Úr
1855 - 1857

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Fermingarúr
Magðalenu Möller. Úrið er frekar stórt af kvennúri að vera, í rauðum
litlum kassa, sem fylgdi því frá upphafi. Á baki úrsins er rósaskraut
en innan í baklokið er grafið " Magðalena Möller ". Úrinu
fylgja lyklar til að draga
það upp með en það er dregið upp að aftan eftir að lokið hefur verið opnað.
Þá eru og með úrinu tveir aðrir lyklar gulllitaðir og er annar í byssulögun.
Magðalena Möller var fædd 1843 og gift Oddi Thorarensen eldra, lyfsala
á Akureyri. Hún var afasystir frú Sigríðar Davíðsson en hún er gefandi
úrsins.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1855 - 1857
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1289
Safnnúmer B: 1962-1289
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Úr
