Hús við Bankastræti 1890
1885 - 1942

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Ahrenzmyllan, Hollenska myllan, og hús við Bankastræti, séð frá Arnarhóli. Vatnslitir á pappír, undir gleri í gylltum viðarramma.
Stærð: 15 x 34,5 sm. Stærð með ramma: 53,7 x 35 x 2,8sm.
Myndefni: Hollenska myllan og hús við Bankastræti, séð frá Arnarhóli 1890. Myllan var reist 1847 af Knudtzon kaupmanni. Í henni var malað korn í 30 ár en á neðstu hæðinni var íbúð. Þar bjó lengi Rannveig „í myllunni“Jóhannesdóttir sem síðar varð eiginkona Eyþórs Felixsonar kaupmanns. Vængirnir voru teknir af myllunni 1892 og hún rifin 1902. Neðan hennar má sjá bakhlið tveggja húsa við Þingholtsstræti, það eru húsin nr. 3 og 5. Fyrir miðju er Bankastæti 7, íbúðarhús Helga Hálfdanarsonar prestaskólakennara, föður Jóns biskups. Húsin tvö til hægri eru Skólastræti 1, hús Björns Guðmundssonar múrara og kaupmanns, og Bankastæti 3, hús Sigurðar Kristjánssonar bókaútgefanda.
Ferill, saga: Reykjavíkurborg eignaðist rúmlega hundrað Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar árið 1945. Myndasafnið má telja upphafið að minjasafni Reykjavíkur og eru ómetanlegar heimildir um sögu borgarinnar.
Æviágrip: Jón Helgason biskup var fæddur 21. júní 1866 að Görðum á Álftanesi. Tveggja ára gamall fluttist hann til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum, þeim Helga Hálfdánarsyni prestaskólakennara og Þórhildi Tómasdóttur. Að loknu stúdentsprófi 1866 sigldi hann til Kaupmannahafnar til guðfræðináms. Meðfram náminu fylgdi hann ráðleggingum föður síns og kynnti sér fagrar bókmenntir. Jafnframt segir Jón í ævisögu sinni: "En svo var annað, sem ég var sérstaklega hneigður fyrir og hafði verið það frá æsku, sem ég nú varði mörgum tómstundum til að iðka, en það var dráttlist. Mjög snemma Hafnarveru minnar hafði ég tekið að venja komur mínar á myndasöfn borgarinnar ... Þetta varð aftur til þess, að hjá mér vaknaði löngun til þess að fá tilsögn í dráttlist hjá góðum kennara og þar kom, að ég keypti mér tilsögn hjá norskum málara ... Louis Moe að nafni. ... Er mér óhætt að segja, að ég hefi aldrei iðrast þeirrar tafar frá lestrinum, sem af þessu leiddi, því að þótt mig aldrei hafi dreymt neina listamannsdrauma, þá hefir þetta dráttlistar-sýsl mitt búið mér fjölda ánægjustunda á ævinni, þótt aldrei yrði úr því annað en hjáverka-sýsl viðvanings.’’ Árin líða, Jón lýkur námi og flytur til Íslands. Gerðist hann fyrst kennari í prestaskólanum en var síðan kosinn biskup árið 1917. Meðfram störfum sínum gaf hann sér iðulega tíma til að teikna og mála. Hann dregur upp nákvæmar myndir af Reykjavík og kirkjum landsins. Lítið hefur verið skrifað um myndir Jóns Helgasonar og kannski hefur fólk hneigst til að líta á þær sem sagnfræðilegar heimildir fyrst og fremst. Jón Helgason lést í Reykjavík árið 1942 eftir langt og farsælt ævistarf.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Hús við Bankastræti 1890
Ártal
1885 - 1942
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: ÁBS-2861
Stærð
53.7 x 35 x 2.8 cm
Lengd: 53.7 Breidd: 35 Hæð: 2.8 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Jón Helgason. Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990.
María Karen Sigurðardóttir. Sýningarskrá. (Ljósrit). Sýning Lækjargötu. Árbæjarsafn 1998.
Margrét Hallgrímsdóttir. „Kveðja frá Árbæjarsafni.“ Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990.
Mappa; ÁBS 2856-ÁBS 2931. Jón Helgason.
Mappa; Myndir.
Skjalasafn Árbæjarsafns um Jón Helgason.
