Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1993)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-637
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Er grænmetisæta að því leyti að ég borða ekki kjöt. Ég borða fisk, mjólkurvörur, egg og þess háttar. Ég borða sjaldnast morgunmat, fyrsta máltíðin er í hádeginu sem er yfirleitt ristað brauð/beygla, stundum eitthvað meira flókið ef ég nenni eins og salat eða samloka. Borða svo kvöldmat, elda yfirleitt eitthvað heima sem er þá einhver grænmetisréttur eða fiskur. Panta stundum eldum rétt sem er mjög þægilegt. Svo er yfirleitt eitthvað nasl á kvöldin sem er þá popp, snakk á tyllidögum og þá kók/pepsi max eða sódavatn.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Hef ekki borðað kjöt í rúm 5 ár sirka og þessar matarvenjur verið í þessari líkingu frekar lengi.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Mig hætti bara að langa að borða kjöt. Margir vinir mínir voru einnig grænmetisætur og hef líklegast orðið fyrir áhrifum frá þeim.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Margir í kringum mig voru grænmetisætur og það hefur líklegast haft áhrif. Ég fékk bara tilfinningu að mig langaði ekki að borða kjöt lengur og hætti því nokkuð hægt og rólega. Fékk mér einstaka sinnum eitthvað en þegar mér fór að líða illa með það eftir á þá hætti ég alveg.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég hef reynt að gera mitt besta við að styðja eins lítið og ég get við iðnað sem tengist dýrum á einhvern hátt eins og mjólkuriðnað og eggjabú. Hef stundum hætt að neyta eggja og mjólkurvara en það hefur bara verið tímabundið.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég hef ekki upplifað neinar breytingar á mér sjálfri eða breytingu á líðan hvort sem það er líkamlegri eða andlegri. Ekki heldur á bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla yfirleitt í krónunni, fæ allt sem mig vantar þar. Ég hef yfirleitt gert lista annað hvort skriflega eða í huganum og kaupi eftir því, það fer sjaldan eitthvað spontant ofan í körfuna en það gerist stundum. Ég reyni að pæla í verðlagi eins og ég get. Ég reyni að kaupa mest það sem er local þegar ég get en stundum er það ekki hægt. Ég fylgist lítið með markaðsetningu og auglýsingum og upplýsingar á pakkningum ná sjaldnast athygli minni. Ég hef voða lítið pælt í uppröðun í búðinni.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Aðgengi að mat og hráefnum er mjög gott þar sem ég bý.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mjög gaman af því að elda og prófa mig áfram í eldamennsku, mér þykir það mjög róandi og gott. Matur er mjög mikilvægur í mínu lífi, ég eyði miklum tíma í að hugsa um mat, laga han og neyta. Ég horfi mikið á efni sem tengist mat og matargerð. Ég hef gaman af því að prófa nýjar uppskriftir og set yfirleitt mitt spinn á þær ef það er eitthvað sem mig langar að breyta.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
lyÞað sem einkennir góðan mat að mínu mati er bragð, áferð og útlit. Lykt hefur ekki mikil áhrif því mér þykir hún ekki segja allt.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Gæða matvæli að mínu mati er fersk vara sem er lítið unnin og lítið að viðbættum efnum.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég sakna stundum að borða kjöt og þá sérstaklega þegar ég finn lykt af grilluðu kjöti. Þá stundum langar mig að borða það.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég reyni að elda allavega 6 sinnum í viku heima hjá mér. Ég þarf ekkert voðalega mikið þegar að kemur að eldamennsku bara þetta basic dót, góður hnífur, skurðbretti, pottar og pönnur, ofn og helluborð, og svo áhöld eins og sleif, spaði og töng. Þarf ekkert sérstök tæki þannig, ég á reyndar sjálfvirkan hrísgrjónapott sem er mjög þægilegt.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer stundum út að borða eða panta mat heim. Fer sjaldan á fína veitingastaði þó það sé gaman, fer yfirleitt á aðeins ódýrari staði sem bjóða uppá pizzur, hamborgara, núðlur, sushi eða eitthvað álíka. Mjög auðvelt að panta mat sem hentar mínu mataræði.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Mér finnst lítið sem ekkert af hindrunum í mínu daglega lífi þegar að kemur að mataræðinu mínu. Þarf ekki neitt til að auðvelda mér það að fara eftir mínu mataræði.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Erum tvö á heimili. Maki minn borðar kjöt þegar við förum út að borða eða pöntum mat, en þar sem ég sé um að matreiða á heimilinu þá borðum við grænmetisrétti eða fisk.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Já ég upplifi mikinn stuðning frá öllum sem er mjög gott.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já ég hef gaman af matarhefðum, ég reyni þá að aðlaga mitt mataræði eftir ákveðnum hefðum þegar ég get.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég geri ráðstafanir í stærri veislum eða matarboðum og kem stundum með sjálf ef ég þekki ekki alveg vel til. En þarf ekki að gera það í mínum nánasta hring, þar eru allir af vilja gerðir til að koma til móts við mig.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei ég hef ekki tekið eftir slíku.
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Horfi mikið á youtube og þar eru margir sem veita mér innblástur í matargerð. Hér eru nöfn á nokkrum stöðvum: Food wishes Carla Lalli Music Claire Saffitz Honeybunch of onion tops Jenn Imm The Viet vegan Brad Leone Good Eatings Cooking with dog Maangchi Hot for food
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Hef ekki hugsað út í það
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Borða gott magn af grænmeti og ávöxtum og reyna að hafa gott jafnvægi á hlutunum.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Nei mér þykir það ekki mikilvægt, hver og einn ætti bara að sjá um það sjálfur.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já held það.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei.
Við hvað starfar þú?
Ég er háskólanemi.
Hver er menntun þín?

Spurningaskrá
Aðfangategund