Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2017 - 01.01.2023
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-634
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég hef verið grænmetisæta í 6 ár en borða reglulega fisk. Mataræðið mitt einkennist mikið af kolvetnisréttum og grænmetisréttum. Ég elska að borða pasta, tacos og pítur með en svo á móti borða ég mikið holla grænmetisrétti með grænmeti, tófú og svo kínóa eða kúskús. Ég reyni að borða fisk einu sinni í viku einnig. Það fer dáldið eftir skapinu hvað mér langar að borða. Ég hef gert það að reglu í mínu lífi að hafa engin boð og bönn í mataræði mínu.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Seinustu 6 ár af mestu leyti, ég er alltaf að bæta mig meira og meira í að elda hluti frá grunni.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég varð grænmetisæta útaf umhverfisástæðum og einnig útaf meðferð dýra í kjötframleiðslu. Ég elst upp við að þetta sé frekar "normal" að borða dýr en svo þegar grænmetisfæði varð vinsælla og vinsælla sá ég að þetta var kannski ekki eins "normal" og ég hélt.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég heyrði fyrst af þessu mataræði frá vinkonu minni. Fyrst um bil sagði ég engum frá því svo mánuðum skipti því ég nennti ekki að heyra skoðanir frá öðrum um grænkerafæði. Ég hætti alveg að borða rautt kjöt, kjúkling og svín á einni nóttu en mjólkurvörur fóru smám saman að minnka úr mataræðinu mínu.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég finn hreinlega fyrir betri samvisku. Ég er ekki jafn stressuð í dag að segja fólki frá að ég borði ekki kjöt eins og þegar ég byrjaði.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Helsta breytingin sem ég fann var að gigtarverkir minnkuðu.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla helst í krónunni eða hagkaup því mér finnst þau hafa besta úrvalið upp á ferskleika. Ég reyni mitt besta að versla hreinar vörur og nota frekar krydd eða svoleiðis til að bæta þær vörur. Verðlag skiptir mig ekki mestu en upplýsingar á pakkningum er skilyrði, ég nenni ekki að fara yfir allan listann á pakkningum til að komast að hvort þær eru grænmetis "safe" eða ekki.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mér finnst aðgengi að grænkera vörum vera einstaklega gott. Þú getur fundið mat eða hráefni í nær öllum búðum.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef mikinn áhuga á mat og matargerð. Er samt alltaf að læra eitthvað nýtt. Mér finnst ekkert betra en að borða góðan mat.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ég pæli lítið í útliti á góðum mat en bragð, lykt og áferð skipta mig miklu máli.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Mér finnst best að nota sem ferskar vörur og ég get.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Eiginlega ekkert.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda a.m.k. 5 sinnum í viku, leyfi mér alveg að sækja mat einhverstaðar á helgum.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer reglulega út að borða. Uppáhalds staðurinn minn í Reykjavík í augnablikinu er Monkeys. Það er auðvelt að panta mat sem hentar mínu mataræði á veitingastöðum á Íslandi a.m.k.. Getur verið smá basl í öðrum löndum.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý með kærasta mínum og syni. Við borðum alls ekki sama mataræðið að fullu en oftast borða allir það sama því það auðveldar allt.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Upplifði gagnrýni fyrst en nú er orðið frekar "normal" að borða grænkerafæði.

Spurningaskrá
Aðfangategund