Þjóðhættir/ Svör

01.01.2015 - 01.01.2023

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1987)
Ártal
Tímabil: 01.01.2015 - 01.01.2023
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-638
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég leitast við að borða hreint og holt en allur gangur á því eftir tímabilum. Þessa dagana borða ég mikið af herbalife vegan prótíndufti og stykkjum því mér finnst það bragðgott, gefur mér útrás fyrir sætuþörf og seddu og ég var ekki að borða nóg prótín áður, ég æfi frekar mikið. Ég var 95% vegan í 5 ár en byrjaði á þessu ári aftur að borða fisk og smá egg og aðeins meiri mjólkurafurðir. Ég borða þó afar takmarkað af mjólkurafurðum bæði af siðferðis- og umhverfisástæðum en einnig þoli ég þær mjög illa. Ég borða ekkert kjöt.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Vegan síðan 2015 en bætti við fiski og aðeins meiri dýraafurðum aftur 2021 vegna fjölda óþola (t.d. fyrir baunum, glúteini og jarðhnetum)

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Þegar ég varð vegan var það vegna þess að ég hafði lengi glímt við meltingartruflanir, prófaði að taka út kjöt og skánaði mikið við að taka úr mjólkurvörur. Ég tók inn fisk aftur á þessu ári því ég hef alltaf þolað hann vel og fundist mjög góður. Eins og líkaminn minn taki honum vel á meðan bæði kjöt, mjólkurvörur og hráefni sem eru algeng í vegan mataræði eins og baunir, jarðhnetur og glútein valda mér vanlíðan. Þá er mikið af keyptum vegan mat mikið unnið og ég þoli það takmarkað - það er helst ástæðan fyrir að ég fór að borða fisk aftur.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Varðandi vegan mataræðið þá var hægt að telja í fingrum annarar handar þá sem aðylltust það á Íslandi árið 2015. Ég heyrði af konu sem ég leit upp til sem var vegan og þetta var líka einhvers konar rebelismi að gera það sem fólki fannst fáránlegt þá og synda á móti straumnum, en fyrst og fremst því ég fann mun á líðan af því að sleppa kjöti og mjólkurvörum. Það tók samt heilmikið á samfélagslega á sínum tíma :)

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég var mjög orthodox vegan í ca ár og fyrirleit lífstíl kjötæta - svo var ég fljót að átta mig á að það er ekki hægt að stjórna fólki nema með öðru en að gera það sem maður sjálfur telur rétt og aðhyllast það sem hentar manni hverju sinni, vera einhvers konar fyrirmynd. Að valda minni skaða í heiminum og jörðinni með ágangi manna, er það sem ég leitast sjálf við að gera og ég geri mér grein fyrir að maður mun aldrei gera það fullkomlega.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Mér líður betur og betur bæði andlega og líkamlega, eftir því sem ég þróa mataræðið mitt meira í átt að því sem hentar mér, ekki því sem samfélagið vill að ég geri eða að aðhyllast einhvern einn, strangan lífstíl og fylgja í blindni. Eftir að ég hætti að vera alveg vegan hef ég t.d. upplifað fordóma frá vegan fólki, svo maður gerir aldrei alla "ánægða", sama hvað. Stundum borða ég mikið af kolvetnum, stundum ekki, stundum meiri fitu, stundum ekki, bara eftir markmiðunum mínum hverju sinni, getur farið eftir árstíð, hvort ég er að viðhalda þyngd eða létta mig, hvort það er mikið álag og svo framvegis. Ég kýs að skilgreina mig ekki út frá því sem ég borða og reyni að forðast fordóma og næra mig vel á því sem hentar mér hverju sinni. Mér finnst persónulega mikilvægt að geta lifað í sátt við líkamann sinn, líða vel í honum, vera tilbúin að taka á mataræðinu þegar þarf en geta slakað á inn á milli og ekki gera mat að afli sem stjórnar lífi mínu.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla mest í Bónus bara af því að það er ódýrara og nokkuð ánægð með vöruvalið sem ég fæ þar. Í dag einblíni ég ekki mikið á innihaldsefni en forðast sykur og mjólkurvörur almennt. Einnig mikið unnin mat eins og vegan gervikjöt eins og ég get, en leyfi mér það inni á milli. Reyni að borða mikið af fiski og grænmeti. Ég eltist ekki við lífrænar vörur og skoða ekki endilega e-efna magn í vöru, reyni bara að borða eins mikið hreint og fjölbreytt og ég treysti mér til hverju sinni og efnahagur leyfir. Fæ mikið af fiski gefins frá fjölskyldunni minni sem veiðir mikið sjálf eða hefur aðgang að fiski í miklu magni. Ég leitast við að borða mest "plant based" eins og ég get fyrir utan fiskinn.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott, ég er mjög heppin og með gott bakland þegar kemur að því að fæðir mig og mína og klæða.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég elska mat og matargerð og hann skiptir gríðar miklu máli því hann er stórt áhugamál, en ég hef þurft að slaka aðeins á áhuganum í gegnum tíðina til að forðast öfga og að matur verði ekki stýriafl í lífi mínu. Ég elda flest frá grunni og er mjög dugleg að gera tilraunir. Reyni að elda í töluverðu magni nokkrum sinnum í viku og borða afganga lon og don. Ég kaupi alla jafna ekki mikið af skyndibita og ef ég geri það, sem koma tímabil af þegar t.d. rútínan fer úr skorðum, þá leitast ég við að velja hollan og/eða vegan skyndibita.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleiki, rétt eldun, rétt áferð - sama hvað það er. Góð krydd og ástríða kokksins sem eldar skín alltaf í gegn og er mjög mikilvæg að mínu mati.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Hrein matvæli, helst fersk.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei get í rauninni ekki sagt það. Það var fiskur áður en ég fór að borða hann aftur og ostar, en núna eru komnir svo góðir mjólkurlausir ostar að þetta er easy peasy.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda nokkrum sinnum í viku. Ég þarf að hafa ansi gott úrval í kringum mig af kryddum og bragðefnum, sætuefnu stevia t.d.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Nei, aðallega til að hafa stjórn á því hvað ég læt ofan í mig og útaf kostnaði. Það er hins vegar ekki mjög erfitt lengur að finna staði með t.d. góðum vegan mat og ég fer helst á þannig staði.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Engar hindranir í dag myndi ég segja nema einstaka sinnum leti að elda.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Er ein aðra hverja viku og með 9ára strákinn minn hina hverja. Hann er mjög matvandur og borðar mest kjöt og grænmeti, alls ekki fisk.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Aðallega stuðning i dag en það hefur verið alls konar í gegnum tíðina. Mamma veit t.d. aldrei hvað hún á að gefa mér að borða þegar ég er heima og ég kem oftast með minn eigin mat. :)

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Matarhefðir í kringum jól skiptia mig miklu máli t.d. en ég hef aðlagað þær að mér. Borða alltaf góðan vegan jólamat og mikið af graxlaxi og síld sem mér finnst sjúklega jólalegt og nauðsynlegt á þeim árstíma í dag.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég borða bara það sem mig langar í hverju sinni eða ég tel mig þola. Stundum er ég einfaldlega búin að borða og er ekkert að afsaka mig lengar með mataræðið mitt í flestum tilfellum. Oftast finn ég mér líka eitthvað að narta í.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Veit það bara ekki, held ekki. Líklega minni fordómar gagnvart mér að borða t.d. ekki kjöt heldur en t.d. karlmenn sem borða ekki kjöt upplifa.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Googla bara uppskriftir og aðlaga að mér og því sem er til í skápunum :) Geri aldrei það sama... Er líka bara mjög dugleg að búa til mat frá grunni út frá einhverjum hugmyndum eða cravings sem ég er með hverju sinni. Er ekki dugleg að far eftir uppskriftum í þaula.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Ég bara veit það ekki lengur, er búin að fara í marga hringi með það og nenni ekki lengur að ofhugsa það. Eins og ég sagði einhvers staðar í öðru svari hérna er það helst að valda bara eins litlum skaða án þess að tapa geðheilsunni í að ofhugsa allt.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollir, lítið unnir prótíngjafar, mikið grænmeti, glúteinlaus korn og fitugjafar úr jurtaríkinu.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Ekki lengur, nei, nenni því bara ekki nema ég viti að viðkomandi vilji ólmur fræðast um það og muni hafa gagn af því.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Ég sé ekki fyrir mér að byrja að borða kjöt nokkurn tímann aftur, mér finnst sá iðnaður bara of ógeðslegur að öllu leiti, óumhverfisvænn og eg hef enga löngun í kjöt. Sama með mjólkurvörur ég reyni að forðast þær þótt þær séu frekar upp á pallborðinu. Ég sætti mig við að það sé mitt framlag til að gera heiminn oggulítið betri.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei :)

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei, gangi ykkur vel og hlakka til að sjá niðurstöður :)

Við hvað starfar þú?
Kvikmyndagerðarkona, framkvæmsastýra félagasamtaka og lífs- og heilsuþjálfari.

Hver er menntun þín?
Á framhaldsskólastigi af náttúrufræðibraut, einkaþjálfun og kvikmyndagerðmeð með tonn af námskeiðum og sjálfsmenntun á mörgum sviðum.
Aðfangategund