Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Óþekkt (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Tímabil: 01.01.1974 - 01.01.2023
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-616
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Borða heilsusamlegt fæði skv. Leiðbeiningum frá Landlæknisembættinu. Borða afar lítið af unnum eða tilbúnum matvörum og elda flest allt frá grunni sjálf. Nokkrar fæðutegundir og íblöndunarefni sem ég forðast vegna óþols fyrir þeim.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
10 ár.
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Vegna heilsuvandamála og vitund um hvað er hollt og hvað ekki. Líka með hliðsjón af því sem er hagstætt fyrir náttúru og umhverfi. Borða meira af mat úr nærumhverfi og minna af innfluttum vörum. Vel t.d. alltaf íslenskt grænmeti og kjöt fram yfir erlent. Bæði minna af aukaefnum og sýklalyfjum notuð í íslenskum landbúnaði og minni mengun af styttri flutningum. Vinnuafl síður þrælar eða þolendur mansals hér en t.d. á Spáni sbr. fréttir á síðasta ári.a
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Hef frá unglingsaldri fylgst með ráðleggingum um hollt mataræði og stefnur og strauma í því. Breytingar eiga sér stað á löngum tíma smá saman. Breytt val á uppskriftum sem ég nota skiptir mestu auk þess að nota meðvituð innkaup.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Ég er stöðugt að gera breytingar eftir því sem reynslan og nýjar niðurstöður rannsókna bendir til. Nú síðast (4 ár) höfum við minnkað kjötneyslu niður í 2svar í viku og þá aukið grænmetið í staðinn bæði út frá hollustusjónarmiðum og umhverfissjónarmiðum. Borðum rautt kjöt sjaldnar en áður en samt 1 sinni í viku.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Ef ég fylgi ekki þessu mataræði finn ég áhrifin af því svo til strax í verri líðan, verkjum og þreytu vegna heilsufarsvandamála. Aðeins meira vesen að fara í matarboð en flestir sem bjóða mér í mat vita af mínu matarvali svo það er ekki oft vesen. Sendi oft fyrirspurn á veitingastaði áður en ég borða hjá þeim og stundum hef ég hætt við að borða þar sem mér líkar ekki svörin sem ég hef fengið og treysti þeim ekki.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ég versla í Krónunni og er ánægð með vöruúrval og verð þar. Einnig hafa þeir yfirlýsta umhverfisstefnu og eru með talsvert úrval af umhverfisvænum vörum og lífrænum vörum líka þó það mætti vera meira. Uppruni vöru skiptir mig miklu máli og eins umbúðir. Skil eftir umbúðir í búðinni ef ég get og vel alltaf pappírsumbúðir framyfir plast sé þess kostur. Les upplýsingar á vöru og verð að taka með mér gleraugu til að geta það því oftast er letrið svo smátt. Auglýsingar skipta mig litlu máli. Uppröðun í búðinni er yfirleitt þægileg en hundleiðinlegt þegar henni er breytt mikið því það lengir verulega tímann sem tekur að versla.
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Fæ flest allt sem ég þarf og mig langar að nota. Kaupi einstaka krydd erlendis sem ég fæ ekki hér og bý til mínar eigin kryddblöndur.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef talsverðan áhuga á matargerð og nota mikið af nýjum uppskriftum i hverjum mánuði. Mest uppskriftir frá Miðjarðarhafslöndum, bæði norðan og sunnan hafsins. Leiðist verulega að borða vondan mat. Bý oft til matseðil fyrir vikuna til að nýta hráefni sem best og til að fækka búðaferðum. Hugsa um mat og hvað eigi að vera í matinn daglega. Fylgist með nýjum uppskriftum hjá uppáhalds kokkunum mínum. Breyti oft uppskriftum og bý til mínar eigin.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Ferskt hráefni, mátulega eldað með góðu og fjölbreyttu kryddbragði, fallega fram borið og lystilegt að sjá.
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Vil helst ferska vöru, með fáum innihaldsefnum (kaupi ekkert sem er með fleiri en 5 innihaldsefnum), engum bragðbætandi efnum og helst engum rotvarnarefnum.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Nei ekkert nema kannski væri gaman að geta smakkað hangikjöt einu sinni á ári. Þoli ekki saltpétur sem sett er í reykta og saltaða matvöru.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Daglega yfirleitt. Elda þó oft tvöfalldan skammt og á þá auka máltíð í frystinum sem er mjög þægilegt stundum. Þarf ekkert sérstakt umfram það sem venjulegt er í eldhúsum, góða hnífa, góða pönnur og potta, tréáhöld, rétt hæð á vinnuborði og þokkalegt vinnupláss. Nota sjaldan rafmagnstæki við matreiðslu nema töfrasprota við súpugerð.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Við förum einu sinni til tvisvar í mánuði út að borða. Veit hvaða veitingastaðir henta mínu mataræði og kanna málið með tölvupósti ef ég þekki það ekki. Fer alls ekki á suma veitingastaði sem ég veit að henta ekki mínu mataræði.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Engar sérstakar og ég hef fundið lausnir á flestu. Tek með mér nesti i vinnuna og flugferðir. Sleppi að borða ef mér líst ekki á það sem er í boði. Stærra letur á umbúðum myndu auðvelda mér lífið.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum bara tvö hjónin í heimili en reglulega fáum við dóttur okkar og hennar fjölskyldu í heimsóknir í nokkra daga í senn þar sem þau búa erlendis. Hún er með 1 barn. Við erum öll á sama mataræði svo það er ekki vandamál.
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Hvorki stuðning eða gagnrýni en oft forvitni yfir því hvað ég sé með í nesti því það eru oft afgangar frá deginum áður. Ég er líka oft spurð ráða um mat og mataræði.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Er alin upp við breytilegt mataræði á hátíðum og hef haft það þannig að mestu. Hef sleppt hangikjöti og öðru söltuðu og reyktu kjöti en það er ekkert stórmál.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Læt vita um mínar sérþarfir ef mér er boðið í mat og yfirleitt er það ekki vandamál en ég hef þó lent í því að geta bara borðað kartöflurnar en það hefur sjaldan gerst. Sumir gestgjafar hafa verið stressaðir yfir þessu en ég reyni að gera lítið úr því og sleppi þá bara sósu eða öðru sem er líklegt til að henta mér ekki.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Landlæknir. Vefirnir: mataraedi.is vinotek.is jamieoliver.com ottolenghi.co.uk Pinterest
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Minni neysla, minni matarsóun, minni notkun jarðefnaeldsneytis, endurnýting og endurvinnsla, skógrækt og grænmetisrækt, Umhverfisvænna val á vörum og þjónustu, Umhverfisvænni hús og efnisnotkun í húsum.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fersk matvara, rétt fituval, lítill sykur, rétt hlutfall af næringarefnum miðað við leiðbeinandi reglur landlæknis.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Ekki nema ég sé spurð um það. Er ekki í neinu trúboði með mataræði.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Nei
Við hvað starfar þú?
Vísindarannsóknir
Hver er menntun þín?
Hjúkrunarfræðingur

Spurningaskrá
Aðfangategund