Þjóðhættir/ Svör

01.01.2017 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2017 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-623
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Virka daga borða ég yfirleitt það sama á vinnutíma. 1-2 kaffibollar með mjólk áður en haldið er í vinnu. AB-mjólk með banana/múslí í kaffitíma. Lífrænt ræktað epli og/eða appelsína í millimál, stundum teskeið af hnetusmjöri ef hungrið sverfur að seinni partinn og vatn og ávaxtate. Í hádeginu er það svo hrökkbrauð með áleggi - s.s. rjómaosti, kæfu eða tómötum/gúrku. Kvöldmaturinn er fjölbreyttur - allskonar fusion, mikið grænmeti. Ekki mikið svínakjöt af dýraverndarástæðum og helst bara kjúklingur sem er lífrænn/dýravænn. Okkur finnst gott að gera stir-fry og allskonar tapas úr því sem er til í ísskápnum, pítur, lasagna, chili og svo matinn hennar mömmu - búum til buff og lauk og amerískan kjötbúðing og svoleiðis þegar okkur langar í svona "comfort-food". Þá freistumst við stundum til að kaupa Eldum rétt pakka, þá þarf ekkert að hugsa um að fara í búð. Um helgar er meira fínerí- góður tími tekinn í að elda flotta rétti og gott vín haft með. Ef brauð er á boðstólum þá er það keypt í bakaríinu og fryst - ein og ein sneið tekin út í einu. Það er því miður aldrei fiskur eða skelfiskur í matinn hjá okkur út af ofnæmi. Við reynum að vera meðvitaðir neytendur. Borðum helst ekki mikið af unnum matvörum, viljum versla í heimabyggð og kaupum ekkert sem inniheldur pálmaolíu nema hún sé vottuð. Þess ber að geta að við förum út að borða nokkrum sinnum í mánuði en skyndibiti er eitthvað sem er nánast aldrei keypt á heimilinu. Ef ég ætti að skilgreina mataræðið mitt þá er það örugglega að borða hóflega og hollt á virkum dögum á vinnutíma, en meira hygge um helgar með bakkelsi. Kvöldmatur er alla daga vikunnar úr fersku og góðu hráefni þar sem umhverfis- og dýraverndarsjónarmið fá mikið rými.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Það matarmynstur sem er á mínu heimili er eitthvað sem hefur verið í gangi í örugglega fimm ár eða meira en matarmynstrið á vinnutíma hefur verið í gangi skemur, líklega í tæp tvö ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Mér hefur alltaf verið umhugað um umhverfið og reyni að leggja mitt af mörkunum sem meðvitaður neytandi. Eftir því sem árin líða þá finn ég betur hvað hollur matur skiptir meira máli fyrir almenna heilsu - mér liði einfaldlega ekki jafn vel í kroppnum mínum og huganum ef ég væri að raða í mig skyndibita og unnu dóti þar sem húsdýr og náttúran borga brúsann.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég myndi ekki beinlínis segja að þetta sé eitthvað sérstakt mataræði en ég er samt með bannlista sem felur í sér að kaupa ekki vörur sem ég veit að eru að skaða jörðina. Annars er þetta bara að borða skynsamlega og meðvitað. Svo kemst maður ekki hjá því að læra um áhrif matvælaframleiðslu á Jörðina bara með því að fara rúnt um internetið. Þetta gerist hægt og rólega.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég held að ég sé mjög hægt og rólega að verða grænmetisæta. Þó með þeim fyrirvara að ég vil helst ekki kaupa súperunnar matvörur og vegan vörur eru margar hverjar nákvæmlega það. Ég vil frekar kaupa eitthvað beint frá bónda á Suðurlandi heldur en frá sojaökrum risafyrirtækja í Asíu með því sótspori og umhverfisspjöllum sem því fylgir.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Já, það er alveg öruggt að mér líður miklu betur í líkamanum/meltingarveginum og er ekki stútfull af bjúgi ef ég borða skynsamlega.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég á alltaf egg, smjör og mjólk í ísskápnum mínum. Ég kaupi líka grænmeti, kjöt og ost þegar mig vantar og er alltaf með innkaupalista. Ferskleiki og umhverfissjónarmið skipta mig meira máli en verð þótt ég stoppi auðvitað alltaf hjá tilboðunum. Ég skoða t.d. alltaf hjá því sem er á síðasta séns þar sem ég þoli ekki matarsóun. Þumalputtareglan mín er að ef ég les aftan á pakkann og þekki ekki innihaldsefnin þá kaupi ég vöruna ekki ef ég mögulega kemst hjá því. Auðvitað hljóta markaðssetning og auglýsingar að hafa áhrif á okkur öll og ég er eflaust ómeðvitað að kaupa eitthvað sem einhver sniðugur er búinn að lauma að mér að ég verði að kaupa. Hinsvegar veit ég líka að það er t.d. minna af sykri í Euroshopper bökuðum baunum heldur en þeim frá Heinz og það er alltaf innhaldslýsingin sem hefur úrslitavaldið en ekki vörumerkið.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er stappfullt af búðum í hverfinu mínu þannig að ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að fá ekki hráefni. Mér þætti hinsvegar til bóta almennt meira úrval af umhverfis- og dýraverndarvænni dýraafurðum (mjólk, kjöt, ostur o.þ.h.).

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Matur er mannsins megin! Ég er svona foodie og hugsa þ.a.l. rosalega mikið um matargerð og eyði alveg drjúgum tíma þegar ég get í að elda. Það veitir mér líka yfirleitt ánægju að dunda mér í eldhúsinu við að galdra eitthvað spennandi fram. Á virkum dögum tekur eldamennska yfirleitt ekki mikið lengri tíma en 1 klst. en um helgar er gjarnan hægeldað.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Gott hráefni er auðvitað lykilatriði. Litur segir mér líka mikið. Ef matur er litríkur þá finnst mér strax að hann sé hollari en drapplitaður maður.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Varan þarf að vera fersk og með eins fáum aukaefnum og mögulegt er.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Í raun og veru ekki.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Við eldum á hverjum degi nema þegar við förum út að borða. Eftirfarandi er alveg nauðsynlegt í eldhúsinu: Góður hnífur, skurðarbretti, rifjárn, hvítlaukspressa, grænmetisskrælari, sigti, smíðajárnspottur og góð panna.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer að jafnaði kannski aðra hverja viku út að borða. Stundum sjaldnar og stundum oftar. Ég á yfirleitt auðvelt með að finna eitthvað á matseðlum flestra staða.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það eru engar sérstakar hindranir en búðaferðir væru að mörgu leyti einfaldari ef allir matvöruframleiðendur hefðu umhverfissjónarmið að leiðarljósi.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum barnlaus hjón og mikill samhugur ríkir um matinn sem við eldum stundum saman og stundum fyrir hvort annað.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Ég hef ekki lent í neinum vandræðum með vini eða fjölskyldu vegna mataræðis.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég hef engar sérstakar matarhefðir og finnst gaman að prófa allskonar. Þetta er því í raun ekkert vandamál. Ef eitthvað er borið á borð sem ég get ekki borðað eða vil ekki borða, svo sem hvalkjöt, þá bara útskýri ég hvers vegna og það hefur mætt skilningi.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Sama svar og að ofan. Ég er með fæðuofnæmi og fólk skilur það vel. Það sem ég borða ekki af umhverfisástæðum hefur líka mætt skilningi. Ég er greinilega heppin með fólkið í kringum mig.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei, ekki get ég sagt það.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég nota bæði uppskriftabækur og netið. Fæ pósta frá womensweeklyfood.com.au sem er síða með mjög fjölbreyttum og skemmtilegum uppskriftum. Þá finnst mér alveg ótrúlega gaman að henda uppskriftum inn í næringaröpp til að vita hvernig maturinn minn er samsettur t.d. happyforks.com. Ég nota líka app sem heitir Supercook sem heldur utan um "búrið" mitt og ég get fengið óteljandi uppskriftir út úr því með því að velja hvað ég á til og hvaða hráefni á að vera í aðalhlutverki. Frábært tól til að sporna við matarsóun.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Hún felur það í sér að það sem ég kýs að gera í mínu daglega lífi muni ekki skaða plánetuna og skila henni í verra ásigkomulagi til næstu kynslóðar.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Í hollum mat er eldað úr fersku hráefni.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Nei, kannski ekki þannig lagað séð en mér finnst mjög mikilvægt að fræða fólk um hvað við erum að gera plánetunni með því að versla "óupplýst". Við þurfum að skilja að við sem neytendur höfum ótrúlega mikil völd og valkostir einstaklinganna skipta bara mjög miklu máli.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, það ætla ég rétt að vona.

Við hvað starfar þú?
Ég starfa í opinbera geiranum.

Hver er menntun þín?
Framhaldsmenntun á háskólastigi.
Aðfangategund