Þjóðhættir/ Svör

01.01.2020 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2020 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-620
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan og því eru engar dýraafurðir í matarræðinu mínu.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Í tvö og hálft ár.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég hef verið mikill dýravinur alla ævi og alltaf talið rangt að koma illa fram við dýr. Þegar ég var stelpa þá var ég talsvert í sveit og þrátt fyrir að njóta þess að vera þar með fólkinu mínu þá vorkendi ég dýrunum og var í mikilli sorg að horfa upp á aðstæður þeirra. Á þessum tíma var mér alltaf tjáð að ég yrði að borða matinn minn og þrátt yfir að vera alltaf með mikil meltingarfæravandamál og ,,matvendni" þá var aldrei í boði að prufa að taka dýraafurðir út...heldur var ég látin þjást, því jú ég yrði ekki heilsuhraust nema að fá nóg af mjólk, fiski og kjöti í líkamann. Fyrir tæplega þremur árum ávað ég síðan sjálf (án þess að ráðfæra mig við lækni) að prufa að taka allar dýraafurðir úr matarræðinu þar sem meltingarfæralæknir vildi að ég færi að taka stera þar sem ég var orðin mjög vannærð og með verulegan járnskort. Þá fannst mér mikilvægt að athuga hvort vegan matarræði virkaði...sem það gerði. Ég er komin í kjörþyngd núna er góð í járni og þarf engin lyf við meltingarfæravandræðum lengur. Það má því segja að þó svo fyrsta skrefið í átt til veganisma hafi verið heilsufarsleg ástæða, þá er ég þó fyrst og fremst vegan fyrir dýrin.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ótrúlegt en satt þá heyrði ég orðið vegan ekki fyrr en árið 2016 og að það væri hægt að lifa án dýraafurða. Læknar voru alltaf svo mikið að innprenta í mig mikilvægi þess að borða járn- og próteinríka fæðu en bentu mér alltaf bara á dýraafurðir. Mig langaði rosalega mikið að verða vegan strax og ég gerið mér grein fyrir að fólk var að geta lifað án dýraafurða en því miður var starfsfólk í heilbrigðiskerfinu ekki sammála því. Ég var búin að finna lengi að mjólkurafurðir gerðu mér illt og því var ég löngu búin að takmarka þær mikið í matarræðinu. Fyrir um 5 - 6 árum fór ég að taka að mestu allt rautt kjöt út og borðaði einnig aðeins lítið magn af kjúklingi og fiski. Því miður var ég ekki þá farin að taka inn baunir og tófú en það kom inn þegar ég ákvað að verða vegan. Í rauninni var ég svo í 1 mánuð að gera nokkur ,,mistök" í veganvegferð minni á meðan ég prufaði mig áfram en það má segja að ég hafi orðið vegan á einum degi.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er mun meðvitaðari um umhverfismál og tek mjög nærri mér hvernig við förum með dýrin, jörðina og mannkynið. Hef tekið mig mikið á í allri eyðslu og vel helst að versla grænmeti í ,,minnkum matarsóun" , nýti alla afganga vel, kaupi notuð föt og vörur og vel helst upplifanir í gjafir.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Það hafa orðið mjög miklar breytingar á mér eftir að ég varð vegan. Í fyrsta lagi þá er líkamleg heilsan mín mun betri sem ég veit að er 100% matarræðinu það þakka. Í öðru lagi færðist viss friður yfir mig sem erfitt er að lýsa en á móti einnig sorg yfir því að aðrir í kringum mig séu ekki búnir að ,,opna augun". Ég verð einnig að viðurkenna að ég á frekar erfitt með að mæta á mannamót, í saumaklúbba og boð þar sem matur er í boði þar sem ég fæ stöðugt að heyra eitthvað neikvætt um veganisma. Mér finnst einnig eins og ég sé orðin ,,vesen" í slíkum aðstæðum. Því miður umgengst ég engan sem vegan og fjölskylda og vinir eru flest afkomendur bænda og sjómanna eða starfa við þessar atvinnugreinar sjálft. Því upplifa margir í kringum mig að ákvörðun mín sé persónuleg árás á þeirra lífsviðrværi. Ég tek þó fram að ég er alls ekki að predika neitt við neinn en virðist þó þurfa að svara endalausum spurningum sem eru í rauninni frekar spurðar til að gera lítið úr veganisma.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla helst í Krónunni, Bónus og Veganbúðinni. Mér finnst æðislegt að nýta mér ,,Minnkum matarsóun" og matreiði ýmsa grænmetisrétti úr því sem ég finn þar. Sumt sem ég kaupi er mjög ódýrt s.s. baunir og korn en annað er frekar dýrt. Ég kaupi ekki mikið af tilbúnum veganréttum og nota frekar baunir, seitan og tófú. Mér finnst mikilvægt að hafa sem minnst af umbúðum og versla helst hreinlætisvörur sem hægt er að kaupa áfyllingu á. Þrátt fyrir að ég vilji helst velja íslenskt þá er því miður allt of lítil framleiðsla á vegan mat framleiddur hér á landi en ég geri mitt besta. Markaðsetning matvæla hefur eflaust alltaf áhrif á mig en ég hugsa oft að það sé sniðugt að prufa hitt og þetta en það lendir þó alls ekki allt í matarkörfunni.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það er þokkalegt aðgengi að mat fyrir mig þar sem ég bý.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef frekar mikinn áhuga á matargerð og er núna mikil mat-elskandi, sem var ekki raunin áður en ég varð vegan. Ég les mikið af uppskriftum, prufa sumar og breyti eftir mínu höfði. Stundum vildi ég óska að ég gæti borðað meira svo ég geti eldað allt það sem mig langar til.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Úfff... ætli það sé ekki mikilvægast að maturinn sé bragðgóður, með góðri áferð, alls ekki eitthvað mauk.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég kýs helst hráefni sem eru sem minnst unnin en vel þó líka alveg unnin matvæli inn á milli.

Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Það er í rauninni ekkert sem ég sakna en það tók mig um ár að hætta að hugsa um ostana. Borða núna nokkrar tegundir af vegan ostum og er alsæl.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég á mjög gott eldhús sem er fullt af góðum tækjum og tólum. Ég á t.d. hrærivél, gaseldavél, pizzaofn, airfrier, matvinnsluvél, blandara, töfrasprota, steypujárnspönnur og potta. Þetta átti ég allt áður en ég varð vegan en ég er duglegri að elda og nýta mér tækin mín núna. Það er ýmislegt sem ég gæti alveg hugsað mér að bæta inn í eldhúsið svo sem hraðsuðupott en hann tekur pláss sem ég er ekki til í að fórna.

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Ég fer ekki oft út að borða þar sem mér finnst skemmtilegt að elda. Það er ágætis úrval af góðum vegan möguleikum á höfuðborgarsvæðinu og ég er enn að prufa mig áfram í veitingastöðum og því fer ég helst á nýjan stað í hvert skipti. Ef ég er í tímaþröng þá nýti ég mér stundum að sækja skyndibita og þá helst hjá Jömm, Dirty burger and ribs, Serrano og Junkjard.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Það sem mér finnst erfiðast er fáfræði annarra. Ég væri einnig til í að vörur sem eru ,,óvart" vegan væru með vegan merkingu til að gera verslun auðveldari. Krónan gerir þetta upp að ákveðnu marki en það eru þó fullt af vörum sem þeir hafa ekki merkt. Það er því æðislegt að versla í Veganbúðinni því þar eru alltaf nýjar og spennandi vörur sem hægt er að vera viss um að séu 100% vegan.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Ég bý með maka og 1 barni. Ég er ein vegan en það gengur vel. Maðurinn minn eldar oftast fyrir sig og son okkar en ég fyrir mig. Sumt er þó sameiginlegt s.s. meðlæti og sósur sem við pössum að sé vegan.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Nánasta fjölskyldan mín er styður mig mjög en ég upplifi mig sem ,,vesen" í matarboðum og saumaklúbbum. Það getur verið erfitt að í hvert skipti sem borðað er í félagskap með öðrum þá þarf að ræða veganisma...og oftast að hálf vorkenna mér, eins og hann eigi að vera svo svakalega erfiður. Einnig finn ég að bændur og sjómenn fara í mikla vörn og koma með ýmsar ,,hroka" athugasemdir við mig án þess að ég sé neitt að ræða veganisma. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á mig en með tímanum hefur þetta minnkað og ég farin að kunna að láta taka svona athugasemdir ekki inn á mig. Furðulegast finnst mér þó að stofnanir hjá ríki og sveitafélögum eiga stundum erfitt með að taka tillit til veganisma og reyndist það t.d. kokknum á Reykjalundi frekar flókið. Þar var lausnin þurrt grænmetisbuff í flest mál ásamt salati. Þegar næringarfræðingurinn fór að hafa áhyggjur að ég fengi ekki nægilegt próteinmagn í matnum hvatti hann mig til að ræða við hann. Svarið sem ég fékk var þá ,,já þú borðar ekki kjöt og fisk". Eftir það var baunabuff til skiptis við grænmetisbuffin lausnin.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Ég hef búið mér til mínar matarhefðir á helstu hátíðum og það gengur vel. Fyrstu tvö árin mætti ég oftast með nesti í fjölskylduboð en núna upp á síðkastið fóru fjölskyldumeðlimir að leita ráða hjá mér og ég aðstoðað þá við matargerðina heima hjá þeim. Það er mikil framför á stuttum tíma.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Því miður lendi ég oft í því að ekki er gert ráð fyrir mér í boðum og lendi ég þá í að þurfa að borða meðlæti eða þurrt brauð. Stundum er ég beðin um að mæta með nesti og í einstaka tilfellum hefur verið keypt vegan réttur fyrir mig.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei það held ég ekki.

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Ég horfi talsvert á myndbönd á Youtube og fæ hugmyndir af Instagram. Síðan nýti ég mér Pinterest til að vista þær uppskriftir sem mér líst vel á. Vegan Ísland hópurinn á facebook hefur oft komið sér vel og þaðan fær ég margar upplýsingar og góðar hugmyndir.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Ég er byrjuð að rækta kartöflur, kryddjurtir og ætla mér að auka við heimaræktun á næstunni. Það er liður í sjálfbærni að passa að taka ekki meira frá jörðinni en við gefum til hennar. Best væri ef hægt er að rækta og framleiða sem mest af matvælum á Íslandi á umhverfisvænan hátt. Ég vona að það verði mikil þróun í grænni matvælaframleiðslu hér á landi sem allra fyrst.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Hollur matur er í mínum huga matur sem er lífrænt ræktaður og sem minnst unninn og með sem fæstum aukaefnum. Í mínum huga eru dýraafurðir ekki hollar...kannski af því að ég fann svo mikinn heilusfarslegan ávinning af því að taka þær út úr matarræðinu mínu.

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Það mér mikilvægt að fræða aðra um matarræðið, en þó aðeins ef fólk hefur áhuga eða er að koma með athugasemdir varðandi það. Reynsla mín er að predikun virkar oftast öfugt og fær fólk frekar til að fara í vörn. Best er þegar hægt er að gefa þeim að smakka og sýna fram á hversu auðvelt er að gera bragðgóðan vegan mat á auðveldan hátt. Mér finnst auðvitað mikilvægt að sem flestir taki sem mest af dýraafurðum úr matarræðinu og því þarf að gera vegan afurðir vel sýnilegar í búðum og á veitingastöðum. Það þarf að koma því í umræðuna hversu mikilvægur veganismi er fyrir náttúruna, heilsuna og auðvitað dýrin. En einnig að láta það ekki líta út fyrir að vera svo mikil fórn í því að sleppa dýraafurðum...eins og virðist heyrast svo oft þegar fjallað er um veganisma í fjölmiðlum.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já í mínum huga eru dýr ekki matur. Mér líður vel á plöntumiðuðu fæði og get ekki séð mig breyta því nema þá helst að borða aðeins hollar.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Það þarf að fræða ráðamenn um ávinning veganisma á umhverfið og heilsu og í framhaldi þrýsta á breytingar í styrkjum í matvælaframleiðslu á Íslandi. Einnig þarf að uppfæra manneldismarkmið í ljósi nýrra rannsókna og passa upp á að í öllum opinberum mötuneytum sé boðið upp á plöntufæði. Fræða þarf kennara um veganisma, útbúa fræðsluefni fyrir nemendur og breyta áherslum í næringarfræði og heimilisfræðikennslu í skólum. Því miður er enn talsvert um fordóma og vanþekkingu í þjóðfélaginu gagnvart vegaisma. Margir eru á þeim stað sem ég var, þ.e. að langa til að taka skrefið en fá hræðsluáróður allt í kringum sig og m.a. frá heilbrigðisstarfsfólki, því miður.

Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei.

Við hvað starfar þú?
Ég er í endurhæfigu eins og er en starfaði þar áður sem grunnskólakennari.

Hver er menntun þín?
Grunnskólakennarafræði, B.Ed.
Aðfangategund