Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1992)
Ártal
Tímabil: 01.01.2020 - 01.01.2023
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-641
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða ekki kjöt og mjög lítið af mjólkurvörum og eggjum en ég borða fisk. Ég myndi því skilgreina mig sem pescatarian ef ég þyrfti að setja mig í kassa. Ef mjólk og egg eru í einhverju sem mig langar að borða þá sætti ég mig við það (t.d. er mjög lítið úrval af vegan sómasamlokum og grænmetissamlokan alltaf með eggjum), en ég vel alltaf haframjólk þegar ég kemst upp með það en fæ mér einstaka sinnum gríska jógúrt og reyndar borða ágætlega mikið af osti. Ég reyni að borða alltaf minnst tvo ávexti á dag og er mjög dugleg að borða grænmeti. Pastaréttir með grænmeti og baunum er algengur kvöldmatur hjá mér, og þegar ég er með fisk er alltaf grænmeti með. Grænmetissamlokur - pítur - pítsur eru oft á borðstólnum. Ég borða trefjaríkt morgunkorn með haframjólk reglulega og nota alltaf fjölkorna brauð. Frosin krossant eru svo "helgar-morgunmaturinn". Ég er sjaldan með eitthvað "feik-kjöt" en nota stundum pylsurnar frá anamma og einhverja soja-hamborgara eða soja-hakk þegar mig langar í þannig mat. Fiskur er oft í viku, en erfitt að segja hversu oft.. sumar vikur borða ég kannski á hverjum degi en aðrar vikur einu sinni eða tvisvar. Ég er ekki voða regluleg. T.d. er ég kannski í tvær vikur með hnetur í skál við hliðina á mér alla daga, en svo klárast þær og ég gleymi að kaupa aftur í mánuð... Ég drekk kaffi daglega, og stundum te, annars bara vatn í brúsa með mér hvert sem ég fer og oft rauðvín með kvöldmatnum. Ég nota olíu í matargerð, isio eða ólívuolíu og er ólívuolía oft "sósan" í pastaréttunum mínum. Hin skiptin er ég með pastasósu. Take-away staðirnir mínir eru serrano þar sem ég fæ mér bauna-burrito, asískir staðir þar sem ég fæ mér oft rækjur sem prótein, dómínos og einstaka sinnum einhverjir vegan hamborgarastaðir. Ég er ekki mikil nammi-manneskja en neita mér ekki um það þegar mig langar í. Ég fæ mér helst súkkulaðihjúpaðan lakkrís þegar ég fæ mér slíkt. Ég tek D-vítamín, B-12 og járn, stundum omega-3, en frekar óreglulega... Allt sem mér dettur í hug að segja frá held ég.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í þrjú ár núna held ég
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hætti að borða kjöt vegna umhverfisáhrifanna sem það mataræði hefur og vegna skaðlegrar áhrifa á heilsu. Ég minnkaði svo mikið eggja og mjólkurneyslu af dýravelferðarástæðum en ég er ennþá að reyna að losna frá ost-fíkninni minni.. Ég byrjaði svo að borða meiri fisk eftir að hafa prufað að panta fiskrétti á veitingastöðum sem voru bara með kjöt eða fisk.. þar sem mér hafði alltaf fundist fiskur vondur og kunni eiginlega ekkert að elda hann þá tók smá tíma fyrir mig að komast upp á lagið með að hafa það reglulega í matinn. En vegna hversu hollur hann er þá lagði ég það á mig að læra og gerði undanþágu í "veganish" mataræðinu mínu til að hafa það með. Finnst hann ekki vondur í dag:)
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Þetta er auðvitað ekki eitthvað skilgreint mataræði en umræðan um loftlagsvánna höfðu mikil áhrif á mig og svo fór ég á vegan ráðstefnu hér á Íslandi þar sem ég hlustaði á vísindamenn og lækna tala um þetta mataræði og varð enn vissari í minni sök að þetta væri breyting í rétta átt. Ég hlustaði líka mikið á vísindakonu sem er með podcast þar sem hún kafar ofan í rannsóknir á mataræði og lífstíl og gerir það mjög vel og faglega. Hún reyndar talar ekki fyrir veganisma eða neinu þannig og borðar kjöt eftir því sem ég best veit, en svona vísindalegt approach að heilsusamlegu líferni heillaði mig svo ég fór bara meira að pæla. Þetta var algjörlega "smám-saman" ferli hjá mér og til að byrja með minnkaði ég bara kjötneyslu og t.d. gerði ekki kröfu um að fá eitthvað annað í jólamatinn eða neitt, og borðaði kjötið ef mér var boðið í matarboð. En núna hef ég enga lyst á því og útiloka það alveg.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Veit ekki alveg hvað er átt við.. breytingar á viðhorfum mínum voru auðvitað ástæðan fyrir að ég breytti mataræðinu mínu en ég held að það ekki mikið breyst síðan annað en að bara styrkjast í mínum skoðunum um hvað er gott fyrir mig, aðra og jörðina.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég held það.. er ekki alveg viss samt. En mér finnst ég miklu ánægðari og hamingjusamari núna en ég var fyrir nokkrum árum en ég veit ekki hvort það tengist mataræðinu. Ég held samt örugglega að bragðskynið mitt hafi breyst, og að matur sé mun braðgmeiri og bragðbetri á þessu mataræði en þegar ég borðaði kjöt. Hegðun mín hefur bara breyst í tengingu við viðhorfsbreytingarnar sem ýttu mér út í þetta mataræði, svo ég held að það sé ekki mataræðið sem breyti því. Ég hef klárlega meiri áhuga á hollu mataræði eftir að ég fór að pæla meira í því og ég myndi segja að það hafi smá áhrif á félagslífið mitt þar sem bara einn lítill vinahópur er eins þenkjandi og ég, en í þessum stærri vinahóp er ég svoldið út úr og erfitt að hafa mig með í hlutum þar sem ég þarf alltaf sér mat. Þau eru svakalegir kjötgámar og ég verð eiginlega pínu veik á að horfa á matinn þeirra stundum.. þegar við gerum eitthvað saman þá er venjulega alltaf matur nefnilega..Þannig ég hef verið að mæta eftir mat og vera bara með þeim í drykkjum og svoldið að breyta þeim parti af félagslífinu mínu.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla ekki dags-daglega. Ég er mjög óregluleg í búðarferðum, en er frekar regluleg í því sem ég vel að kaupa samt. Ég kaupi alltaf helling af grænmeti og ávöxtum og þar læt ég helst ráða að það sé íslenskt ef ég get. Verð skiptir ekki máli þar. Í frosnu vörunum þá kaupi ég það sem ég veit að mér finnst bragðgott en pæli smá í verðinu og upplýsingum á pakkningum. Ég er helst að pæla í verði í kaupum á bætiefnum en líka öðru eins og innihaldi og styrkleika efnanna. Allt svona til heimilisins eins og sápur ofl. ræðst af umhverfisáhrifum og verði. Ég vel alltaf braðgbestu jurtamjólkina (oatly eða heiða) en ef hún er ekki til þá tek ég möndlumjólk og pæli ekki í verði. Ég reyni svo alltaf að velja eftir hollustu og t.d. vel alltaf fjölkorna brauð eða grófar vörur yfir fínar og mikið unnar vörur. Þegar vörur eru svipaðar í öllum þáttum og ég er ekki með preference út af bragði eða einhverju þá læt ég verðið ráða. Hef einu sinni óvart keypt barnatannbursta út af ég var bara að horfa á ódýrasta bambustannburstan frekar en að horfa á hvað ég var að kaupa.. Uppröðun í búðinni skiptir mig ekki miklu máli út af ég veit hvað ég er að fara að kaupa og ráfa um búðina í leit af þeim hlutum frekar en að láta búðina stjórna hvað ég kaupi. Ég er alltaf til í að prufa nýja hluti samt svo ef ég tek eftir áhugaverði vöru í búðinni þá kaupi ég hana til að prufa en bara ef ég get hugsað upp plan um hvernig ég ætla að nota hana. Ég hata að henda mat svo ég er alltaf með plan um hvað ég ætla að elda með vörunni áður en ég kaupi hana.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Ekkert svakalega gott en ég aðlaga mig. Ég bý í Grafarholti þar sem er bara ein Krónubúð og ekkert annað og hún er frekar lítil. Ég keyri mjög lítið svo ég fer bara í þessa krónu-búð nema í einstaka skipti sem ég nota bílinn til að fara í bónus. Það er ekki mjög mikið úrval í þessari krónubúð vegna þess hvað hún er lítil en ég er með uppskriftir á hringrás hjá mér sem ég get búið til úr vörunum sem fást þar.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Mjög mikinn áhuga held ég. Mér finnst samt ekki brjálaðslega gaman að elda en ég geri það út af mér finnst matur góður og mig langar að borða næringarríkan mat.. myndi aldrei nenna að lifa á brauði og take-away mat alla daga. Ég eyði því töluverðum tíma í að hugsa um mat. Ég reyni að plana hvað ég ætla að borða alla daga svo það sé ekki jafn erfitt að finna eitthvað þegar ég er orðin svöng. Ég eyði alveg 2 tímum á kvöldin í að útbúa og borða kvöldmat held ég.. og svo er ég oft með eldaðan hádegismat líka. Mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir en yfirleitt nenni ég ekki að fylgja uppskriftum svo það er eitthvað spari fyrir mér að prufa nýjar uppskriftir. Er samt alltaf að prufa að setja nýja hluti í uppskriftir sem ég kann.. eða "uppskriftir" út af það er yfirleitt bara eitthvað sem ég hugsa upp sjálf og geri örugglega aldrei nákvæmlega eins..
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Hmm veit það ekki. Mér finnst hollusta í mat oft einhver sér skynjun.. bara að vita að í matnum sem ég er að borða er þetta og hitt næringarefni eða ekki þetta og hitt slæma efni finnst mér gera hann betri en annars. Litur finnst mér líka skemmtilegur.. t.d. er þorramatur einstaklega ógeðslegur vegna þess að allt er grátt... Önnur krydd en salt og pipar finnst mér líka mikilvægt í góðum mat.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Já ég held að ég vilji mun frekar ferska vöru frekar en unna. Finnst ég ekki vera með jafn flottan kvöldmat þegar ég er með ferskan fiskrétt heldur en þegar ég er með eitthvað unnið sojakjöt. Ég held samt að gæði fyrir mér sé næringarinnihald.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Lengi vel var það pylsur og ég veit ekki alveg afhverju út af þær eru viðbjóður þegar maður pælir í því. Það var samt einhver svona skyndibiti sem maður gat fengið sér allstaðar.. allir staðir allstaðar á landinu voru með pylsur og þær voru svo skömmustulega góðar og engin vegan vara hefur getað líkst þeim. Einhverntíman mun ég líka hætta að borða ost, og ég veit að ég mun sakna hans út af hann er góður og auðvelt hráefni til að gera annan mat betri.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda á hverjum degi næstum. Kannski tveir dagar í viku sem ég sleppi því með því að kaupa skyndibita eða fara annað í mat. Ég þarf ekkert sérstakt til að elda.. er með minnsta eldhús sem ég hef nokkurn tíman haft, t.d. bara tvær hellur og hálfur ísskápur.. en það skiptir litlu máli. Ég nota ofninn mikið, og nota potta og pönnur í að sjóða og steikja. Þarf svo bara pláss til að choppa grænmeti en það er hægt að gera það á eldhúsborðinu. Ég er reyndar með frystikistu inní geymslu sem mér finnst mikilvæg út af þar sem ég er bara ein er mjög erfitt að kaupa inn án þess að þurfa að henda hlutum reglulega. Svo ég frysti mikið og kaupi mikið af frosnum vörum til að sleppa við að fara í búð of oft.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer ekki oft út að borða (fyrir utan take-away staði), og það er yfirleitt auðvelt að finna eitthvað út af ég borða fisk. Ég hef engan svona go-to stað.. elska public house gastro pub samt. Finnst svo bara gaman að prufa nýja staði þá sjaldan sem ég fer eitthvað og finn þá alltaf eitthvað sem ég get fengið mér þó það væri auðvitað skemmtilegra að hafa fleiri valmöguleika stundum.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Áhugi minn á eldamennsku held ég að sé mesta hindrunin. Ég væri til í að vera duglegri að finna mér nýjar uppskriftir og hafa sjálfstraust í að elda t.d. meira úr tofu og þannig. Það er helling af uppskriftum frá öðrum löndum sem eru fullkomnar fyrir ekkert-kjöt mataræði en ég nenni oft ekki að finna þær og leita að hráefnum sem ég svo kannski myndi ekki nota aftur ef uppskriftin virkaði ekki fyrir mig. Svo finnst mér mjög mikilvægt að koma upp svona skammta-sér-sjálfur búðum þar sem þú getur mætt með dalla og keypt þér nkl það magn sem þú þarft. Mjög margir búa einir, sérstaklega eldra fólk, og það myndi auðvelda manni að elda úr fleiri hráefnum ef maður þyrfti ekki alltaf að kaupa super-sized pakkningar sem skemmast í ískápnum manns út af maður nær ekki að nota þær nógu hratt.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý ein með einn hund og finnst það æðislegt og aldrei jafn auðvelt að elda. Ég elska að elda fyrir einn, en eins og ég segi með magnið sem þarf að kaupa sér.. þá er stundum leiðinlegt að þurfa að henda einhverju út af þú náðir ekki að borða það allt in time. Ég hef búið með 5 manna fjölskyldu þar sem enginn borðaði eins og það var pain.. hef líka búið tveir þar sem hinn aðilinn var bara að fylgja mínu mataræði vegna þess að hann nennti ekki að elda eða hugsa út í það sjálfur og það var bara burden.. þannig að elda einn er yndislegt.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Hvorki stuðning né gagnrýni, en mér finnst langskemmtilegast að plana eitthvað matartengt með vinunum sem borða eins og ég. Ég finn fyrir gagnrýni frá sjálfri mér á þá sem borða "eins og mér finnst rangt" eða eitthvað þannig. Finnst ekki gaman að borða með þessum kjöt-vinum mínum og mér finnst leiðinlegt að horfa upp á skeytingaleysið og virðingaleysið sem fólk hefur gagnvart mat, umhverfi og sjálfum sér stundum. En ég segi það ekki upphátt samt.. maður veit hvað fólk er viðkvæmt fyrir einhverju "vegan propaganda". En umhverfismálin eru mál okkar allra og það er leiðinlegt að horfa upp á fólk sem er alveg sama.. sérstaklega foreldra sína sem ættu að vera að hugsa um að skapa góða framtíð fyrir næstu kynslóð en er bara að hugsa um sín eigin þægindi.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei ekki neitt. Hefðir eru ekki neitt fyrir mér og mér finnst þær eiginlega bara pirrandi. Virði samt annarra manna hefðir og held jólin bara fyrir foreldra mína... annars væri ég til í að borða bara sushi heima hjá mér yfir gilmore girls eða eitthvað á jólunum.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég fer ekki mikið í veislur og matarboð. Ég held stundum matarboð með þessum vegan vinum mínum sem er mjög gaman. Ég mæti ekki í matinn í veislum með hinunm vinum mínum eða kem með eitthvað sjálf. Foreldrar mínir eru ágætir í þessu samt og bjóða okkur (við erum þrjár systur sem erum hættar að borða kjöt) alltaf upp á eitthvað vegan ef þau bjóða okkur í mat. Til að byrja með borðaði ég bara meðlætið í matarboðum samt. En sem betur fer hefur covid svoldið minnkað matarboð. Betur fer út af ég hata matarboð, ekki út af ég átti í erfiðleikum að borða í þeim. Hef ekki upplifað mikið svoleiðis. Annars finnst mér viðhorf langflesta vera bara nokkuð góð, allavega láta ekki í ljós skoðanir sínar ef þau hafa þær. Hef fengið einstaka spurningar bara og reyndar einn frændi sem elskar alltaf matinn sem við systur komum með meira en kjötið sem hann er með, svo það er bara jákvætt.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei held ekki. Ég er ekki með það strangt mataræði að einhver hafi séð sér ástæðu til að böggast í mér yfir því held ég. Og þetta er orðið miklu meira "mainstream" en það var.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Úff veit það ekki.. er bara að hugsa sjálf yfirleitt en hef aldrei googlað einhverjar uppskriftir og nota þá bara það sem kemur fyrst upp. veganistur.is er skemmtileg síða líka, var að gera tartaletturnar þeirra í áramótamat núna...
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Matur fléttast mikið inn í það hugtak að mínu mati. Held ég hafi talað svoldið um það í öðrum spurningum. Hugsa um áhrif matarins út fyrir orkuna sem hann veitir þér. Velja mat sem getur sustain-að þér til lengri tíma án þess að lenda inn á stofnun en einnig mat sem skemmir ekki plánetuna eða skaðar aðra í heiminum. Reyna að lifa bara þannig að þú hafir sem minnst áhrif (allavega slæm áhrif) út frá þér, eins og að labba það sem þú þarft að fara að nýta almenningssamgöngur. Flokka ruslið þitt... hugsa vel um náungan...eitthvað svoleiðis
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fyrst og fremst að fá orkuna og næringarefnin sem líkaminn þarf úr matnum þínum og vera ekki að skaða heilsuna með því sem þú borðar. En einnig er svona huglæga sambandið við mat mikilvægt. Að vera ekki að verðlauna sig eða refsa sér með mat, telja kaloríur og vigta allt ofan í sig eða eitthvað þannig. Eiga heilbrigt samband við mat bara og bara hugsa út í það sem þú velur þér að borða. Ekki vera á autopilot.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Ekki um mitt mataræði nei, en mér finnst mikilvægt að fræða aðra um t.d. áhrif mataræðis þeirra á umhverfið og þau sjálf. Við getum ekki haldið lífinu áfram eins og það hefur verið annars gerum við bara út af við plánetuna mun hraðar en ella. Ég er ekki bjartsýn á að við munum ekki gera út af við plánetuna anyway.. en betra ef það er hægt að hægja á því I suppose. Og svo væri minna um sjúkdóma ef fólk tæki sér aðeins tíma í að pæla hvaða áhrif maturinn sem þau borða hefur á líkama þeirra. Þetta er bara bensín fyrir mörgum, og engin pæling umfram það um áhrifin.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já og breyta því með tímanum í meira vegan held ég. Ég er á báðum áttum með fiskinn.. hann er svo hollur en margt svo slæmt við hvernig hann er framleiddur fyrir okkur.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei held ekki
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei, er bara orðin svoldið þreytt á að svara þessu :') nennti ekki að lesa yfir svörin mín svo þau eru kannski smá bull og röfl á köflum með helling af typos og málfarsvillum en who cares
Við hvað starfar þú?
Var að segja upp hlutastarfi við háskóla íslands sem aðstoðarmanneskja í rannsóknum
Hver er menntun þín?
Klára BS í næringarfræði í vor.

Spurningaskrá
Aðfangategund