Þjóðhættir/ Svör

11.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Óþekkt (Aldur ekki skilgreindur)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-618
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég er vegan, mataræðishluti þess felur þá í sér að borða engar dýraafurðir. Ég borða yfirleitt morgunkorn með haframjólk á morgnana, jógúrt og brauð eða afganga í hádegismat, kex og kökur eða álíka ásamt kannski ávexti með kaffinu og ýmiss konar mat í kvöldmatnum, oft með „kjötstaðgenglum“.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég hef verið vegan frá því í október 2018, eða í 3 ár og 3 mánuði.

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Ég er vegan vegna þess að dýraiðnaðurinn er viðurstyggilegur og mér finnst almennt ekki rétt að nýta dýr til matarframleiðslu, alveg sérstaklega ekki ef það felur í sér ítrekaðar þunganir mjólkurkúa eða dauða. Ég get ekki hugsað mér að taka þátt í pyntingum og morðum á dýrum.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég heyrði fyrst um veganisma í gegn um internetið. Ég hafði hætt að borða kjöt meira en þremur árum áður af sömu ástæðu en hélt mig við það sem fyrsta skref lengi vel. Með tímanum fór ég svo að kynna mér fleiri og fleiri vegan vörur á borð við jógúrt og mjólk og ég tók svo skrefið til fulls eftir að hafa horft á heimildarmyndina Dominion. Þá hætti ég að borða allar dýraafurðir fyrir utan það sem ég átti til heima og þegar það kláraðist lýsti ég mig formlega vegan.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég get ekki sagt að þær hafi endilega gert það mikið, þá frekar bara vegna þess að ég var 17 ára þegar ég varð vegan og hef þroskast með aldrinum, ekki að veganisminn hafi í sjálfu sér haft áhrif.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ég finn lítinn mun á mér andlega, fyrir utan auðvitað það að mér líður betur að lifa í samræmi við eigin gildi. Meltingin mín er betri en hún var, sem er nær algilt mynstur meðal þeirra sem ég þekki sem eru vegan.
Aðfangategund