Bátsstýri
1890

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Stýrið er af hefðbundinni gerð, átta renndir pílárar, miðjan eins og á vagnhjólum, hringur utan með úr tré. 11.8.1940 komu sjö ungir menn til Reykjavíkur frá Danmörku á 32 tonna 52 ára gamalli skútu sem kölluð var Frekjan. Á stýrinu er platti með áletrun: "M/B FREKJAN Frá Danmörk 21/7. Til Íslands 11.8 1940. Gefendur áhafnarmennirnir Björgvin Frederiksen f. 22.9.1914. Úlfar ... f. 2.8.1911". Áletrun er nokkuð máð og því ekki ljóst hvað stendur þar í heild.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1890
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1995-12-1
Stærð
90 x 90 x 13 cm
Lengd: 90 Breidd: 90 Hæð: 13 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bátsstýri



