Þjóðhættir/ Svör

01.01.2019 - 01.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.2019 - 01.01.2022
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-619
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég rækta sauðfé og borða þær afurðir í flest mál. Einnig fisk sem ég fæ í skiptum fyrir hey og kjöt. Ég veiði hreindýr þegar ég fæ leyfi til þess. Rækta kartöflur og annað grænmeti.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
3 ár

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Búferlaflutningur í sveit, þá sköpuðust aðstæður til ræktunar.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Mætti kannski kalla þetta sveita mataræði.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Kaupi ekkert annað kjöt lengur og leita leiða til að nýta afurðirnar sem best.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla í Krónunni á Hvolsvelli. Alltaf það sama sem fer í körfuna. Mjólk og mjólkurvörur. Brauðmeti. Laukur, tilbúnar sósur s.s majones. Hveiti og sykur o.þ.h. Yfirleitt allt íslenskt.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott.

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hafði almennt lítinn áhuga á matargerð. En eftir að ég fór að rækta mitt kjöt sjálf jókst áhugi á að nýta skepnuna betur, hirða allan innmat, svíða hausana, gera kæfu. Nýta eldri ær sem þarf að slátra í bjúgu og hangikjöt o.þ.h. Gamlar aðferðir við geymslu matar hafa vakið áhuga minn, ss söltun og súrsun.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskleiki. Að vita hvaðan maturinn kemur og hvernig hann var unninn. Það er mjög ánægjulegt að borða mat sem maður hefur sjálfur aflað og unnið.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ferskleiki, jafnvel þótt maturinn sé unninn þá veit maður nákvæmlega hvernig hann var hanteraður og geymdur.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda mat daglega. Stór Pottur, hakkavél, bjúgnasprauta

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer nánast aldrei út að borða.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Að rækta meira sjálf. Þá helst rófur og gulrætur. Langar líka að fá mér hænur til að þurfa ekki að kaupa egg.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
2 í heimili sem borða eins mat.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Mikill stuðningur of flestum finnst þessi lífsmáti spennandi

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já gamlar matarhefðir skipta mig miklu máli.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Allir alsælir sem ég býð. Barnabörnin sem búa í Reykjavík finnst frábært að fá heimatilb bjúgu, saltkjöt, saltfisk o.þ.h

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Googla eða leita í gömlum uppskriftabókum, s.s Jóninnu. Spyr eldra fólk í sveitinni um aðferðir.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Hugsa um féð mitt. Hvað þær borða og hvað ég þarf að gera til að hindra að þær fái sjúkdóma. Rækta mitt eigið fóður fyrir þær þ.e hey. Þær eru sólgnar í hvönn og því sker ég hvönn fyrir þær á vorin

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Allur almennur matur, og að passa að fæðið sé ekki einhæft. Það hvernig skepnum er slátrað og hreinlæti við slátrun og meðferð matvæla er mikilvægt

Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.

Almennt finndist mér leitt ef gamaldags íslenskar aðferðir við vinnslu matar gleymast, mætti verða vakning hjá yngri kynslóðum.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já og ganga lengra í skálfbærni.

Við hvað starfar þú?
Skrifstofustörf

Hver er menntun þín?
Viðskiptafræðingur
Aðfangategund