Þjóðhættir/ Svör

01.01.2017 - 01.01.2023

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2017 - 01.01.2023
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-633
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég borða allfarið grænkera (vegan) mat þar sem ég neyti ekki dýraafurða af neinu tagi.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
6 ár

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég ákvað að hætta að borða dýrafurðir eftir að ég horfði á bíómynd að nafninu Okja. Ég var búin að hugsa lengi um að taka skrefið en hélt að ég myndi ekki geta það, þar sem ég elska kjöt og mjókurvörur. Bíómyndin minnti mig á allt það sem var að trufla mig með matarræðið mitt, þar sem hún fjallar í stuttu máli um hvernig komið er fram við kýr, bæði fyrir mjólkina en líka hvernig þeim er slátrað. Ástæðan er semsagt fyrst og fremst því ég er mikill dýravinur og vil ekki valda þjáningu þeirra, sérstaklega þar sem það er ekki þörf á henni þar sem ég hef fullt af öðrum valmöguleikum. Ég hélt áfram á matarræðinu því það var miklu auðveldara en ég hélt, en einnig varð heilsan mín betri fyrir vikið. Heilsubreytingarnar komu mér á óvart en á mjög góðan hátt.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Breytingin átti sér stað smám saman með tímanum, en svona stór lífstílsbreyting tekur tíma og aðlögun. Ég byrjaði á að hætta að borða kjöt en hélt áfram að neyta mjólkurvara og fisks. Það leið rúmlega ár þangað til að ég tók út fiskinn og mjólkurafurðirnar fóru út stuttu síðar.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Bragðskynið mitt breyttist miklu meira en ég bjóst við. Ég var rosalegur matargikkur áður en ég gerði þessar breytingar, en það hvarf frekar hratt þegar ég byrjaði að borða nýjan mat. Það sem hjálpaði var að ég var einhvernveginn ekki lengur að borða bara fyrir mig, heldur fyrir þessi dýr sem mér þykir svo vænt um og þá gátu bragðlaukarnir mínir þróast aðeins með. Ég þjást af leiðinlegum sjúkdómi sem kallast endómetríósa, en það þýðir að ég hef í mörg ár verið að fá stöðug verkjaköst sem geta verið það alvarleg að ég get hvorki gengið né staðið. Eftir að ég tók út dýraafurðir, þá sérstaklega mjólkurafurðirnar, urðu verkrnir mínir skárri. Þeir eru ennþá til staðar, en fjöldinn af verstu verkjunum sem gerðu mig óvinnufæra, hafa fækkað gífurlega.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Fyrir mér skiptir máli að maturinn sé frekar venjulegur. Að þótt ég borði grænkerafæði, þá vil ég ekkert bara borða rauðrófur og gulrætur, heldur borða ég ennþá hamborgara, pylsur og meira að segja steik.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Ég hélt ég myndi sakna nautakjöts og súkkulaði en það kom mér á óvart að sú er ekki raunin. Það er mjög gott úrval af súkkulaði þannig það er aldrei vandamál, og ég sakna nautakjötsins ekki neitt þar sem ég hugsa ekki lengur um það sem mat. Það eina sem ég sakna virkilega, er lax. Ég get ekki fundið neitt sme líkjist lax í áferð og bragði, og það er ennþá matur sem ég sakna.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Einu hindranirnar sem ég hef rekist á, eru fjölskylduboð og vina hittingar. Dags daglega er mataræði mitt ekkert mál, og veldur mér engu veseni. Erfiðu aðstæðurnar eru hittingar þar sem fólk er að borða saman og það er ekki til útgáfa af grænkera mat. Ég hef komið með minn eigin mat í boð, eða borðað vel áður. Einnig er það viðhorfið og stríðnin sem ég lendi stundum í sem getur verið ákveðin hindrun. Það fær mig samt aldrei til þess að vilja neyta dýraafurða aftur, en getur stundum verið leiðinlegt.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum bara tvö á heimilinu og fylgjum sama mataræði sem er mjög þægilegt.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Matarhefðir skipta mig miklu máli og ég er mjög þakklát fyrir að auðvelt sé að finna staðgengla fyrir dýraafurðir. Jólin og áramótin eru gott dæmi þar sem ég borða ótrúlega góðan mat, sem er mjög svipaður og maturinn sem fjölskyldan mín borðar. Einnig hef ég keypt mér vegan páskaegg um páskana og það er alveg æðislegt. Það eru mikil forréttindi að geta fylgt grænkera mataræði en samt átt svipaða matarupplifun og annað fólk

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já ég get ekki ímyndað mér að ég byrji að neyta dýraafurða aftur.

Hver er menntun þín?
Er að klára BA nám
Aðfangategund