Þjóðhættir/ Svör

27.03.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-629
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég reyni að tileinka mér það að borða hollan og góðan, helst umhverfisvænan mat þó svo að það sé ekki alltaf rauninn. Ég hef undanfarin ár tekið meðvitaða ákvörðun um að borða miklu minna af kjöti og mjólkurvörum. Velja oft grænkera máltíðir á veitingastöðum og sleppa því að hafa kjöt á hverjum degi á heimilinu. Áður fyrr var viss venja að það þurfti alltaf að hafa kjöt með öllu, en það er búið að sanna að það er ekki rauninn. Ég borða minna kjöt og er meðvituð um loftlagsáhrif ýmisa þátta tengdum matvörum. Ég borða miklu minna af mjólkurafurðum en ég gerði, en þar spilar líka inn í að ég er komin með mjólkuróþol og þoli minna að borða mjólkurvörur. Ég hef prufað að gerast grænmetisæta og aðeins prufað að tileinka mér grænkera fæði, en hef ekki haldið því við lengi. Ég held að ég myndi vilja skilgreina mig sem "vistkera" þó að ég eigi sjálfsagt langt í land með að vera alveg með þau mál á hreinu.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég myndi segja að það séu svona síðustu 8 ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Meðvitund um loftlagsmál og minni þörf og lyst á kjötafurðum.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég er enn að vinna í þessu og prufa mig áfram.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég hef ekki þörf til að hafa kjöt eða mjólkurvörur í mataræðinu eins og áður fyrr þar sem ég hélt að það væri lífsnauðsynlegt að hafa það með og hélt að ég væri ekki að fá nógu mikla næringu ef ég borðaði ekki kjöt.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég finn verulegan mun á því að nota minna af mjólkuvörum enda hef ég þróað með mér óþol þar. Mér líður vel þegar ég borða mikið af grænum mat og finn ekki fyrir sömu þyngslum eftir máltíð eins og þegar það er borðað kjöt.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Bónus eða Krónunni. Ég er frekar vanaföst og versla oftast það sama. Þar sem er merkt lífrænt á ávöxtum og grænmeti heillar mig og ég kaupi það oftast.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Fínt aðgengi og úrval.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Alveg ágætur áhuga og ég get tímabil þar sem ég legg metnað í nýjar uppskriftir, en stundum er það bara hefðbundið fjölskyldulíf og máltíðir sem hafa vinningin.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleiki, úrval og fjölbreytni

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég er hrifin af ferskum matvælum og reyni að sækja meira í það en mikið unnar vörur.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Skyr með rjóma, ég gat lifað á því heilu dagana.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Einu sinni á dag oftast.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Já alveg kannski 1-3 í viku.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
2 fullorðnir og 2 börn. Börnin borða meira af mjólkurvörum en við erum frekar samstíga í öðru.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Á internetinu helst.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Minni sóun og betri nýting, jafnvel ræktun á grænmeti og öðrum afurðum sem hægt er að rækta.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Lítið eða ekkert unnið, ferskt og mikið af grænmeti og ávöxtum. Minna/lítið/ekkert kjöt og mjólurvörur.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei, ég er enn að finna minn takt sjálf.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já þetta er þróun sem er enn í vinnslu.
Aðfangategund