Þjóðhættir/ Svör

01.01.2020 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2020 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-627
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Plöntufæði. Reyni sem mest að vera WFPB en það tekst ekki alltaf í amstri dagsins og með börn

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Rúm 2 ár

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Frændi minn lést úr krabbameini og amma veiktist stuttu síðar. Upp komst um að BRAC genið er líka í fjölskyldunni þó að ég sé ekki með það en upp frá þessu fór ég að lesa mér til um mataræði og sjúkdóma og komst að því hversu mikil tengsl eru a milli dýraafurða og lifstilstengra sjúkdóma. Krabbameins, hjarta og æðasjúkdóma, sykursýki og allskonar fleira. Ég prufaði að breyta mataræðinu alveg eftir að ég horfði a Game changer og á 3 dögum losnaði ég við liðverki sem högðu hrjáð mig og þeir hafa ekki komið aftur.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég sæki alltaf aftur og aftur upplýsingar til nutritionfacts.org þar sem Dr Greger hefur veitt mér miklar og skýrar upplýsingar og svo prufaði ég að fara 100% plant based/vegan daginn eftir að ég horfi a Game changer og hef ekki farið til baka

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Já mér finnst hugsunin um að framleiða og drepa dýr alltaf meira og meira fjarstæðukennd og galin. Og svo var ég langt yfir 20ara þegar ég áttaði mig á því að beljur mjólka ekkert frekar en konur, ss bara eftir að þær eignast afkvæmi, við erum alin upp við að mjolkurbeljur mjolki vara og að við verðum öll að drekka mjólk?! Það er nánast hægt að beintengja mjólkurþamb við brjóstakrabbamein. Og með brekka genið í fjölskyldunni og mikið tal um brjóstakrabbamein vill samt enginn hlusta á þetta því að landlæknir gefur út ráðleggingar um að drekk á mjólkurvörur og blabla. Svo hollt fyrir tennur og bein, hvar ætlaru annara að fá kalkið? (Sagt með kaldhæðni)

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Var búin að fara til gigtarlæknis því ég var viss um að ég væri komin með byrjun a gigt, vaknaði með stífa fingur og stundum fasta í kreppu. Fékk alltaf illt í liðina á höndum þegar ég fór út í aðeins kaldara loft og þurfti því alltaf að vera með vettlinga. Þetta hvarf a 3 dögum eftir að ég tók dýraafurðir út.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Oftast í Nettó því það er svo nálægt mér, fer líka í krónuna, bónus og vegan búðina. Elska ferskar vörur og grænmeti og verð spilar auðvitað inn í. Ég væri mikið til í meira lífrænt en það er oft svo sjúklega dýrt. Reyni að kaupa allt íslenskt sem ég get

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það sleppur til en væri mjög til í meira.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég tek tímabil þar sem ég hef mikinn áhuga og prufa mikið nýtt og svo önnur tímabil þar sem ég væri helst til í taka pillu til að verða södd, þeas nenni ekkert að hugsa um mat eða hafa fyrir honum. Það sveiflast líklega með því hversu mikið er að gera hjá mér og mögulega lok aeftir árstíðum, nenni meira af öllu að vori og sumri

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleik!

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég reyni að horfa á það já sem mest en það kemur alveg unnið með því það er svo einfalt og oft eru börnin ekki til í hvað sem er

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Osturinn líklega helst því það er ekkert sem kemur í stað hans og börnin mín sætta sig ekki við vegan ost

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Við maðurinn minn skiptist á, flesta daga er eitthvað eldað en mismikill metnaður. Vil alltaf eiga til baunir, hafra, haframjólk og ferskt grænmeti.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ekki oft en úrvalið er að snaraukast

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Fordómar og fáfræði. Fólk mætti fá að via hversu skaðlegt "venjulegt" mataræði er. Þó að eitthvað hafi verið gert einhvernveginn í langan tíma þýðir ekki endilega að það sé best. Hætta að merkja vegan því það hræðir óvegan frá og þau halda að þau geti ekki borðað neity merkt vegan.....gætu borðað of mikið grænmeti sko. Merkja frekar plant based og þá fattar anti-vegan fólk það ekki.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við hjónin erum plant based og 2 stelpur 6og8 ára eru það hér heima mestmegnis en í skóla og annarsstaðar borða þær það sem þær kjósa. Það er ekki boðið upp a grænmetis fæði í skólanum.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Gagnrýni fyrst en flestir í lagi nuna

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Nei

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Stundum, en flestir eru mjög tilbúnir til þess að aðlaga að plant based/vegan. Við erum samt oft send heim með afgangs því enginn vill borða þá...

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
https://nutritionfacts.org

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollt er án dýraafurða og lítið unnið, helst allt frá grunni. Meira meira og meira grænmeti, baunir, hnetur fræ

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Já væri til í það en kem ekki vel frá mér orði. Myndi óska að einhverju mundi þýða meira efni ts bækur frá https://nutritionfacts.org/ how not to die og how not to diet svo eg gæti gefið fjölskyldumeðlimum

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Það vantar spennandi fræðsluefni a íslensku

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Spennandi verkefni, fróðlegt að vita hvað kemur út úr þvi

Við hvað starfar þú?
Verkefnisstjóri

Hver er menntun þín?
Er í framhaldsnámi í háskóla
Aðfangategund