Þjóðhættir/ Svör

05.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1974)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-650
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég aðhyllist ekkert mataræði sem hefur sérstakt heiti, er ekki vegan, grænmetisæta eða slíkt. Ef eitthvað þá mætti tala um Miðjarðarhafsmataræði en við borðum mikið af grænmeti með matnum okkar. En ég fylgi þeirri stefnu að borða sem hreinastan mat, með sem minnst af aukaefnum, geri sem mest frá grunni sjálf, t.d. sósur, soð og fleira slíkt. Ég nota t.d. lítið af kryddblöndum og mun meira hrein krydd og blanda þá sjálf. Ég borða mikið grænmeti, hef grænmeti í hverjum rétti og alltaf salat eða niðurskorið ferskt grænmeti með matnum. Ég reyni að kaupa sem mest innlent grænmeti og lífrænt og og fylgja árstíðunum. Ég reyni að velja vörur eftir upprunalandi, forðast t.d. að kaupa grænmeti sem er flutt yfir hálfan hnöttinn, en kaupi alveg hefðbundna vöru ef annað er ekki til. Við fjölskyldan tókum þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að draga úr kjötáti og gera allar máltíðir kjötléttari ef það er kjöt í matinn. VIð erum oft með grænmetisrétti og gerum t.d. súpur, núðlur og kássur þar sem dregið er úr kjötmagninu og grænmeti, baunir eða annað koma í staðinn. Um leið og við drógum úr kjötmagni þá fjölguðum við líka fiskimáltíðum. En engar reglur eru stífar og ef það hentar vegna anna eða annarra aðstæðna þá borðum við alveg hálftilbúna rétti eða skyndimat. Annað, ég er bæði með laktósaóþol og óþol fyrir öllum lauk og sleppi því úr mínu matarræði. Það er m.a. skýringin á því að ég forðast kryddblöndur og tilbúinn mat því í honum flestum er laukduft og fleiri aukaefni sem fara illa í mig.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég ólst upp við svipaðar pælingar hjá foreldrum mínum þar sem flest var gert frá grunni, innlent keypt eins og hægt var og ekki mikið af tilbúnum mat. Upp úr tvítugu þurfti ég að taka til í mataræðinu vegna meltingarinnar og tók þá út sem mest af aukaefnum og lauk. Síðar þurfti ég líka að taka út mjólkurvörur. Og þar sem úrvalið var lítið á Íslandi þá þurfti man hreinlega að útbúa allan mat sjálf. En svo bjó ég um tíma í Evrópu og kynntist þá þessari menningu að fara á markaðinn og kaupa grænmeti beint af bóndanum, fylgja árstíðunum og borða meira grænmeti.
Aðfangategund