Þjóðhættir/ Svör

01.01.2016 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1986)
Ártal
Tímabil: 01.01.2016 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-646
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan. Opinber skilgreining er að forðast eins og mögulegt og praktískt er, alla hagnýtingu á og grimmd gagnvart dýrum, hvort sem er í formi neyslu dýra og dýraafurða, klæðnaðar, skemmtunar eða annars. Þetta þýðir að ég borða engin dýr né dýraafurðir, þ.e. ekki kjöt (hvorki spendýr, fugla né fiska), ekki egg, ekki mjólkurafurðir, ekki hunang, ekki gelatín, engin litarefni unnin úr skordýrum o.s.frv. Ég er hlynntari whole-foods plant based diet og neyti því t.d. kjötlíkis sparlega og legg meiri áherslu á baunir og kinóa sem próteingjafa. Hafragrautur með fræjum og ávöxtum í morgumat er nokkuð staðlað en hádegisverður og kvöldverður er fjölbreyttur. Ávextir eða hrökkkex í millimál. Nasla stundum á kvöldin, snakk eða dökkt súkkulaði.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Síðan í júlí 2016.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég horfði á Cowspiracy jólin 2015, þar sem talað er um umhverfisáhrif dýraafurða. Las mér meira til um málefnið og tók ákvörðunina í júlí 2016 að taka út allar dýraafurðir úr mataræðinu. Á um 8 vikum hrundi veggurinn milli "dýr sem einstaklingar og dýr sem matur" veggurinn og siðferðisþátturinn kikkaði inn. Það er fyrst og fremst sá þáttur sem gerir það að verkum að ég held mig við þetta. Sú staðreynd að umhverfissporið er lægra er mikill bónus ásamt aukinni vellíðan. Var og er t.d. með síðgreint mjólkuróþol og bólumyndun minnkaði til muna eftir að ég hætti allri neyslu á mjólkurafurðum. Einnig er mataræðið mun léttara í maga og það er auðveldara að halda kjörþyngd.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ætli man hafi ekki vitað af þessu í einhvern tíma og fussað og sveiað, svona eins og tíðkast. Nágrannar buðu mér og manninum mínum í mat í Svíþjóð. Þau voru vegan. Það er svona fyrsta fræið sem var sáð. Var farin að hugsa töluvert um dýravelferð eftir að við fluttum frá Svíþjóð 2014. Keypti lausagönguegg og svínakjöt beint frá bónda. Cowspiracy var held ég síðasta hálmstráið og eins og fyrr segir tók breytingin 6 mánuði.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já, úr því að hafa umhverfisáhrifin í forgrunni og í að hafa dýraréttindi í forgrunni. Hvaða mataræðið sjálft varðar, þá hefur það ekki mikið breyst. Ég hef svo sem aldrei verið hrifin af ruslfræði, þannig að ég hef alltaf verið svona í hollari kantinum.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Minni bólumyndun, betri melting, betri andleg líðan (gjörðir í samræmi við gildi), bragðskyn er öðruvísi - búin að venjast alls konar eins og t.d. vegan ostum, hráu tófúi, sojamjólk o.fr.v, fer ekki dýragarða eina neina skemmtun sem bitnar á dýrum en hef verið sjálfboðaliði í dýraathvarfi, ef ég ætla að fá mér vín á veitingastað gúggla ég hvort þau séu vegan, ég eyði meiri tíma í að kaupa mér skó eða útivistarfatnað til að forðast að þetta innihaldi dýraafurðir, ég er meðlimur í Samtökum grænkera á Íslandi og hef styrkt íslenskt dýraathvarf. Félagslíf hefur lítið breyst.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla í Krónunni aðallega. Ég geri vikumatseðil fyrir mig sem byggir á því hvað ég á til í skápunum. Ég horfi ekki á verðlag, enda er ég bara að fóðra sjálfa mig (maðurinn minn er ekki vegan og er í ruslfæðinu - hann sér því bara um sig) og mataræði mitt er sérstaklega ódýrt. Ég reyni að kaupa íslenskt grænmeti og ávexti, hafra og bygg en hvað annað varðar, horfi ég ekki á uppruna vörunnar. Markaðssetning og auglýsingar á vörum í kjörbúðum vekja ekki athygli mína en auglýsingar grænmetis- og ávaxtabænda gera það sem og þeirra sem bjóða upp á grænmetis- og ávaxtakassa. Ég horfi einnig á merkingar og vottanir. Uppröðun í verslun hefur ekki áhrif á það sem ég kaupi.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ég bý í Reykjavík og því er aðgengi mjög gott.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég lifi ekki til þess að borða, ég borða til að lifa. Alltaf verið þannig. Hins vegar er það þannig að ég verð auðveldlega hangry og því þarf ég að halda rútínu á þessu: morgunmatur, millimál, hádegismatur, millimál, kvöldmatur, millimál/nasl. Ég finn ekki upp mínar eigin uppskriftir en finn á netinu og aðlaga stundum að því sem ég á til. Ég geri eiginlega aldrei sama kvöldmatinn tvisvar (eflaust ADHD'inu að kenna). Ætli ég eyði ekki um klst í kvöldmatinn en geri stundum meira í einu og geymi í frystinum fyrir þá daga þar sem ég hef ekki tíma eða nennu í eldamennsku.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Erfitt að segja. Fyrir mér er mikilvægt að mauksjóða ekki matinn, hvort sem er pasta eða baunir eða hvað annað. Hann verður samt að vera mjúkur undir tönn ef maður er á annað borð að sjóða. Ofnbakað grænmeti eða tófú þarf einnig að ná ákveðni stigi bökunar til að höfða til mín og fara þarf sparlega með olíu. Helst þurfa kantar að vera smá brúnir. Finnst gott ef matur er pínu spicy. Lykt skiptir ekki öllu máli, en ef hún er vond, þá er maturinn eflaust vondur. Útlit skiptir mig líka litlu máli.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Gæði í mínum huga er ferskleiki, sem fæst hráefni í innihaldslýsingu og vottuð með svansmerkingu, blóminu eða öðrum umhverfisstöðlum.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Sakna ekki neinna fæðutegunda, en sakna kannski fáfræðinnar minnar. Ignorance is bliss.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Um 4-5x í viku. Inn á milli eru frystimáltíðardagar. Ég nota hefðbundin áhöld, ásamt blandara, hrærivél og matvinnsluvél. Mér finnst best ef ég er með vinnupláss upp á 120 cm og svo aðra 120 cm af plássi fyrir stóru tækin. Uppþvottavél er nauðsynleg.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Sjaldnar eftir að ég flutti nýlega úr miðbænum. Á engan uppáhaldsstað en ég skoða matseðla áður en valið er. Það eru þá miklar líkur á því að það sé eitthvað vegan á stöðum nútildags, bara spurning hversu spennandi það er.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Í daglegu lífi eru fáar sem engar hindranir. Þær birtast fyrst og fremst á mannamótum eða þegar ég fer að ferðast. Fór til Frakklands og Þýskalands fyrir jólin. Ég borðaði töluvert af bönunum í Frakklandi til að redda mér. Þýskaland var veganvænna. Fór til Portúgal árið 2019. Lifði að mestu á kexi þar (bananar ekki á hverju horni eins og í París). Hins vegar var ekkert mál að vera vegan í Víetnam, Tælandi og Nepal (nb í Himalayafjöllunum). Þannig að það væri auðveldara fyrir mig ef veganismi væri útbreiddari í Evrópu.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Bý með manninum mínum og hundi. Engin börn. Ég sé um mig og maðurinn minn sér um sig. Það hefur neikvæð áhrif á manninn minn því hann nennir ekki að spá í mat fyrr en of seint. Áður fyrr eldaði ég alla jafna fyrir okkur bæði. Nú elda ég bara fyrir mig, því hann vill ekki það sem ég borða.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Maðurinn minn var mjög skúffaður yfir þessari ákvörðun á sínum tíma og ég fékk alls kyns komment frá fólki til að byrja með (t.d. að maður verði heimskur af því að borða ekki kjöt, að það væru bara beljur sem borðuðu gras, hvað ætti að gera við öll dýrin ef allir yrðu vegan á núll einni, hvort ég myndi borða svín ef ég væri föst með því á eyðieyju, hvar ég fengi prótein, o.s.frv.). Í dag styður maðurinn mig heilshugar, les innihaldslýsingar, passar að veitingastaðir séu veganvænir og hvaðeina. Mamma tryggir að flest meðlæti sé vegan á jólunum og áramótum, gerir fyrir mig hummus og skellir kannski í pottrétt ef ég er í heimsókn. Fæ ekki lengur leiðindakomment nema kannski frá ókunnugum eða kunningjum.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég reyni að passa að ég sé með mat sem passar við það sem er á boðstólnum. Á jólunum var ég með hátíðarhleif frá Junkyard, brúna sósu, rjómasalat (með vegan rjóma) og fékk með vegan brúnaðar kartöflur og grænmeti. Kom með eigin ís í eftirrétt. Aðrir fengu heimagerðan Toblerone-ís. Svipað skipulag hjá mér á gamlárskvöld. Hvort þessar hefðir skipti mig máli, er síðan annað mál. Ég gæti allt eins verið sátt við Mexíkósúpu á aðfangadag, eða lasagna á páskadag.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég fer nú ekki oft í veislur eða matarboð, en ég hef borðað áður en ég kem, ég hef tekið með mér nesti, ég hef tekið með mér fancy nesti sem ég hita upp á staðnum. Afi og kona hans hafa boðið fólki í mat á jóladag síðustu ár og í reglulega í sunndagssúpu. Ég hef alltaf mætt og eftir að ég varð vegan fór ég að koma með nesti, enda hafa þau ekki kunnað/nennt að hafa fyrir mér. Nú er frænka mín orðin vegan líka og við fengum nóg af því að vera boðið en geta (vilja) ekki borðað neitt sem á boðstólnum, þannig að frænka mín fór fyrr og bjó tl vegan súpu með konu afa míns.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Ekki út frá kyni, nei.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Veraldarvefinn. Ég fylgi Hildi Ómars (https://www.instagram.com/hilduromarsd/), Veganistum (https://www.instagram.com/veganistur.is/) og Huldu B. Waage (https://www.instagram.com/huldabwaage/) á Instagram, er á Vegan Ísland (https://www.facebook.com/groups/1528322114068316) á Fb og alls kyns vegan hópum á Reddit. Ég leita að uppskriftum í gegnum Pinterest.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Það sem ég geri er að neyta engra dýraafurða og versla innlenda matvöru ef hún er til, flokka sorp eins og ég fái borgað fyrir það, molta, keyri um á rafmagnsbíl sem ég keypti notaðan, kaupi fátt og þá helst notað, nýti allt fram í rauðan dauðann, versla vottað ef það er fyrir hendi, versla umbúðalaust ef það er fyrir hendi, nota sem minnst einnota vörur, kaupi vörur sem eru frekar í pappaumbúðum en plastumbúðum, tala um fyrir sjálfbærni, kýs með það í huga, vinn við það, læt gera við.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Ég hugsa til nýgerða kanadíska fæðuhringsins. Á honum er helmingurinn grænmeti og ávextir, fjórðungur er kornmeti og fjórðungur er próteingjafi (og þau mæla með baunum þar), þ.e. fjölbreytt plöntumiðað mataræði. Mikið af grænu og dökkgrænu grænmeti, sem minnst unnið og sem fæst innihaldsefni.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Ekki mataræðið, per se, heldur dýrasiðferðið á bakvið það sem við borðum. Ég hef t.d. skrifað og deilt færslum um blóðmerahald og hvernig blóðið er nýtt til þess að búa til frjósemislyf fyrir gyltur svo hægt sé að ala fleiri grísi til að slátra.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, ekki nema einhvers konar dystopian framtíð verði til þess að aðgengi að plöntumiðuðum mat takmarkist svo verulega að einstaklingur getur ekki þrifist nema að borða dýr eða dýraafurðir.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Hef engu við að bæta.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Hef engar athugasemdir.

Við hvað starfar þú?
Umhverfisstjóri orkufyrirtækis

Hver er menntun þín?
B.Sc. í jarðfræði, diplóma í kennslufræði, M.Sc. í jarðefnafræði og á 25% eftir af meistaragráðu í verkefnastjórnun.
Aðfangategund