Stofuskápur
1910 - 1915

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Stofuskápur í tvennu
lagi. Neðri skápur er 95 sm. á hæð, breidd 125 og þykkt 55, - málin
eru miðuð við plötustærð. Á framhliðinni eru tvær hurðir og tvær skúffur
ofar. Hurðirnar eru rammi með einu spjaldi í hverri og eru
spjöldin með útskurði sem á að tákna
blómaker með blómum. Skúffur og hurðir eru læstar og skráarlaufin eru úr
messing. Listi er á milli hurða, útskorinn og með hefilstrikum. Einnig
sams konar listar framan á hliðarstykkjum. Kubbafætur með hefilstrikum.
Efri skápur stendur á plötu neðri skápar á fjórum renndum fótum og er bilið
milli skápanna í miðju 31 sm. en bogamyndað útskorið skraut til enda. Í
efri hlutanum eru tveir skápar, frekar mjóir, en stór spegill á milli þeirra.
Skáphurðirnar eru með sex rúðugleri hver, slípuðu og sett saman með
messingumgjörðum. Ofan við skápanna er mikið rennt skraut og skorið og
í miðju yfir spegli er burst með renndu og skornu skrauti. Öll hæð
efri skápsins er 148 sm. og þykkt 24 sm. Skápurinn er smíðaður úr
eik og er vinna á honum öll hin vandaðasta. Skápinn smíðaði Frímann Jakobsson
trésmiður faðir Jakobs forstjóra Kaupfélags Eyfirðinga. Eins og áður
segir er skápurinn smíðaður úr eik og að mestu úr skipaeik 2 tommu ókanntskornum
plönkum og má af því ráða hve mikil vinna hefur farið í þá smíði sem mest
fór fram í höndum þar eð vélar voru þá ekki í allra smiða eigu. Talið er
að Frímann hafi smíðað neðri skápinn um 1912, en að þeirri smíði lokinni
var nokkur dráttur á að hann hæfi smíði á efri skápnum og mun hann lengi
hafa verið í vafa um hvernig hann ætti að hafa hann. Þá var það eitt
sinn að kona hans fór í kvikmyndahús á Akureyri og er hún kom heim kvatti
hún mann sinn til að sjá þá mynd, etv. fengi hann þá nokkra hugmynd um
skápinn sem hann hafði svo lengi hugsað sér að smíða. Frímann fór
að orðum konu sinnar, fór í kvikmyndahúsið og sá þar fyrirmynd sem honum
geðjaðist að. Hann festi hana sér í minni og hóf svo smíðið sem að
sjálfsögðu tók langan tíma. En svo fór að þarna varð til hinn fegursti
hlutur. Eftir það var skápurinn í eigu Frímanns og konu hans
Sigríðar Björnsdóttur á meðan þau bjuggu í Brekkugötu 11 á Akureyri, en
það hús byggði Frímann árið 1903. Heimildarmaður þessarar frásagnar
er Jakob Frímannsson, en hann gaf Minjasafninu skápinn að ósk móður sinnar
að henni látinni.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1910 - 1915
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 4450
Safnnúmer B: 1978-4450
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stofuskápur