Þjóðhættir/ Svör

05.01.2022

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-607
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Ég myndi kallast flexitarian. Held mig að mestu við grænmetisfæði (ásamt eggjum og osti) en hef gert undantekningar í matarboðum og þegar þannig stendur á. Ég varð þó nýlega ófrísk og treysti mér ekki til að halda mér jafn mikið við grænmetisfæði og áður þar sem enn skortir leiðbeiningar frá t.d. Landlækni um vegan mataræði á meðgöngu. Ég stefni þó á að halda áfram að tileinka mér grænkerafæði og nýta þær uppskriftir og vörur sem ég hef gert hingað til, en að borða meðfram því t.d. lax.

Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
Ég var grænmetisæta að mestu í 7 mánuði og fært mig meira yfir í flexitarian mataræði sl. mánuð

Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Aðallega umhverfissjónarmið, ég hef kynnt mér í meira mæli áhrif dýraframleiðslu á umhverfið og vil leggja mitt af mörkum í baráttunni. Dýraverndarsjónarmið spila líka inn í.

Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Ég man ekki hvar ég heyrði fyrst af þessu en ég á frænku og tvær vinkonur sem standa mér nærir og eru grænkerar. Þær hafa frætt mig og sýnt mér að þetta er ekki eins erfitt að man heldur.

Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Dýraverndar- og mannúðarsjónarmið hafa meiri áhrif á mig núna en þegar ég hóf vegferðina. Í upphafi var ég aðallega að hugsa um umhverfið en t.d. hafa framleiðsluaðferðir og velferð starfsfólks og dýra í framleiðsluferlinu meiri áhrif á mig í dag en þá.

Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Nei, engar breytingar.

Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Ýmist í Bónus eða Krónunni og einstaka sinnum í Hagkaup. Ég sækist eftir ákveðnum vörum í t.d. Krónunni og Bónus en hvaða verslun verður fyrir valinu fer líka eftir staðsetningu og stundum opnunartíma.

Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Mjög gott

Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Ég hef ekki mikinn áhuga á matargerð en matur er mikilvægur í lífi mínu og ég elska að borða góðan mat. Ég ver þó litlum tíma í að hugsa um og laga til mat en prófa nýjar uppskriftir kannski 2-3 í mánuði. Bý þó aldrei til mínar eigin.

Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Gott bragð og ilmur er mikilvægast, svo áferð.

Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Ég kaupi bæði ferskvöru og unnar vörur og fyrir mér snúast gæðin um að framleiðsluaðferðir séu góðar og velferð starfsfólks tryggt.

Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Ég elda heima 4-6 sinnum í viku og hef ekki fundið fyrir þvi´að það vanti serstök áhöld eða tæki

Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Stöku sinnum. Engin ákveðinn staður sem verður oftast fyrir valinu en ég skoða matseðilinn yfirleitt fyrirfram þar sem ég vil geta valið vegan rétti sem mér líst vel á.

Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Greinagóðar leiðbeiningar frá Landlækni um vegan mataræði fyrir ungabörn og á meðgöngu. Er með ungabarn sem er að byrja að borða og kann ekki nógu vel á þetta til að treysta mér í að halda barninu í grænmetisfæði. Hef ekki nógan metnað í þessum málum til að finna þessar upplýsingar sjálf, mér finnst það flókið og ég veit ekki hvaða upplýsingum ég get treyst.

Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Við erum tvö í sambúð með 12 mánaða barn. Ég er auk þess ófrísk. Maðurinn minn og barn borða meira kjötmeti en ég en við eldum þó oft vegan eða grænmetisrétti fyrir alla.

Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Aðallega stuðning en finn fyrir því í matarboðum að fólki finnst stundum erfitt að þurfa að finna rétt sem hentar mér. Það skiptir mig litlu máli á þessu stigi og ég borða yfirleitt það sem er í boði þó eitthvað sé af kjöti í, reyni þá frekar að forðast akkurat þá bita.

Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Já, þær hafa skipt mig máli og ég prófaði í fyrsta skipti um liðin jól að fá mér sérstakan grænmetisrétt á aðfangadag. Það var ekki svo flókið þar sem allt meðlæti hentaði mér svo þetta snerist bara um eitthvað í staðinn fyrir hamborgarhrygginn.

Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Ég get yfirleitt valið eitthvað sem er í boði sem er án kjöts eða fisks, þar sem ég borða enn egg og ost er það ekki mikið mál.

Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei

Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Vegan Ísland, Veganistur, Vegan búðin Googla svo ef ég er með grófar hugmyndir eða vantar replacement í ákveðna rétti.

Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Hugsa um allar neysluvenjur og velja sjábæra hluti og mat þegar hægt er, t.d. varðandi geymslu matvæla, sápur og heimilisvörur og fatnað.

Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Fjölbreytt mataræði og litríkt, lítil sem engin kjötneysla. Ferkvörur og lítið unninn matur er hollari en mikið unninn.

Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já, ég hef ekki ennþá fundið þörf til að færa mig alveg yfir í vegan mataræði en er opin fyrir því og vil minnka við mig neyslu dýraafurða eins og kostur er. Ég er spennt að sjá leiðbeiningar frá Landlækni um hvernig ég geti tileinkað mér grænkeramataræði á meðgöngu og kynnt börnin mín fyrir þeim lífstíl án þess að hafa áhyggjur af upptöku vítamína og næringar.

Við hvað starfar þú?
Sérfræðingur hjá stjórnarráðinu

Hver er menntun þín?
Meistaragráða frá Danmörku
Aðfangategund