Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2022-1-606
Spurningaskrá / Svör
Lýstu mataræði þínu í daglegu lífi. Taktu fram ef þú skilgreinir mataræði þitt á ákveðinn hátt, og hvað felst í þeirri skilgreiningu.
Borða sem hreinastan mat, forðast unnar matvörur. Kaupi mjög sjaldan kjöt. Er reyndar nokkuð þröngur stakkur sniðinn um þessar mundir vegna blankheita og vel það besta úr ruslagámum verslana og það sem er að renna út og er á niðursetti verði innan dyra hjá þeim.
Hversu lengi hefur þú aðhyllst þetta mataræði?
15 ár
Hvað varð til þess að þú snerir þér að þessu mataræði? Hverjar eru helstu ástæðurnar að baki ákvörðuninni og hvers vegna heldurðu þig við það?
Líður betur af hollum mat. Einnig með aukinni meðvitund um framleiðsluhætti matvara og aðflutning þeirra.
Hvar heyrðirðu fyrst um þetta mataræði? Hvernig átti breytingin sér stað? Skyndilega eða smám saman?
Mataræðið er tilkomið vegna blankheita.
Hafa áherslur þínar eða viðhorf eitthvað breyst síðan þú byrjaðir á þessu mataræði? Geturðu gefið dæmi?
Meiri meðvitund um hina geigvænlegu matarsóun sem viðgengst í sjúku og eyðandi kapítalsheimshagkerfinu. Rækta sjálf svolítið.
Hefurðu upplifað einhverjar breytingar á þér sjálfri/sjálfum/sjálfu í kjölfarið á breyttu mataræði? T.d. breytingar á líðan (líkamlegri eða andlegri), bragðskyni, hegðun, áhugamálum eða félagslífi? Ef svo er, geturðu lýst breytingunum eða gefið dæmi?
Borða minni sykur og sælgæti, sætindaþörf minnkaði. Næmari á það sem er ekki svo gott, verður illt í maganum t.d., borða sjaldan yfir mig.
Hvar verslar þú í matinn dags daglega? Hvað ræður því hvaða vörur rata í innkaupakörfuna? (Skiptir t.d. verðlag máli? Uppruni vörunnar? En markaðssetning og auglýsingar? Upplýsingar á pakkningum? Uppröðun í búðinni?)
Versla í “síðasta séns” körfum stórmarkaða oftast, reyni að styðja við litlu búðina á horninu hjá mér m ýmislegt smálegt t.d mjólk í kaffið o.þ.h
Hvernig er aðgengi þar sem þú býrð að þeim mat eða hráefnum sem þú þarft til að geta farið eftir þínu mataræði?
Það fer bara eftir því hvað leynist í gámunum/afsláttarkörfunum hverju sinni.
Hversu mikinn áhuga hefur þú á mat og matargerð almennt? Er matur mikilvægur í þínu lífi? Hversu miklum tíma eyðir þú í að hugsa um, laga og neyta matar? Finnst þér gaman að prófa nýjar uppskriftir, eða jafnvel finna upp þínar eigin
Hef ekki mikinn áhuga að standa í fæðuöflun og eldamennsku, en get og kann að elda góðan mat úr litlu/handahófskenndu. Góður matur er mikilvægur fyrir mig, líður illa ef ég borða lélegan mat, kann virkilega vel að meta að vera boðin í mat.
Hvað einkennir góðan mat? (T.d. hvað varðar bragð, lykt, áferð, útlit eða aðra eiginleika).
Litríkur
Hvað einkennir gæða matvæli þegar kemur að þínu mataræði? Skiptir t.d. máli hvort varan er fersk eða unnin, með viðbættum efnum eða annað slíkt?
Innlend framleiðsla, helst ekki verksmiðjuframleidd.
Er eitthvað sem þú saknar sérstaklega mikið úr þínu fyrra mataræði? Hvers vegna?
Stundum fæ ég löngun í eitthvað salt og óhollt, t.d steiktar pulsur og kartöflustöppu. Held ég sé þreytt á þeim stundum.
Hversu oft eldarðu mat heima hjá þér? Hvað þarf að vera til staðar í eldhúsinu svo þú getir farið eftir þínu mataræði? (Sérstök áhöld eða tæki, ákveðið mikið pláss eða annað?)
Elda svona c.a 3svar í viku stóra skammta sem endast í nokkra daga og/eða set í frysti svo það er fljótlegt að hita seinna. Oftast er ofgnótt af mat eftir ferðir í stórmarkaðina eftir lokun og ríður á að vinna úr hráefninu strax og koma í frost. Er með mjög lítið eldhús og þ.a.l leiðinlegt að elda þar, hef aðgang að frystikistu hjá ættingja.
Ferðu oft út að borða? Hvert þá helst? Er auðvelt eða erfitt að panta mat á veitingastöðum sem hentar þínu mataræði?
Fer sjaldan en vildi gjarnan fá mér t.d góðan indverskan, sushi, gott hreint fæði t.d á coocoo’s nest, en fylgist lítið með veitingastaðaflóru bæjarins.
Hverjar eru helstu hindranir sem þú hefur rekist á í daglegu lífi þegar kemur að mataræði þínu? Hvað myndi gera þér enn auðveldara fyrir að fara eftir þínu mataræði?
Verðlag, hollur matur er of dýr fyrir mig að kaupa.
Lýstu heimilisaðstæðum þínum. (Hversu margir búa á heimilinu? Eru börn á heimilinu? O.s.frv.). Fara allir á heimilinu eftir sama mataræði og þú? Ef ekki, hvernig hefur það áhrif?
Hjón á sama mataræði
Upplifir þú stuðning eða gagnrýni frá fjölskyldu, vinum eða vinnu/skólafélögum varðandi þitt mataræði? Skiptir það þig máli? Geturðu gefið dæmi?
Beggja blands, fyrst hneykslun og fordæmingu frá ákv aðilum, minna á seinni árum þar sem matarsóun og að sporna við henni er nú orðið mainstream hugtak.
Skipta matarhefðir þig máli, t.d. við hátíðahöld? Hefur þú þurft að aðlaga hefðir að mataræði þínu? Hvernig þá?
Skiptir engu.
Hvað með veislur og matarboð? Þarftu að gera sérstakar ráðstafanir því tengt? Hvernig viðhorf hefur þú upplifað frá gestgjöfum eða öðrum gestum? Nefndu endilega dæmi.
Sumir vilja ekki borða mat sem það veit að kemur úr ruslinu( því það er yfirleitt maturinn sem er á boðstólum hjá mér), en þurfa kannski að láta sig hafa það og borða þá mj lítið. Dæmi: Í stóru fjsk boði voru tvö lambalæri framreidd, annað þeirra hafði ég lagt til. Hitt lærið kláraðist.
Hefur þú tekið eftir sérstökum viðhorfum eða öðru tengdu mataræði þínu út frá kyni þínu? Ef svo er væri gagnlegt að fá dæmi.
Nei
Hvert sækir þú helst upplýsingar, fróðleik, uppskriftir eða innblástur fyrir þitt mataræði? Endilega settu inn tengla á vefsíður eða samfélagsmiðla ef um slíkt er að ræða.
Stundum gúggla ég hvað er hægt að gera með þessu og hinu random hráefni (t.d salami og ertur) og fæ alltaf eitthvað skemmtilegt upp
Hvað felst í þínum huga í sjálfbærni í daglegu lífi?
Að borða mat sem annars hefði endað á haugunum, nýta almennt það sem til fellur, kaupa helst ekkert.
Hvað felst í þínum huga í heilsusamlegu mataræði? Hvað/hvernig er hollur matur?
Lítið unninn matur, framleiddur án eiturs, sem ekki er fluttur langa leið.
Finnst þér mikilvægt að fræða aðra um þitt mataræði? Hvers vegna og hvernig?
Hvers vegna ekki? Nefndu endilega dæmi.
Það er tvíeggjað sverð, ef það er of almenn vitneskja og útbreidd um gnægtarborð gámanna og þeirri sturlun sem ofgnóttin þar sýnir fram á bregða verslanir á það ráð að læsa gámum og/eða ráða verði til að hindra för fólks í þá. Hins vegar álít ég það að einhverju leyti vera ákveðna skyldu mína-og allra- að láta ekki matvæli, með öllum þeim tilkostnaði, vinnu, vatni og lsndrými sem framleiðsla þess útheimtir, bara enda í ruslinu. Allir ættu að vita af sóuninni og neita að taka þátt. Afsláttarkörfurnar (v/dagsetniga) sem nú eru komnar í sölu inni í verslunum eru að ákv leyti svar við ákalli mainstream neytenda gegn matarsóun, en stærra samhengið og vandamálið er kapítalisminn og ofgnóttin og fólk vill minna vita af því.
Sérð þú fyrir þér að halda áfram að fara eftir þessu mataræði um ókomna tíð?
Já
Við hvað starfar þú?
Er atvinnulaus sem stendur
Hver er menntun þín?
B.A próf í hugvísindum

Spurningaskrá
Aðfangategund