Þjóðhættir/ Svör

01.01.2019 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1986)
Ártal
Tímabil: 01.01.2019 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-647
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða um 80% af heilnæmri plöntufæðu (Whole Food plant based) og elda því mestan mat alveg frá grunni. Ég reyni líka alltaf að velja lífrænt en því miður mætti úrvalið vera betra. Á hverjum degi borðum við fjölskyldan vel af grænmeti, ávexti, baunum eða tófú og heilkorna matvöru.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í þrjú og hálft ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Pabbi minn greindist með krabbamein og þá fór ég að lesa niðurstöður rannsókna um sjúkdóma og lífstíl. Eftir að hafa séð niðurstöður um að mataræði sem einkennist af miklu dýraafurðaráti leiðir til alls konar lífstílssjúkdóma að þá var ekki aftur snúið. Eftir það fór ég að þora að kynna mér veganisma sem enn þá frekar styrkti mig og fjölskylduna í viðhorfum okkar til mataræðis, um heilsu, dýrin og jörðina okkar.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Með því að fara sjálf að skoða niðurstöður rannsókna, ég var á hverjum degi í þrjá mánuði að skoða rannsóknir. Síðan eftir þessa þrjá mánuði þá breyttist algjörlega lífstíllinn en myndi segja smám saman á þessum þremur mánuðum með lestrinum.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Bara mjög mikið. Viðhorf til matar, dýra, jarðarinnar hafa breyst. Það urðu líka lífstílsbreytingar, mér fór að líða miklu betur í líkamanum og gat því stundað meiri hreyfingu en áður.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég upplifi breytingu á öllum þessum þáttum. Mér finnst líðan mín miklu betri og ég í meira jafnvægi, mér líður betur líkamlega og eftir breytinguna er loksins kominn stöðugleiki en fyrir breytinguna var blóðsykurinn minn í ójafnvægi og ég var að díla við járnskort. Þetta hefur ekki verið vesen eftir að ég tók út allar dýraafurðir. Ég borða fjölbreyttari mat í dag en ég gerði, bragðskynið vissulega breyttist og á jákvæðan hátt. Ég nýt matar miklu betur í dag. Ég er með miklu meiri orku í dag sem lýsir sér í að áhugamálin mín eru að miklu leyti hreyfing.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég reyni að velja árstíðabundin matvæli, ég reyni að velja lífrænt og íslenskt. Það sem ratar í körfuna er grænmeti, ávextir, baunir, heilkorna matvæli og jurtamjólk. Ég reyni alltaf að velja trefjarík brauð og forðast vörur sem innihalda alls konar e efni.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég myndi segja mjög gott. Ég bý á höfuðborgarsvæðinu og get því fengið allt sem ég þarf í Vegan búðinni. Ég myndi vilja auka lífrænt grænmeti og ávexti. Ég sakna þess mjög að geta fengið mér vínber til dæmis.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mjög mikinn áhuga og það er klárlega eitt af mínum áhugamálum að matbúa, skoða uppskriftir og prufa nýtt. Það er oft djókað mikið í fjölskyldunni að Hrefna sé á staðnum sínum, eldhúsinu. Matur er mjög mikilvægur í lífinu mínu og fjölskyldunnar minnar. Það skiptir mig miklu máli að dóttir mín fái góða næringu. Eftir að við breyttum um mataræði þá hætti hún að þurfa að fá astma púst daglega og bakflæðilyf. Einnig varð hún sjaldnar veik.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Öll þessi atriði skipta máli, það þarf að passa upp á bragðið. Alltaf að nota matvæli í hverja máltíð sem inniheldur umami bragð - eins og laukur, hvítlaukur, soja sósa. Það þarf líka að passa upp á sýruna í matnum. Útlit skiptir gríðarlega miklu máli þvi að við borðum með augunum.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Fersk matvæli eða frosin. Ég kaupi til dæmis oft frosið lífrænt grænmeti og ávexti sem er mjög gott því að matvælin eru fryst þegar þau innihalda bestu gæðin næringarlega séð.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei, ég bara get ekki sagt það. Fyrst um sinn fannst mér erfitt að fá mér ekki kúaost. Núna finnst mér svo vond lykt af kúaosti eins og lyktarskynið sé að segja mér að ég eigi ekki að borða þetta.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda 4-5x í viku. Geri stóra skammta til að eiga alltaf í hádegismat og líka stundum í kvöldmat. Ég þarf að eiga góð áhöld, eins og góðan blandara og matvinnsluvél. Uppáhalds græjan mín er instant pottur en það hefur sparað mér mikinn tíma í eldhúsinu. Það er líka mjög mikilvægt fyrir mig að eiga stórt og rúmgott eldhús.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Kannski ekki oft en mér finnst mjög gaman að fara út að borða. Uppáhalds staðurinn minn er Mama. Síðan fer ég líka alveg á veitingastaði þar sem er góður vegan matur en þar fæ ég ekki Whole food plant based mat. Mér finnst ekki erfitt að fara út að borða því ég get alltaf valið vegan.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Stundum væri yndislegt að geta keypt tilbúinn Whole Food plant based mat í matvöruverslunum til að spara mér tíma.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum þrjú og við borðum bara grænkeramat hér heima. Maðurinn minn borðar stundum dýraafurðir en það tengist þá félagslegum viðburðum. Hann á erfitt með að taka ekki þátt í því sem er boðið upp á og vera með sérþarfir. Síðan eru tveir hundar sem borða mikið grænkerafæði og hefur heilsa þeirra batnað mikið eftir þá breytingu.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég hef upplifað mikla gagnrýni og fordóma frá fjölskyldu. Meira að segja skömm foreldra yfir því hvernig ég borða. Ég upplifi góðan stuðning frá vinum og margir hafa breytt mataræði sínu og borða alfarið grænkerafæði eða hafa aukið grænkeramat. Mér hefur þótt mjög erfitt að takast á við gagnrýni og neikvæðum kommentum.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, ég hef aðlagað hátíðarmat að okkar mataræði og elska hátíðarmatinn okkar.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég hef verið mjög heppin að vinir elda þá vegan mat handa mér. Frænka mín hefur líka gert það þegar hún hefur boðið okkur. Ég elda sjálf þegar ég er með fjölskyldunni minni. Mér finnst ég almennt bara fá gott viðmót. Frá fjölskyldunni hafa komið athugasemdir að þau geti ekki eldað svona mat. Það hefur samt verið að breytast undanfarið og þau eru farin að matbúa oftar eitthvað fyrir okkur.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Mikið á YouTube. https://youtube.com/c/TheWholeFoodPlantBasedCookingShow https://youtube.com/c/thehappypear https://youtube.com/c/JaneEsselstyn https://youtube.com/c/Simnettnutrition Vefsíða með fullt af rannsóknarniðurstöðum: https://nutritionfacts.org/ Síðan á ég fullt af uppskriftarbókum til dæmis frá Dr.Greger, China study, Forks over knives og fleiri.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Búandi í borg þá myndi ég kalla sjálfbærni að geta keypt sem mest af íslensku grænmeti, ávöxtum og kornmeti. Mér finnst galið að ríkið setji ekki meira fjármagn til grænmetisbænda því að við höfum heldur betur mikla möguleika á að framleiða mikinn mat hér. Mér finnst alltaf áberandi á haustinn hvað íslenska grænmetið klárast alltaf fljótt.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Borða sem mest af heilnæmri plöntufæðu. Ekki mikið unnin matvæli, borða til dæmis ólífuna en ekki ólífuolíu, borða appelsínuna en ekki appelsínusafa. Þannig að við fáum alla næringuna úr matnum en ekki hluta þess. Elda mest frá grunni og passa upp á að borða baunir á hverjum degi. Einnig þarf að passa upp á að tala d vítamín og b12. Svo finnst mér líka mikilvægt að við njótum matarins, gefum okkur tíma (sem er oft erfitt í þessu hraða samfélagi), séum sveigjanleg og getum leyft okkur stundum að til dæmis að borða mat sem er minna heilsusamlegur eins og þegar við förum út að borða.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Mér fannst mikilvægt að fræða fjölskylduna mína því ég vildi að þau lifi við góða heilsu en ég hef hætt því í dag. Ásetningurinn minn var góður en ég áttaði mig á því að fólk verður að fara sjálft í sína vegferð og það er mikilvægara að þessi fræðsla komi frá öðrum fagaðilum eina og til dæmis læknum. Því miður virðast læknar á Íslandi ekki vera að skoða niðurstöður rannsókna á mataræði og áhrif á sjúkdóma.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Ég mun alltaf borða svona því ég finn hvað mér líður vel.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Niðurstöður rannsókna sýna að fólk sem borðar grænkerafæði er almennt minna þunglynt og kvíðið. Þarmaflóran virðist skipta þarna miklu máli og einnig koma aðrar breytur inn þar sem lífstíll fólks verður almennt betri eins og til dæmis meiri hreyfing og útivist. Við vitum líka út frá niðurstöðum rannsókna að það hefur jákvæð áhrif á andlega líðan að vera úti í náttúrunni og styrkir þarmaflóruna.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei.

Við hvað starfar þú?
Ég er sálfræðingur.

Hver er menntun þín?
Cand.psych í Sálfræði.
Aðfangategund