Þjóðhættir/ Svör

07.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1941)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-659
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Veit ekki hvernig skilgreina skal matarræði mitt en það sem einkennir það helst er barátta gegn matarsóun, nýti allt sem fyrirfinnst í ísskápnum og kaupi gjarnan það sem stórverslanir bjóða sem Gegn matarsóun á góðu verði. Borða mikið af ávöxtum, helst lífrænum, mikið af grænmeti, helst lífrænu, baunir, lindur, korn eins og kúskús, bulgur, kínóa, farin. Elda gjarnan hverskyns fisk síður kjöt en borða það sé mér boðið upp á það. Allar mjólkurvörur, en þó mest ag mjólk ,skyr, jóghurt, rjóma og osta. Morgunmatur minn samanstendur af niðurbrytjuðum ávöxtum, morgunkorni (lífrænt musli hreint, helst frá MUNA (áður Himnesk hollusta), hveitikím, hampfræum og chiafræum. Út á abmjólk fituskert. Af þessu verð ég svo södd að ég þarf nánast ekkert fyrr en um kvöldmatarleitið. Fæ mér þó oft einhvern millibita með kaffinu síðdegis. Bara það sem hendi er næst. Kvöldmatur er gjarnan margvíslegt steikt grænmeti (brokkkál, blómkál, gulrætur, rófur, hvítkál) með kúskús, kínóa eða annarri slíkri korntegund. Einhver fiskur, soðinn, steiktur eða ofnbakaður með kartöflum er a.m.k. tvisvar í viku, kjöt sjaldnar, helst aðeins þegar ég býð fólki á mat og þá helst samansoðnir réttir eins og Osso buko eða lambaskankar. Með öllum mat er svo hrásalat, grænt salat, tómatar, gúrkur, laukur, hvítlaukur, oft ólífur og/eða ostur, sítrónusafi og góð olífuolía.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég ólst upp við einfaldan mat, soðinn fisk og kartöflur, grauta og mjólkursúpur, kjöt aðeins á sunnudögum og þá aðeins lambakjöt. Á námsárum mínum erlendis lærði ég að fleira er matur en feitt kjet. Þá kom grænmeti sterkt inn í mataræðið og enn meiri sparnaður en ég hafði alist upp við. Hrásalatið kom inn sem nauðsynlegt meðlæti og yfir sumarnánuði allt heimaræktað og hef ég haldið þeim sið af fremsta megni. Lífræni vinkillinn bættist ekki við fyrr en upp úr 1990. Umræða um loftslagsmál á þessari öld hefur svo haft afgerandi áhrif og gert það að verkum að ég hef markvisst dregið úr neyslu dýraafurða (að mjólkurafurðum undanskildum) og þess gætt að velja helst vörur sem ræktaðar eru eða framleiddar hér á landi eða sem næst okkur. Ég hef forðast eftir bestu getu allt sem ræktað er á landsvæðum þar sem áður voru regnskógar og eða vörur sem vitað er að ræktaðar eða framleiddar eru við ómannskjulegar aðstæður verkafólks og með óhemju magni af skordýraeitri. Þannig kaupi ég hvorki ananas eða avókado nema séu vottuð lífræn.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ástæðurnar rakti ég í svörum við spurningum síðasta kafla. Þrátt fyrir jafnt andlega sem líkamlega leti mína reyni ég eftir bestu getu að vera ábyrgur neytandi og lifa samkvæmt því. Veit hinsvegar að á þvi sviði gæti ég bætt mig. Hef mikinn áhuga á matvælum sem ég afla mér sjálf,nýti allt sem náttúran gefur mér. Rækta grænmeti, tíni sveppi og ber, fer í fjöru og tíni þörunga, s.s. söl, klóblöðku, beltisþara, þangskegg.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Í fyrri svörum mínum rakti ég þessa breytingu. Í fyrstu uppeldi sem kannski mótaðist af skorti, svipað má segja um áhrif námsáranna, í störfum mínum erlendis kynntist ég matarhefðum ólíkra þjóða og tileinkaði mér ýmislegt. Á tíunda áratugnum kynntist ég lífrænni framleiðslu, fékkst við vottun lífrænna afurða og gerði mér grein fyrirskaðsemi óhóflegrar notkunar eiturefna og ilbúinns áburðar. Krafa 21. aldarinnar um sjálfbærni hefur síðan kennt mér að hugsa ævinlega um gróðurhusalofttegundir sem falla til svo og um landnotkun, orkuþörf, vinnu og tíma sem eytt er í framleiðslu þess sem sóað er. Sem sagt mataræði mitt hefur mótast af skorti, erlendum áhrifum, umhverfisvernd og loftslagsmálum en ekki síst af áhuga á hollustu og hefur verið að mótast allt mitt líf.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Nýjar upplýsingar um illa meðferð á náttúrunni, s.s. eyðing regnskóga, einræktun eins og erfðabreytt soyja á þúsundum ferkílómetra í Bandaríkjunum og víðar, landflæmi sem stórveldin brjóta undir sig til ræktunar á dýrafóðri, með skefjalausri notkun skordýraeiturs jafnt í Afríku sem Asíu kallar á viðbrögð. Afleiðingar þessarar stefnu um allan heim er gífurleg ógn gegn líffræðilegum fjölbreytileika og vinnur svo sannarlega gegn árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni. Þessii staða hefur aðeins styrkt mig í því að neyta meira af lífrænt ræktuðum afurðum og minnka enn afurðir úr dýraríki.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Matarræði mitt endurspeglar áhugamál mín, hegðun og líðan. Meðal áhugamála er líferni sem dregur úr kolefnisspori mínu, lífræn ræktun, ábyrg fiskveiðistjornun, bætt meðferð afla, útivist og náttúruvernd og ekki síst að nýta gæði náttúrunnar s.s. sveppi, ber, þörunga og ýmsar kryddjurtir. Hygg að mataræðið eigi þátt í góðri heilsu og ásættanlegu formi miðað við aldur.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla ekki daglega.fer tvisvar í viku til Hafnarfjarðar og versla því gjarnan í Fjarðarkaupum. Ef ekki fer ég ca einu sinni í viku út á Granda og versla í þeim fjórum stórverslunum sem þar eru. Sé í boði tilboð gegn matarsóun kaupi ég slíkt og læt það sem í körfuna kemur ráða því hvað verður í matinn. Verðlag skiptir máli en þó gæði með tilliti til umhverfismála enn frekar. Uppruni skiptir milku máli, þvi styttra ferðalag vörunnar því líklegra að hún lendi í körfunni. Reyni að vera á varðbergi gagnvart markaðssetningu og auglýsingum en viðurkenni að slíkt hefur áhrif á mig. Les allar innihlaldslýsingar á umbúðum, kanna hvort pálmaolía hefur verið komið við sögu við framleiðsluna, kaupi þá ekki. Skoða næringarefnalýsingu, læt mig varða næringaefnasamsetningu. Uppröðun hefur án efa áhrif á mig.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Kom fram í svari mínu hér fyrir framan. Fjarðarkaup er verslun með afar gott úrval lífrænna matvæla, með fjölbreytt kjöt og fiskborð þar sem hægt er að kaupa kjöt og fisk eftir vigt. Á Granda er auðvelt að fara á milli verslana í leit eftir vöru sem ekki fæst einni þeirra en kannski í þeirri næstu. Og fáist viðkomandi ekki úti á Granda má gefa sér að hún sé til í Melabúðinni. Og er síðan vel staðsett búandi í Reykjavík, stutt að fara út í náttúruna að tína sveppi og ber og í fjöru til að afla mér þörunga.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef gríðarlegan áhuga á mat og matargerð. Á hundruð bóka með mataruppskriftum, fer líklegast aldrei eftir uppskrift en fæ hugmyndir og prófa mig áfram. Matarhefðir fjarlægra þjóða finnast mér spennandi, þær segja mér svo mikið um menningu þeirra. Eyði skelfilega miklum tíma í matarinnkaup og þó fyrst og fremst í eldamennsku. Veit ekki hve miklum tíma en aðeins morgunmatur tekur eilífðartíma hjá mér. Held ég gæti ekki útbúið og borðað morgunmat á styttri tíma en hálftíma. Þá fer náttúrulega mikill tími í að sækja sér mat í náttúruna og ganga frá honum. ´Nú orðið frysti ég ber og nota eftir hendinni, Sveppi frysti ég en þurrka einnig ásamt þörungum. Prófa mig áfram, mistekst oft og man aldrei hvað gekk vel og hvað illa. Hálfgert tilraunaeldhús.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Útlit skiptir miklu máli! Hollusta líka en hún má ekki ganga á bragð. Fjölbreytni lífsnauðsynleg. Matur þarf eiginlega að búa að öllum þessum einkennum. Fallegur, hollur, bragðgóður, lokkandi lykt, góður undir tönn. Af reynslu get ég staðhæft að með þörungum sem krydd náist einstök bragðgæði.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferskleiki grænmetis og fisks ræður gæðum míns mataræðis.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Það sem hefur horfið úr mataræði mínu hefur farið vegna ess að mig langaði ekki í það lengur

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Daglega. Þarf að eiga lauk, hvítlauk, góða matarolíu, ferskt grænmeti og svo kornmeti, helst lífrænt. Bretti, hníf, pönnu og eldavél

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Afar sjaldan Jómfrúin, indverskir matstaðir, grískir matstaðir Borða í sjálfu sér allt sem að kjafti kemur, langar hinsvegar ekki í kjöt. Hef alltaf með mér box til að taka afganga með mér heim

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Breyti matarræði í takt við framboð

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Nýlega orðin ekkja. Þurfti að taka tillit til óska mannsins míns sem var kjötæta og hafði lítinn áhuga á grænmeti.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Hef setið undir margvíslegri gagnrýni sem er kærkomin, gefur mér tilefni til að reka áróður í loftslagsmálum og náttúruvernd.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Matarhefðir skipta máli og þykir mér sjálfsagt að taka tillit til þeirra þótt þær gangi þvert á matarræði mitt. Dæmi: Hreindýrasteik og lambakjöt á hátíðum

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Í kaffiboðum býð ég ávallt upp á brauð og osta með kökum, jafnvel eitthvert grænmeti,. Hafi ég tíma baka ég gjarnan brauð. Í matarboðum reyni ég að hafa fjölbreytt framboð, eitthvað fyrir alla. Samt oft eithvað sem þykir of framandi en gefur mér þá tækifæri til að segja frá og útskýra. Fólk prófar en er greinilega ekki hrifið af einhverju sen það þekkir ekki. Nefni t.d. rétti með þörungum. Gestir mínir kurteisir og bragða, gefa kananski ekki álit en fá sér ekki að borða.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Sæki í eiginn sarp, hundruð bóka með fróðleik um mat, næringu, matarræði, þjóðlega matarhefð jafnt innlenda sem erlenda svo og uppskriftir af öllum gerðum. Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna og því sem skifað er á þeim vettvangi um matvælaframleiðslu Leita á vefnum og fæ reglulega upplýsingar og ábendingar t.d. frá Mark Bittman https://www.markbittman.com og uppskriftir á . eatsmarter@eatsmarter.de.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Minnka vistspor mitt. Það geri ég með því að nota bílinn minn helst aðeins fyrir ferðir út á land. Geng og nota strætó í Reykjavík. Fer sparlega með vatn og rafmagn, læt ljós ekki loga að óþörfu. Borða sáralíið kjöt. Ætti að draga út neyslu mjólkurvara, vistspor nautgriparæktar óheyrilegt, gífurleg landnotkun, vatnsnotkun, metangasútblástur og svo mætti lengi telja.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er fyrst og fremst fjölbreyttur matur, trefjaríkur, sem uppfyllir þarfir líkamans hvað snertir orkuefni (prótein, fitu og kolvetni), vítamín og önnur snefilefni. Dæmi um hollan mat eru þörungar. Þér innihalda allt sem líkaminn þarfnast. En að sjálfsögðu væri afar leiðigjarnt að tönnlast eingöngu á þörungum. Og heilsusamt mataræði þarf að ppfylla kröfur um sjálfbærni.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Finnst nauðsynlegt að miðla upplýsingum um þátt matvælaframleiðslu í vexti CO2 í andrúmslofti og hlýnun jarðar. Og þar af leiðandi um nauðsyn að huga að sjáflbærni við matvælaframleiðslu, sporna við mengun af völdum eiturefna og stuðla að fjölbreytileika lífvera.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Bind vonir við að komast lengra, komast nær sjálfbærni.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Þjóðmijasafnið á hrós skilið fyrir þetta verkefni. Vona að það eigi eftir að vekja fólk til umhugsunar.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei

Við hvað starfar þú?
Gamalmenni sem fæst við nýsköpun á sviði þörungaræktar.

Hver er menntun þín?
Dipl Ing.
Aðfangategund