunin kom þá tók ég hana skjótt.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er almennt meðvitaðri um hvað ég borða, huga meðvitaðra um samsetningu og næringarefni. Til dæmis úr hverju ég fæ járn.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Meltingin er léttari.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Mikið í Krónunni, en líka víðar svo sem Nettó, Bónus og Melabúðinni. Verðlag skiptir mig ekki mjög miklu máli en þó nokkru. Reyni frekar að kaupa innlenda framleiðslu. Markaðssetning hefur ekki mikil áhrif á mig. Ég skoða gjarnan upplýsingar á pakkningum upp á næringarinnihald. Uppröðun skiptir smá máli.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Nokkuð gott, í seinni tíð hefur framboð á kjötlausum vörum aukist töluvert hérlendis.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Töluverðan áhuga. Matur skipar töluverðan sess í mínu lífi sem og eldamennska. Ég eyði kannski klukkutíma á dag. Hef gaman af að prófa uppskriftir, finna upp mínar eigin og aðlaga uppskriftir og gera tilraunir.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Sterkt bragð og fjölbreytt. Einföld áferð.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Helst fersk og með litlum viðbættum efnum.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Svona þrisvar í viku. Þarf ekki sérstök áhöld, bara vanaleg eldhústæki og áhöld.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Já töluvert. Á alls konar staði en er sérlega hrifinn af austurlenskum. Líka á skyndibitastaði svo sem KFC. Oftast auðvelt að finna eitthvað sem ég get borðað.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Fáar hindranir.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý einn.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Almennt stuðning og skilning.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég hef þurft að aðlaga hefðirnar svo sem í kringum jólin þar sem hefðir snúast mikið um kjöt.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Þarf að láta vita að ég borða ekki kjöt og viðhorfið gagnvart því er alltaf jákvætt. Hjálpar til að ég er opinn fyrir fiskmeti.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Á netinu. Gúgla það sem ég vil finna hverju sinni.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að lágmarka úrgangsmyndun. Velja innlenda framleiðslu og umhverfisvæna.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Rétt samsetning á næringarefnum. Ekki mikið af unnum matvælum.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei í raun ekki. Finnst að fólk geti hæglega ákveðið sig sjálft í þessum efnum.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei.

Við hvað starfar þú?
Hugbúnaðarsérfræðingur

Hver er menntun þín?
B.Sc. gráða í tölvunarfræði. Meistaragráða í verkefnastjórnun (MPM).
Aðfangategund