Dráttarvél
1945 - 1950

Varðveitt hjá
Landbúnaðarsafn Íslands
Massey Harris vél frá árunum 1946-1948 sem keypt var að Hæli í Flókadal, af Ingimundi Ásgeirssyni og Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Hætt var að nota vélin eftir þeirra brotthvarf frá búskapnum. Sláttuvél og herfi fylgdu henni fljótlega eftir að hún var afhent um haustið til hjónanna.
Aðrar upplýsingar
Ingimundur Ásgeirsson, Notandi
Gefandi: Jakob Guðmundsson
Gefandi: Ásgeir Ingimundarson
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Notandi
Gefandi: Jakob Guðmundsson
Gefandi: Ásgeir Ingimundarson
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Notandi
Ártal
1945 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer A: 507
Safnnúmer B: 1991-1-1
Staður
Staður: Hæll, 320-Reykholt í Borgarfirði, Borgarbyggð, Flókadalur, Ísland
Sýningartexti
Massey Harris 20
Það komu ríflega 120 dráttarvélar þessarar tegundar til Íslands.
Verksmiðjurnar voru í Ontario í Kanada, orðnar til við samruna tvegga vélasmiðja, þeirra Masseys og Harris. Þessi vél mun hins vegar hafa verið smíðuð í Ohio.
Gerðin 20 var framleidd á árunum 1946-48, og eina slíka, þá sem hér stendur, keyptu Ingimundur Ásgeirsson, bóndi á Hæl í Flókadal og kona hans Ingibjörg, árið 1947 og notuðu lengi. Dráttarvélin var talin vera 27 hö, bensínknúin. Við hana var fljótlega fengin sláttuvél, kambasnúningsvél og einnig herfi.
Það var Jakob Guðmundsson, bóndi á Hæli, mágur Ingimundar sem árið 1991 hlutaðist til um að koma dráttarvélinni hingað í safnið, þar sem Jörva-menn gerðu henni til góða.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°36'57.6"N 21°21'45.0"W





